22.04.1936
Neðri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (919)
70. mál, Skeiðaáveitan
*Eiríkur Einarsson:
Ég á brtt. á þskj. 168 um mál þetta, sem hér er til umr. Það er ekki síðar en vænta mátti, að fram koma lagfæringar um þetta efni. Eins og grg. ber með sér og fram hefir komið í framsögu, er þetta frv. eingöngu til samræmingar á þeim kjörum, sem þeir, er njóta Skeiðaáveitunnar, hafa við að búa, og þeim, er veitt eru við Flóaáveituna. Ég skal þess vegna ekki eyða mörgum orðum að frv., en láta aðeins í ljós gleði mína yfir því, að það er fram komið.
En þegar ég sá frv., kom mér í hug, að rétt væri að bera fram við það brtt., svo að bætt verði, úr því, sem brýnust nauðsyn er til, að bætt sé úr í sambandi við Skeiðaáveituna, og það er framræslan. Það hefir komið í ljós í votviðrasumrum, að bændur á þessu svæði hafa komizt í háska með engjar sínar, og það svo, að þar, sem lægst liggur og halli er minnstur, hefir legið við, að bændur hafi orðið að hverfa frá slætti vegna votlendis. Við rannsókn hefir það komið í ljós, svo að ekki þarf um að deila, að framræsla á þessu svæði er framkvæmanleg, en vitanlega kostar hún eitthvað, eins og allar umbætur, en hinsvegar verður kostnaðurinn ekki svo mikill, að umbæturnar verði ekki miklu meira virði en sem honum svarar. En þessi kostnaður er meiri en svo, að bændur geti ráðið við hann, og þess vegna verður nú ríkið að hlaupa drengilega undir bagga og hjálpa bændum að hrinda þessu í framkvæmd, þar sem þeim sjálfum er það ókleift. Forsendurnar fyrir því að fá áveitukostnaðinn greiddan eru fyrst og fremst þær, að áveitan sé svo vel úr garði gerð að bændur geti haft hennar full not og þannig orðið menn til þess að greiða kostnaðinn.
Ég hefi einnig fellt hér inn í, að rannsókn og framkvæmd skuli hafin af ríkinu til þess að fyrirbyggja það, að nágrannajarðir áveitusvæðisins spillist af vatnsrennsli, og er það sízt að ástæðulausu. Það hefir verið kvartað undan því, að þær jarðir, sem liggja neðan við áveitusvæðið, hafi orðið fyrir tjóni af vatnsrennsli frá áveitunni. Sé ég ekki annað, ef þessar jarðir skemmast og áveitunni er um að kenna, en að þeir, sem þar búa, eigi lagalegan kröfurétt á að fá þær skemmdir bættar að fullu. Það er vitanlega athugunarmál, að hve miklu leyti þessar kvartanir eru á rökum byggðar, en hér er ekki heldur farið fram á annað en að það sé bætt, sem nauðsyn krefur og sýnilegt er eftir nána athugun, og mundi stjórnin að sjálfsögðu fela sérfróðum manni rannsóknir og framkvæmdir í þessu efni.
Það er auk þessa aðgætandi, þegar talað er um að gera þessar engjar öruggar fyrir vatnsgangi, að þá er litið á hag fleiri manna en svæðisbúa sjálfra, því ríkið á hér sjálft hlut að máli. Auk þess sem svæðisbúar eru á tvennan hátt skattþegnar ríkissjóðs, annarsvegar venjulegir skattþegnar og hinsvegar áveituskattþegnar svæðisins, sem þurfa að hafa möguleika til að rísa undir áveitukostnaðinum — og þarf þess vegna að sjá svo um —, þá er ríkið sjálft einnig jarðeigandi og lánardrottinn. Ég vona því, að hv. dm. taki þessari brtt. með sanngirni og góðum skilningi, enda er ekki farið fram á, að framkvæmdir verði með öðrum hætti en bráðnauðsynlegt er og að fenginni leiðsögn sérfróðra manna og í samræmi við það, sem áður hefir verið gert. — Get ég svo látið útrætt um þessa brtt. og vona, að henni verði vel tekið af hv. dm.