02.03.1936
Neðri deild: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (970)
6. mál, lax- og silungsveiði
Bjarni Ásgeirsson:
Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, en það er ekki nema eitt atriði, sem fyrirvari minn á við, og það er við brtt. III. á þskj. 63, að færa út ákvæðið um, að lögn í kvísl megi ekki ná nema 1/3 út í kvíslina, hvort heldur er í ám eða í ósum. Hv. þm. Borgf. hefir nokkuð minnzt á þetta atriði, og er ég honum sammála um það og hefi hugsað mér að bera fram skrifl. brtt. um þetta efni. Samkv. 33. gr. laxveiðilaganna má ekki leggja lengra frá landi, þegar lagt er í kvísl, heldur en 1/3 af breidd kvíslarinnar. Nú er það nákvæmlega skilgreint, hvað beri að telja kvísl, og samkv. þeirri skilgreiningu teljast það kvíslar í ósum, sem myndast af sandrifum og eyrum, sem koma upp úr og skipta vatni, þegar vatnsborð er lægst. Nú hagar svo til víða í ósum, t. d. í Hvítá í Borgarfirði, að þar eru sandflákar, sem að sumu leyti eru þurrir um fjöru, en sumsstaðar renna um þá smálænur, sem eru svo vatnslitlar, að enginn fiskur fer um það svæði um fjöru. Það er þá fyrst, þegar sjór hefir fallið yfir þessar sandeyrar og ósinn er orðinn einn hafsjór, að nokkur fiskur fer þar um, en samkv. skilgreiningunni á orðinu kvísl má ekki leggja í þessar lænur nema 1/3 af breidd þeirra. Það er allt öðru máli að gegna um ár, þar sem vatn er jafnt og fiskur getur ekki farið annarsstaðar en eftir kvíslunum. Í ósunum fer fiskurinn alls ekki eingöngu um kvíslur þessar. Hann fer þá fyrst yfir eyrarnar, þegar mikið er fallið að, og þá engu fremur um lænurnar heldur en á öðrum stöðum. Þess vegna er það svo, að ef ekki má leggja nema í 1/3 af breidd þeirra, þá leiddi það til þess, að ekki yrði hægt að stunda veiði á þessum sandflákum, og veiðin yrði gersamlega ónýtt á þessum svæðum, en það nær ekki nokkurri átt.
Hinsvegar get ég gengið inn á það samkomulag við n., að sama gildi um kvíslar í ám og meginkvíslar í ósum, að ekki megi leggja í þær nema 1/3 af breidd þeirra, en um allar smálænur ná slík ákvæði ekki nokkurri átt. Enda er það svo, að þótt ekki sé lagt nema í 1/3 slíkrar kvíslar í dag, þá getur það auðveldlega verið ½ kvíslin eða meira á morgun, því þær breytast frá degi til dags af straum og sjávarföllum, og standa aldrei í stuð, og sá, sem ætlaði að stunda þar veiði, yrði að færa net sín daglega, en það er svo fyrirhafnarsamt, að það er sama sem veiðin sé bönnuð. Ég ber þess vegna fram skrifl. brtt. við brtt. n. á þskj. 63, og er sú brtt. mín svo hljóðandi:
„Brtt. við brtt. á þskj. 63. Við III. brtt. Meginmál brtt. orðist svo: Á eftir 1. málsl. 33. gr. laganna komi nýr málsl., svo hljóðandi: Sama gildir um höfuðkvíslar í ósum.“
Þá yrði þetta þannig í 33. gr.: Nú rennur á í kvíslum og skal þá svo haga veiði í kvísl hverri sem hún væri sjálfstæð á. Sama gildir um höfuðkvíslar í ósum. — Með því er fengið aðalatriðið og það eina réttláta, að ekki sé lagt nema takmarkaða vegalengd út í höfuðkvíslarnar, en ekki verið að eltast við hverja smálænu. — Ég leyfi mér að leggja þessa brtt. mínu fram til hæstv. forseta og óska, að hann leiti afbrigða um hana.