29.04.1936
Neðri deild: 59. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

88. mál, vegalög

Eiríkur Einarsson:

Með því að ég tók aftur til 3. umr. þær till., sem ég bar fram við vegalagafrv., þá mundi ég hafa sagt nokkur orð um þær nú, ef það hefði ekki orðið að samkomulagi að láta umr, falla niður. Af þessari ástæðu hefi ég gengið inn á að mæla ekki fyrir brtt. mínum, en vildi aðeins láta það vera skráð, hvers vegna ég læt umr. falla niður frá minni hendi.