02.03.1936
Neðri deild: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í B-deild Alþingistíðinda. (975)
6. mál, lax- og silungsveiði
Magnús Torfason:
Þessu máli víkur nokkuð öðruvísi við eftir að fram er komin brtt. frá hv. form. n., þm. Mýr., sem ég fyrir mitt leyti get sætt mig við, þó að í sumu sé skemmra farið en ástæða er til.
Ég þarf ekki að svara hv. frsm. mikið, en kemst þó ekki hjá því að gera fáeinar aths. við ræðu hans. Hann vildi halda því fram, að frv. gengi út á það að gera laxveiðina sem arðvænlegasta. Ég hygg, að þetta sé of mælt. A. m. k. er sú breyting í upphaflega frv., að ádráttarveiðin sé leyfð til 15. sept., ekki til þess að gera laxveiðina arðvænlegri til frambúðar. Þetta á heldur ekki við það, að aðaltilgangur frv. sé að gera ákvæði laganna skýrari. Þau voru nægilega skýr.
Þá leit hv. frsm. svo á, að það væri skýrara að miða við sandeyrar þar, sem á skiptist í kvíslar. Ég skal ekki neita því út af fyrir sig. En það stendur dálítið öðruvísi á hér. Í frv. stendur upphaflega grynnsli, og með því er sagt, að munur sé á sandeyrum og grynnsli. Þess vegna verður það alltaf álitamál, hvað eigi að reikna sandeyrar eða grynnsli. Annars er til nokkuð, sem heitir sandlænur, sem renna á milli þessara grynnsla og eru ákaflega litlar. Hv. þm. Mýr. hefir séð, að ekki náði nokkurri átt að telja þær til kvísla í ám.
Þá var hv. frsm. að tala um brot á lögunum. Ég neita því, að nokkur hafi leyfi til að tala um slíkt að því er mig snertir. Hann er þarna algerlega ókunnugur, og ég þykist hafa séð á því, sem hefir komið fram hjá honum, að hann rámi ekki einu sinni í það, hvað við á. Hitt gegnir öðru máli, að það getur alltaf verið ágreiningur um það, hvort eigi að láta einhvern fá bætur eða ekki. Þá er vitanlegt ekki í annað hús að venda en gera það að dómsmáli. Þá er líka um það að ræða, hvort þessi lögn, sem ég talaði um, hafi verið ólögleg. Það er vitanlega dómsmál. En það hefir enginn dómur gengið um það. Menn hafa ekki treyst sér til þess, og vantaði þó ekki viljann.
Þá var hv. frsm. að tala um almannahag í þessu sambandi. Ég veit ekki, hvort það á hér við. Það eru kannske 20 til 30 manns, sem mundu vinna eitthvað við þessa lagabreytingu. Aðrir tapa á henni. Ég veit ekki, hvort hægt er að tala um almannahag, þegar verið er að gera upp á milli svo fárra manna. Ég stend við það, sem ég sagði, að það væri eðlilegra að nota þessa veiðisjóði til þess að hlaupa þar í skörðin.
Hv. frsm. fór lofsamlegum orðum um það, hvað mikil reynsla væri fengin hvað lögin snerti. Ég held að þessi reynsla hv. þm. nái ekki mikið lengra en til Húnaóss; a. m. k. þykist ég vita, að hann geti lítið dæmt um af reynslu, hvað þessar stórár snertir, Ölfusá og Hvítá, og jafnvel ekki um Hvítá í Borgarfirði.
Í sambandi við þá á held ég, að hv. frsm. hafi tekið nógu mikið upp í sig, þegar hann var að segja það, að veiðin í ósnum yrði til þess að teppa laxgönguna. Mér er sagt af nákunnugum manni, að mest af laxinum sé veitt í ósnum í Hvítá í Borgarfirði, og ég veit ekki til þess, að þar sé nein þurrð á laxi, heldur þvert á móti, ef nokkuð er, og í samanburði við aðrar ár er þar mun meiri laxveiði. Svo held ég, að laxinn hafi gengið þarna afarlangt upp eftir.
Í sambandi við brtt. hv. þm. Mýr. var talað um að þvergirða yfir árnar. Ef það kemst inn í lögin, að aðeins megi leggja yfir ¼ á af breidd árinnar, þá held ég, að ekki sé hægt að tala um að þvergirða.
Yfir höfuð fannst mér hv. 2. þm. N.-M. sýna það, að hann hafi verið námfús nemandi hjá þessum laxkynngismönnum, því að hann kom með allt þeirra skraf, sem er ósannað og þeir hafa minnst fyrir sér i, a. m. k. hvað snertir veiðina í Ölfusá, nema ef vera kynni skraf þeirra manna, sem hafa litið öfundarauga til laxveiðinnar þar niður frá. Það er langt frá því, að ég sé því meðmæltur, að einstakir menn beri sérstaklega mikið úr býtum. Mín skoðun er yfirlýst, og oftar en einu sinni, að ég tel, að það eina rétta sé að skoða ána sem eina heild og láta reka veiðina í félagi. Það mundi vera ódýrast að öllu leyti og hafast mest upp úr veiðinni á þann hátt. Það er eina aðferðin, sem mundi gera það að verkum, að lögum um það yrði virkilega hlýtt.
Ég þarf svo ekki að hafa fleiri orð hér um, en endurtek það, að frv. í sjálfu sér og brtt. við það sýna, að það er ekki nægileg reynsla fengin í þessu efni til þess nú að fara að skera og skapa og deila á milli einstakra manna.