20.04.1936
Efri deild: 52. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
85. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla
*Jón Auðunn Jónsson:
Ég vil gera þá fyrirspurn til hv. flm., hvort þeir telji það öruggt, að ekki verði innheimt berklavarnagjald hjá sýslu- og bæjarsjóðum 1937. Annars vil ég segja það, að það er enganveginn víst, þó að þessi hv. d. afgr. þetta frv., að það verði að lögum, og þess vegna hefði verið rétt, ef meiri hl. hv. fjhn. hefði ætlað að létta þessu gjaldi af sýslu- og bæjarsjóðum, að skila áliti, þannig að það mál, sem er umfangsminna, hefði verið komið í gegnum þingið, þótt þetta hefði strandað.