20.04.1936
Efri deild: 52. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (936)

85. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Við 1. umr. var gerð allýtarleg grein fyrir þessu frv., m. a. af hæstv. atvmrh. Allshn. hefir haft málið til meðferðar á nokkrum fundum og kallað landlækni á fundi til þess að leita ráða hans og umsagnar um nokkur atriði.

Í aðalatriðunum er n. sammála um og telur rétt, að löggjöf sem þessi nái fram að ganga á þessu þingi, en hinsvegar er nokkur ágreiningur um, hve langt hún eigi að ganga í einstökum atriðum. En n. var sammála um að setja það bráðabirgðaákvæði, að styrkveitingar samkv. þessum lögum skyldu ekki koma til framkvæmda, nema samkv. því, sem fé væri veitt til þess í fjárlögum, nema til þeirra, sem haldnir eru af berklaveiki, holdsveiki eða kynsjúkdómum. Það eru að vísu í 1. gr. fleiri sjúklingar taldir, sem nú þegar eru kostaðir af ríkinu, svo sem geðveiklingar allir. Það er svo til ætlazt, að holdsveikir sjúklingar séu að öllu leyti kostaðir af ríkinu, svo lengi sem Laugarnesspítali er starfræktur. Það þótti ekki annað hlýða, því að þessi spítali er reistur fyrir gjafafé með þeim skilyrðum, að sjúklingar hafi þar vist sér að kostnaðarlausu, og þessum megintilgangi gefendanna vildi n. ekki breyta. — Þá er hið sama um daufdumba. N. ætlast til, að um rekstur málleysingjaskólans verði nákvæmlega sama fyrirkomulag og nú er. Þá er og um geðveika ætlazt svo til, að það, sem ríkið leggur nú fram, verði í sama mæli eftirleiðis. Það, sem þá er nýtt og óþekkt, hvaða kostnað hefir í för með sér fyrir ríkið, eru fávitar og aðrir menn, sem þjást af langvarandi sjúkleika og sjúkrasamlögum ekki er skylt að styrkja eftir 6 mánaða veikindi. — Þá eru ofdrykkjumenn og aðrir eiturneytendur og þeir örkumla menn, sem þurfa gervilimi; allt þetta er óvíst, hvað kostar ríkið, ef það er tekið upp, og þess vegna taldi n. rétt að setja þetta bráðabirgðaákvæði, og ætlast þá n. til, að þegar lög þessi koma til framkvæmda, sem yrði árið 1938, verði sett inn í fjárlög sú upphæð, sem þarf til að standa undir þessum kostnaði, og verði styrknum síðan úthlutað samkv. till. landlæknis. Á stuttum tíma kemur svo reynsla á það, hvað þetta kostar ríkissjóð mikið fé. Landlæknir var þeirrar skoðunar nú, að hann gæti ekki gefið upplýsingar um, hvað þetta kynni að kosta, en eins og fjárhag ríkissjóðs er nú háttað, taldi n. ekki hægt að setja ríkisframfærslu á, áður en það væri komið í ljós.

Þá er nokkur breyt. á 8. gr. Í frv. var ætlazt til þess — og er það óbreytt frá n. hálfu — að 1/5 af framfærslukostnaðinum greiddist af þeim sjúku sjálfum, og ef þá þryti, þá af hlutaðeigandi hrepps- eða bæjarfélagi. Var svo til ætlazt í frv., að innheimta þess hluta, sem sveitar- og bæjarfélögin yrðu að greiða, væri í höndum ráðh., en fjmrh. taldi réttara, að innheimta þessara gjalda kæmi til aðilja beint frá viðkomandi sjúkrahúsum, og þess vegna leggur n. til, að þessu ákvæði 8. gr. sé breytt í þetta horf. — 2. brtt. n. er um gildistöku laganna. Í frv. er svo ákveðið, að lögin öðlist nú þegar gildi, en n. leggur til, að þau öðlist gildi 1 jan. 1937. Ég hygg að allir hv. nm. séu sammála um, að þessa löggjöf beri að setja. Hinsvegar hafa tveir hv. nm. skrifað undir frv. með fyrirvara og hafa að sjálfsögðu óbundnar hendur til að koma fram með nýjar till. eða greiða atkv. um nýjar till., sem fram koma.

Eitt meginatriði þessarar stefnu, að 1/5 af öllum sjúkdómskostnaði falli á viðkomandi bæjar- eða sveitarfélag, ef sjúklingurinn sjálfur er þess ekki megnugur að greiða hann, er það, að þá er svo til ætlazt, að berklavarnagjaldið verði fellt niður, og taldi n. það mikils virði, þar eð komið hafa fram allháværar raddir um að fá þetta gjald afnumið. Reynslan verður svo að skera úr um það, hvort þessi 1/5, sem hér leggst á einstaklinga eða framfærslusveitir, verður meiri byrði heldur en það gjald, sem nú er létt af sýslum og sveitarfélögum, en það var skoðun n., að ekki mætti daufheyrast við þessum röddum.

Ég ætla ekki að fara út í einstakar gr. frv.; það hefi ég gert áður. En ég vildi í aðaldráttum skýra brtt. allshn. og það verk, sem með þessu er hafið. Ætla ég, að með þessu sé stigið gott spor í þá átt að koma skipulagi á þessi mál og að þetta sé nauðsynleg viðbót við þær tryggingar, sem nú eru orðnar ákveðnar með l. frá síðasta þingi. Og þótt þessi löggjöf sé ekki fullkomin, þá er hægra um vik að fullkomna hana með því að nema bráðabirgðaákvæði hennar úr gildi heldur en að koma henni á í fyrstu eða auka við löggjöf, sem nú væri sett. Vænti ég þess, að hv. d. geti fallizt á þessar till. allshn. í öllum aðalatriðum og taki málinu vel.