20.04.1936
Efri deild: 52. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (949)

85. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég skal ekki karpa við hv. 1. þm. Eyf. um þetta atriði, en það er eitt, sem ég ekki skildi, að hann var að ráðleggja mér að flytja brtt. við 13. gr., sem yrði þá að verka ár fram fyrir sig. Og ég sé ekki, að l. geti fellt úr gildi ákvæði annara l., fyrr en þau ganga sjálf í gildi. En nú eiga þessi l. ekki að ganga í gildi fyrr en 1. jan. 1937. (BSt: Það stendur í 13. gr., að þau öðlist þegar gildi). Ég horfi á nál. hér fyrir framan mig. (BSt: Það er allt annað mál). Ég ætla þá að láta ráðast, hvort hv. l. þm. Eyf. samþykkir brtt. eða ekki.