30.04.1936
Neðri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (957)
85. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla
*Frsm. (Héðinn Valdimarsson):
Mál þetta hefir verið til umr. í allshn., og leggur hún einhuga til, að frv. verði samþ. óbreytt. Í Ed. hefir orðið samkomulag um frv., og þó verið gerðar á því nokkrar breyt., sérstaklega það, að sett hefir verið bráðabirgðaákvæði aftan við frv.
Frv. þetta var lagt fram á þessu þingi í sömu mynd og það lá fyrir síðasta þingi, og tekur til ríkisframfærslu sjúkra manna og örkumla, sem 1. um alþýðutryggingar ná ekki til.
Bráðabirgðaákvæðið er um það, að það sé ákveðið í fjárl., hve háum upphæðum skuli varið til styrkveitinga samkv. l. þessum til annara en þeirra, sem haldnir eru berklaveiki, holdsveiki eða kynsjúkdómum, á meðan þetta bráðabirgðaákvæði verður ekki numið úr gildi. Skal upphæð þeirri úthlutað af ráðh. samkv. till. landlæknis að hverju ári liðnu, í fyrsta skipti í ársbyrjun 1938, til þeirra, sem úrskurðaðir verða styrkhæfir, og má styrkur til hvers nema allt að 4/5 hlutum áfallins kostnaðar á næstliðnu ári, en að öðru leyti skal um þessar styrkveitingar fylgt þeim reglum, er lögin setja.
Þá er einnig það ákvæði í bráðabirgðaákvæðunum, að á meðan holdsveikraspítalinn í Laugarnesi verður starfræktur af ríkinu, skuli holdsveikissjúklingar, sem þar eru vistaðir fyrir ráðstafanir hins opinbera, hafa þar að öllu leyti ókeypis vist á kostnað ríkissjóðs, eins og verið hefir.
Sé ég svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv., en legg til, að því verði vísað til 3. umr.