28.04.1936
Efri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (996)
6. mál, lax- og silungsveiði
*Pétur Magnússon:
Það er ákaflega mikill misskilningur hjá hv. þm. S.-Þ., að fyrir mér sé þetta mál einhver togstreita um hagsmuni þeirra, sem við ósana búa, og þeirra, sem búa ofan til með ánum, og að ég sé sérstaklega að taka svari þeirra, sem eiga veiði niður við ósana. Ég álít, að veiðilöggjöfin eigi að miðast við það, að sem mestur heildararður fáist af laxveiðiánum. — Og ég fyrir mitt leyti er ekki í neinum vafa um það, að heildararðurinn verður mestur með því að framkvæma veiðina á tvennan hátt. Annarsvegar með því að veiða laxinn í net eða girðingar neðan til í ánum, þ. e. a. s. þó aðeins í stóránum, þar sem laxinn er verzlunarvara fyrir erlendan markað, og hinsvegar með því að láta laxinn ganga upp í smáárnar og leigja þær svo út til stangarveiða. Á þennan hátt tel ég, að laxveiðin verði arðbærust. Hitt er vitanlega ekkert nema skrælingjaháttur, — ég ætla að leyfa mér að taka það mikið upp í mig, — að hleypa laxinum upp í bergvatnsárnar, draga hann upp í net seinni part sumars og salta hann svo niður. Laxinn verður með þessu móti ekkert verðmætari vara heldur en hver annar fiskur, t. d. saltaður þorskur. En með því að veiða hann nýrunninn neðan til í ánum er hann vitanlega margfalt meira virði heldur en nokkur annar fiskur, sem við höfum af að segja, og með því að leigja bergvatnsárnar út til stangarveiða er engum efa undirorpið, að laxinn gæti gefið af sér margfalt á við það, sem hann hefir gert hingað til.
Hv. þm. S.-Þ. segir, að ég vilji fórna heildarhagsmununum fyrir ósaeigendur. Ég býst við því, að hv. þm. S.-Þ. ætti tiltölulega gott með að komast að samkomulagi við mig um að takmarka veiðina neðan til í ánum miklu meira heldur en gert hefir verið hingað til, en með því skilyrði, að það sé um leið tryggt, eftir því sem unnt er að gera það með löggjöf, að laxinn verði ekki veiddur á sama hátt og gert hefir verið, eftir að hann kemur upp í árnar. Því það er ekkert vit í því að takmarka veiðina neðan til í ánum upp á það að hleypa laxinum upp í árnar og gera hann þar verðlausan. Slíkt vil ég ekki styðja. En um leið og það er tryggt, að veiðin í efri hluta ánna sé með skynsamlegum hætti, þá skal ekki standa á mér að takmarka veiðina meira neðan til í ánum. — Og ég vildi taka það til alvarlegrar athugunar, hvort ekki geti verið ástæða til að banna bókstaflega alla netaveiði í öllum ám. Það er enginn vafi á því, að smáárnar mundu verða margfalt verðmætari á þann hátt. En hinsvegar er ljóst, að þá mundu koma fram miklir erfiðleikar við skiptingu arðsins.
Hv. þm. S.-Þ. vildi halda því fram, að ég talaði hér með hagsmuni ákveðins staðar fyrir augum og að ég vildi fá þessu breytt til þess að hlynna að þessum ákveðna stað, þ. e. a. s. jörðunum við Ölfusárósa. Ég hefi það nú fyrir satt, að ákvæði þessa frv. séu miðuð aðeins við þennan eina stað, og það, sem ég vildi benda á, var það, að það er vitanlega engin skynsemi í því að setja veiðilöggjöf með tilliti til ákveðins staðar; a. m. k. yrði þá, ef ætti að setja sérreglur um hverja einstaka veiðiá, að taka alla veiðilöggjöfina og gerbreyta henni allri. En að setja svona ákvæði alveg almenns eðlis, sem miðast aðeins við einn veiðistað, nær vitanlega ekki nokkurri átt. Og ég vil spyrja þá hv. þm. að því, sem telja sig taka málstað þeirra, sem veiði eiga ofar með ánum, hvaða skynsemi sé í því að leyfa veiði á þann hátt sem gert er á Selfossi, Árbæ og Helli og fleiri bæjum upp með Ölfusá, og jafnvel gerir þetta frv. ráð fyrir, að heimild sé til þess að auka veiðitækin þar frá því, sem nú er, en banna svo alla veiði á öðrum stað, lítið eitt neðar með ánni, en þar sem hverjum manni, sem þekkir þarna staðháttu, hlýtur að vera ljóst, að hættan á því, að laxgangan sé hindruð, er svo miklu minni heldur en þegar kemur upp með Selfossi, þar sem áin þrengist mjög og þess vegna miklu hægara að koma veiðitækjunum þannig fyrir, að ekki sé nema tiltölulega lítið svæði, sem laxinn getur gengið um. Það er vitanlega ekki hægt að færa nokkur rök fyrir þessu.
Hv. þm. S.-Þ. var þá að tala um það, að veiðin hefði mjög þorrið í efri hluta Ölfusár síðan þessi miklu veiðitæki hefðu verið sett niður hjá Óseyrarnesi. Þetta er af miklum ókunnugleika sagt, ef hv. þm. heldur þetta raunverulega. Árið 1933 var mikið veiðiár, og veiddist þá mikið við Óseyrarnes, en þá veiddust á Selfossi á 4. þús. laxar. Það var langur tími, sem veiddust þar á 2. hundr. laxar á dag, svo það bendir ekki til, að Óseyrarnesveiðin hafi hindrað veiðina í Ölfusá, enda dettur engum í hug að halda því fram í alvöru. Sannleikurinn er sá, að síðan byrjað var að veiða í Óseyrarnesi, sem ég held að hafi verið 1927, þá hefir verið mikil veiði í Ölfusá öll árin, að þeim 2 síðustu undanteknum. Það getur verið, að einhverjir menn hafa af fáfræði sinni staðið í þeirri meiningu, að veiðileysið í Ölfusá 2 síðustu árin stafaði af því, að veiðitækjum hefir verið komið þarna fyrir niður við árósana. Ég held fyrir mitt leyti, að það sé ósköp augljós skýring á þessu. Ég hefi þá skoðun, að ástæðan sé bein afleiðing af flóðinu mikla 1930, þegar áin flæddi út yfir allt láglendið, og hefir vitanlega borið seiði með sér, sem hafa svo legið eftir á þurru. Það eru einmitt þessir árgangar, sem hefðu átt að koma í ána þessi 2 ár, og má gera ráð fyrir, að lítil veiði verði í sumar, þó hún ætti að fara vaxandi. Hitt er ekkert annað en fávizka, að láta sér detta í hug, að þó að veiddir séu í neðri hluta ár nokkrir laxar, verði það út af fyrir sig til þess, að laxmergðin þverri í ánni, því að meginhluti þessara laxa væri veiddur ofar í ánni, ef hann væri ekki veiddur þarna. Hitt er skiljanlegt, að þeir, sem eiga veiði ofar við ár, vilji, að þessi veiði verði lögð niður. — Hv. þm. S.-Þ. var að gefa mér pillur um það, að þessi afstaða mín skapaðist af eiginhagsmunum. Ég mætti vera einkennilega innréttaður, ef ég væri að berjast fyrir því, að veiði væri stunduð niður við ósana, af því að ég átti 1/5 part veiðinnar í Óseyrarlandi og á eitt ár eftir í sumar. Ég þykist satt að segja hafa meiri hagsmuna að gæta annarsstaðar heldur en við ósana, því að ég á aðra á uppi í fjöllum, og hana á ég sjálfur. Það er því sama, hvort ég talaði fyrir máli ósanna eða hinna; ég gæti þar alltaf talað í eiginhagsmuna skyni.