22.04.1936
Neðri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (918)
70. mál, Skeiðaáveitan
Jón Pálmason:
Ég hafði ætlað mér að gera þá brtt. við málið að taka inn í frv. skuldaskipti Áveitufélags Þingbúa við viðlagasjóð, en af því að ég hefi von um að fá það leyst á annan veg, þá sleppi ég því að þessu sinni, því ef eigi tekst að leysa málið á þann hátt, sem ég hefi von um, þá er að sjálfsögðu hægt að koma að í hv. Ed. brtt. við þetta frv.