02.03.1936
Neðri deild: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (968)
6. mál, lax- og silungsveiði
*Pétur Ottesen:
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er nú, eins og hv. flm. hefir frá skýrt flutt í sömu mynd eins og gengið var frá því hér í lok síðasta Alþingis. Tilgangurinn með þeim breyt. á l., sem farið er fram á í þessu frv., er sá, eins og hann líka lýsti yfir, að kveða nokkru skýrar á um ýms atriði í laxveiðalöggjöfinni heldur en gert var, þegar hún var sett á Alþingi 1932.
Ég skal nú ekki segja um það, hvað reynslan kann að leiða í ljós á sínum tíma, hvort 1. gr. frv. nær tilgangi sínum með öllum sínum orðaskýringum. Ég skal ekkert segja um þetta, segi ég. En þó gefur það nokkra bendingu um, að það sé erfitt að setja um þessa hluti tæmandi skilgreiningarákvæði, að hv. landbn. hefir í einu atriði alveg gefizt upp við að taka upp í l. fullkomin skýringarákvæði. Og þessi uppgjöf n. í þessu efni felst í fyrstu brtt. á þskj. nr. 63, þar sem um er að ræða skilgreiningu á orðunum „ós í sjó“. Þar gefst landbn. alveg upp við að gefa tæmandi skýringu á þessu hugtaki, og í vissum kringumstæðum er gerð till. um, að veiðimálastjóri geti, að fengnum till. veiðimálan., sett annað takmark, nefnilega ákveðið, hvað skuli teljast ós í sjó. Þetta bendir fullkomlega til þess, að það sé enginn hægðarleikur að kveða í löggjöf svo skýrt á um þetta, að ekki orki æfinlega tvímælis, þegar á að fara að framkvæma þessa löggjöf. Það er náttúrlega alveg rétt, að margt er óskýrt í þessum laxveiðal. Á þetta var bent, þegar l. voru sett. Þá komu fram brtt. við þáverandi frv. til þeirra laga, sem nú eru laxveiðil., bæði frá mér og öðrum, sem ekki náðu fram að ganga. En reynslan hefir svo sýnt, að full ástæða hefði verið til að taka þær brtt. til greina og taka ákvæði þeirra strax upp í löggjöfina.
Út af þessari uppgjöf n. um að ákveða, hvað skuli teljast ós í sjó, vil ég bæta því við, að mér virðist ákaflega og óforsvaranlega losaralega gengið frá þessu atriði í till. n., að ákveða í þessu efni. Hér er það veiðimálastjóri, sem á að vera einvaldur um það að skera úr í þessu efni. Og það, sem hann ákveður, það eiga að vera 1. í þessu efni, þangað til löggjafanum kann að finnast þörf á eða ástæða til að taka fram fyrir hendurnar á honum.
Það er nú venjulega svo, að þegar um það er að ræða, að einhver viss einstakur maður á samkv. l. að tiltaka nánar einhver atriði, sem ákvæði eru um í l. eða reglugerð, þá er svo til tekið, að það skuli vera ráðh., sem ákveður um þau atriði, að fengnum till. þeirra sérfræðinga eða ráðunauta, sem sérstaka aðstöðu hafa til að gefa leiðbeiningar. Þetta byggist á því, að ráðh. er undir öllum kringumstæðum ábyrgur gerða sinna gagnvart Alþingi. En hér á að fara að leggja löggjafarmálefni í hendur manns, sem enga slíka ábyrgð ber gagnvart Alþingi. Hér á að fara inn á nýja braut í þessu efni, sem fullkomin ástæða er að taka til athugunar, hvort rétt sé að fara inn á. Virðist mér eðlilegast að ákveða þetta með öðrum og skýrari hætti. En ef Alþingi sér ekki ráð til þess að ganga frá þessu atriði þannig, að viss ákveðin regla ætti að gilda um það, því virðist mér sjálfsagt að fela ráðh. að ákveða takmörkin í þessu efni í einstökum tilfellum, að fengnum till. veiðimálastjóra.
Brtt. þessi er líka óskýr að öðru leyti. Þar er t. d. svo til tekið, að þetta takmark, sem veiðimálastjóri á að geta sett og um hefir verið rætt, skuli vera ákveðið í eitt skipti fyrir öll á hverjum stað, meðan lögin standa óbreytt. Þetta mætti skýra svo, að þetta ákvæði veiðimálastjóra ætti að falla úr gildi, ef einhver breyt. væri á l. gerð í alveg óskyldu atriði. Þetta virðist ekki hafa verið nægilega athugað, þegar gengið var frá brtt.
Brtt. þessi, ef samþ. verður, þrengir kosti þeirra manna, sem búa við árósana. Einnig dregur hún nokkuð úr þeirri hættu, sem af ádráttarveiði stafar — og ákvæðin um ádráttarveiðina eru áreiðanlega hinn skæðasti hlutur í laxveiðalöggjöfinni — í bergvatnsánum, þegar liðnu á sumar. Því að það ákvæði komst inn í frv., að heimilt væri að draga á í ám, þangað til um miðjan september. En í gildandi l. er það ekki heimilt nema til ágústloka. Þetta ákvæði brtt. álít ég því, að miði til umbóta á frv., að samkvæmt brtt. má ekki stunda ádráttarveiði eftir 31. ágúst.
Hitt ákvæðið, sem ég nefndi í brtt. landbn., þar sem lagt er til, að kveðið sé jafnt á um það, hvernig beri að framkvæma lagnetaveiðar í kvíslum uppi í ánum og í kvíslum í ósum ánna, það skerðir mjög rétt þeirra til laxveiða í árósum, sem hann hafa haft. Og hygg ég, að þetta ákvæði hafi valdið því, að hv. þm. Mýr. skrifaði undir nál. með fyrirvara. Það er nú svo, að uppi í ánum má ekki leggja net fyrir lax, nema út í 1/3 af kvíslum ánna. En hér í till. n. er þetta yfirfært á árósana líka og ákveðið, að ekki megi heldur leggja út í kvíslar, sem myndast í eða við ós um fjöru, þó að þar sé, eins og víða á sér stað, einn víður og stór fjörður um flóð, nema að 1/3, eins og í kvíslum ofar í ánum. Þetta ákvæði verður til þess að eyðileggja gersamlega veiði manna á þeim svæðum ánna, sem sjór fellur á, þar sem þeir nú hafa aðstöðu til laxveiða, þegar sjór fellur yfir leirur um flóð.
Hér virðist vera gengið á rétt manna algerlega að nauðsynjalausu, þ. e. án þess að nauðsyn beri til þess að takmarka svo þessa veiði, til þess að veiði uppi í ánum stafi ekki hætta af henni fram yfir það, sem eðlilegt er. Því að ákvæði er um, að ekki megi leggja net fyrir lax nema út í 1/3 af breidd óss. Og þetta ákvæði er í frv. lagt til, að breytist þannig, að ekki megi leggja netin nema út í ¼ hl. af breidd óss eða leiru. Þar sem svo hagar til, að sjór fellur yfir kvíslar í ós um flóð og myndar stóran fjörð, hefir laxinn því hlaupvíðar uppgöngudyr, þrátt fyrir þessa mjög svo takmörkuðu lagnetaveiði. Vegna þessa ákvæðis um kvíslar í ósum hygg ég, að hv. þm. Mýr. hafi með tilliti til kjósenda sinna skrifað undir nál. með fyrirvara. (BÁ: Alveg rétt).
Þá skal ég aðeins með fáum orðum minnast á brtt., sem ég flyt við frv. og er á þskj. 84. Fyrri brtt. er við 13. gr. 1., um veiði í sjó. Í 13. gr. l. er það gert að undantekningarákvæði frá því að banna gersamlega veiði í sjó, að þar sem farið var að stunda slíkar veiðar, áður en fasteignamatið, sem staðfest var 1932, fór fram, skuli heimilt að stunda þær áfram, ef tillit hefir verið tekið til þeirra við fasteignamatið. Svo hagar nefnilega til á stöku stað, þó óvíða sé, að hægt er að stunda veiði í sjó. Og þó að töluverðir annmarkar séu á því, m. a. vegna þess, hve útbúnaður til þess er dýr, þá eru þó þessi undantekningarákvæði til. Úr því að þau eru til í 1. og ennfremur þar sem hægt er að stunda þessar veiðar í sjó víðar en tillit hefir verið tekið til við fasteignamatið, þá hefi ég borið fram brtt. um, að ráðh. sé heimilt, að fengnum till. veiðimálastjóra, að leyfa veiði í sjó í lagnet eða króknet, sem fest er við girðingu út frá landi. Mér virðist þessi till. mín í mjög góðu samræmi við undantekningarákvæði l., sem ég gat um. Og þar sem þetta, samkv. till. minni, á að leggja algerlega í vald ráðh. eftir að hann hefir leitað álits veiðimálastjóra um þetta, þá virðist mér, að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu, að þetta ákvæði sé tekið upp í löggjöfina.
Hin brtt. mín er við 76. gr. l., um að hækka styrk, sem þar er ákveðinn til klakhúsabygginga, úr kr. 1.50 og upp í kr. 2.50 fyrir dagsverk. Á síðustu árum hefir komizt allmikill skriður á það, að menn hafi bundizt samtökum um að koma upp klakstöðvum. En þar sem um stærri framkvæmdir er að ræða í því efni, þá verða þær allkostnaðarsamar. Og með hliðsjón af því, að það er álit manna, að með klakstöðvum megi tryggja nokkuð veiði í ánum, þá er þetta ákvæði vitanlega sett inn í l., að veita styrk til þessara fyrirtækja, sem ég nú legg til, að verði hækkaður dálítið frá því, sem nú er. Svo hagar til, að í Borgarfirði hafa menn myndað félagsskap, og sama má segja um fleiri héruð, til þess að koma upp hjá sér allsherjarklakstöð fyrir allar laxár héraðsins. Þetta fyrirtæki Borgfirðinga er vitanlega töluvert kostnaðarsamt. Eftir ósk viðkomandi manna hefi ég borið fram þessa hækkun á styrknum.
Fyrir síðasta þingi lá frv. um, að ríkið tæki í sínar hendur framkvæmdir þessara mála, en það náði ekki fram að ganga, og býst ég við, að það hafi stafað af því, að álit manna a. m. k. hér í hv. d. hafi verið það, að eftir laxveiðal. frá 1932 og á grundvelli þeirra mætti koma þessu í framkvæmd með miklu ódýrari hætti og sízt lakari árangri, þannig að láta einstaklinga bera þetta uppi, en hafa ekki ríkisrekstur á því. Og það er ekki vafi á, að það álit er rétt.
Vænti ég, að hv. d. fallist á réttmæti þessarar till. minnar og samþ. hana, eins og hún líka getur verið samþ. því, að fyrri brtt. mín sé sömuleiðis sanngjörn og réttmæt.