29.04.1936
Neðri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (890)

88. mál, vegalög

*Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Ég skal aðeins geta þess, að samgmn. hefir haft til athugunar þær brtt., sem fyrir liggja við þessa umr. Ég skal geta þess jafnframt, að nm. hafa ekki orðið sammála um neinar af þessum brtt. Ég geri ráð fyrir, að meiri hl. nm. muni greiða atkv. á móti þessum brtt.; annars hafa einstakir nm. óbundin atkv. um allar till.