18.03.1937
Neðri deild: 21. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)

64. mál, loðdýrarækt og loðdýralánadeild

*Hannes Jónsson:

Það er ekki vafi á því, að þessi atvinnugrein er mjög líkleg til þess að geta haft mikla þýðingu fyrir afkomu sveitamanna, og reyndar fleiri hér á landi. Og sú þróun, sem hjá þessari starfsemi hefir átt sér stað, hefir ekki verið svo lítil á undanförnum árum. Hygg ég, að við séum búnir að fá viðurkenningu fyrir það, að hafa beint þessari starfsemi inn á réttar brautir með stofnun og starfsemi Loðdýraræktarfélags Íslands.

Vil ég víkja nokkrum orðum að einstökum greinum frv. og vil vænta þess, að hæstv. forseti virði mér það til vorkunnar, þó að ég geri það við þessa umr., af því að ég hefi ekki tækifæri til að fylgjast með meðferð málsins í n. Vil ég þá sérstaklega benda þeirri hv. n., sem fær málið til meðferðar, á nokkur atriði í frv. og byrja á 13. gr. Þar er gert ráð fyrir, að landbrh. skipi ráðunaut með sérþekkingu í loðdýrarækt og gefi út erindisbréf handa honum. Nú sýnist mér ástæða til að athuga, hvort ekki væri rétt, þar sem Loðdýraræktarfélag Íslands hefir farið svo myndarlega af stað sem það hefir gert og hefir með störfum sínum áunnið sér réttmætt traust til þess að fara með yfirstjórn þessara mála — hvort það mundi því ekki rétt að breyta þessu ákvæði á þann hátt, að Loðdýraræktarfélagið sjálft skuli ráða sér þennan ráðunaut, en ríkissjóður greiði laun hans.

Þá vil ég ennfremur benda á það atriði í 14. gr., að gert er þar ráð fyrir loðdýrasýningum, sem stofnað sé til að tilhlutun landbúnaðarráðuneytisins. Nú hefi ég ekkert á móti því, að landbúnaðarráðuneytið taki þetta mál upp á sína arma. En ég vil hinsvegar líta svo á, að þar sem félagsskapur er til í landinu af virkilegum áhugamönnum á þessu sviði, sem hafa í þessum efnum talsverðra hagsmuna að gæta og hafa sýnt með áhuga sínum í þessum efnum, að þeir hafa full tök á þessu máli, að það þurfi mjög vandlega að athugast, hvort ekki er rétt að fela þeim mönnum framkvæmdir í þessu máli. Loðdýraræktarfélagið hefir fyllstu löngun til þess, að slíkar sýningar geti verið haldnar á hverju ári. En í þessu frv. er gert ráð fyrir, að slíkar sýningar verði haldnar á hverju sýningarsvæði a. m. k. 5. hvert ár. Þetta er orðað svona, „eigi sjaldnar en fimmta hvert ár“, sem gefur til kynna, að álitið sé, að það megi komast af með það. En slíkt er mesti misskilningur, sem ekki má festa rætur hér á hæstv. Alþ.

Í 17. gr. er það tekið fram um þessi sýningarsvæði, sem á að skipta landinu í, að það megi, ef henta þykir og sérstakar ástæður mæla með því, láta dýr keppa á þessum sýningum utan síns sýningarsvæðis. Það er algerlega ástæðulaust að setja þá hindrun, sem hér er gert, í veg fyrir það, að loðdýr megi sýna á hverjum sýningarstað sem er, þar sem loðdýrasýning er haldin í viðkomandi grein þeirrar ræktunar. Það er með öllu ástæðulaust að binda slíkt nokkru sérleyfi, og það getur jafnvel verið skaðlegt. Eftir því sem góð dýr eru sýnd víðar á landinu, eftir því fá fleiri að sjá, hvað til er af góðum dýrum í landinu. Þá fá menn einnig meiri ástæðu til þess að gera samanburð á lélegum dýrum og verulega góðum. Ég álít því, að frekar ætti að stuðla að því, að góð dýr yrðu sýnd sem víðast, en ekki að hindra það, eins og gert er með ákvæðum 17. gr. frv.

Um aðalstefnuna, sem felst í 18. gr., er nú ekki nema gott að segja, nefnilega þá till., að ríkissjóður skuli bera að hálfu leyti á móti loðdýraeigendum allan sýningarkostnað. Meðan loðdýrarækt er ekki útbreiddari en hún er, þá mundi það valda nokkrum örðugleikum, ef loðdýraeigendur einir ættu að standa að öllu leyti undir kostnaðinum við undirbúning og framkvæmd loðdýrasýninga. Og það væri vel að verið, ef hæstv. Alþ. vildi styðja þessa starfsemi á þann hátt að veita Loðdýraræktarfélaginu einhvern styrk, sem miðaður væri við þann kostnað, sem sýningarnar hefðu í för með sér. En ég tel æskilegast, að allar framkvæmdir í þessu efni verði fengnar Loðdýraræktarfélaginu í hendur, til þess að dreifa ekki þeim starfskröftum, sem til eru þegar á þessu sviði, og til þess að betri útkoma fáist af starfseminni. Ég veit, að nokkrir líta svo á þetta mál, að þeir óttast, að ef ríkisvaldið hefir ekki meira eða minna áhrifavald í þessum efnum um alla framkvæmd, þá verði örðugra að fá styrk úr ríkissjóði til þessarar starfsemi. En ég vil ekki trúa því, ef það þykir á annað borð rétt að styðja þessa atvinnugrein í landinu, að þá verði þröngsýni Alþ. svo mikil og skilningsskortur þess svo rótgróinn, að ekki þyki rétt að fela Loðdýraræktarfélaginu framkvæmdir á þessum hlutum og trúa því fyrir því fé, sem ríkið kann að geta lagt til þessarar starfsemi.

Um II. kafla frv. hefi ég svo nokkrar aths. að gera. Í þeim kafla felst að vísu talsverður stuðningur til stofnunar refabúa í landinu. En hinsvegar, ef maður lítur svo á, að hér sé um verulega atvinnugrein að ræða, þá er hér um að ræða svo smávægilegar lánveitingar, að ég geri ráð fyrir, að ekki geti nokkur, sem fylgzt hefir með útfærslunni á þessu sviði, ímyndað sér, að þessar lánveitingar nægi til þeirrar útfærslu, sem sjáanlega verður í þessari atvinnugrein á næstu árum. Með 21. og 22. gr. er gert ráð fyrir, að 110 þús. kr. verði varið til þessarar ráðstöfunar á næstu 5 árum, og þá er sennilega gert ráð fyrir áframhaldandi endurgreiðslu lánanna, svo að svipuð útlánastarfsemi geti haldið áfram. Nú vil ég benda á það, að hvert tríó mun kosta ekki minna en um 1800 kr. að búinu meðtöldu, og getur þetta verið í sumum tilfellum dýrara, sem fer eftir því, af hve góðum stofni dýrin eru fengin í hvert bú. En minni verður stofnkostnaðurinn ekki en 1800 kr. að meðaltali við hvert bú. Með því nú að veita lán, sem næmu 60% af stofnkostnaði, yrðu það um 1100 kr. fyrir hvert tríó. Það samsvarar því, að þessi fjárveiting mundi nægja til þess. að auka mætti við dýrastofn landsmanna alls um 300 dýrum á ári. Eftir þeim stofni, sem til er í landinu, og eftir þeirri útfærslu á þessari atvinnugrein, sem átt hefir sér stað á undanförnum árum í Noregi og gera má ráð fyrir hér, þá er ekki nokkur vafi á því, að útfærslan verður a. m. k. tvöfalt meiri á næstu árum en þetta, og fer svo sjálfsagt vaxandi úr því. Ég geri ráð fyrir, að ef ekki verður meira fjármagn fyrir hendi til lánveitinga í þessu skyni en hér er til tekið, þá muni verða að fara aðra af tveimur leiðum, annaðhvort að veita ekki öllum aðiljum lán, sem á þeim þyrftu að halda, veita sumum hámarkslánveitingu, en öðrum ekkert, eða þá að skipta fénu þannig á milli umsækjenda, að hver einn fái lítið eitt. En verði hið síðara ráð tekið, á ég von á, að lánveitingarnar verði ekki nema um helmingur af því, sem til er tekið í frv. sem hámark, sem er 60%.

Ég á afarbágt með að sætta mig við þann mismun, sem gerður er á lánveitingum til einstakra manna annarsvegar og félaga hinsvegar, sem mynduð eru til loðdýraræktar. Ef einstaklingur ófélagsbundinn vill stofna slíkan atvinnurekstur, þá á hann að hafa jafnan rétt til þess að fá lán til þessarar starfsemi sinnar eins og þótt fleiri myndi félagsskap um það. Sú ástæða, sem hv. frsm. færði fram til að afsaka þetta misrétti, nfl. að rétt væri að stuðla að félagamyndunum um þessa starfsemi, fellur í raun og veru um sjálfa sig, ef vel er að gáð. Hv. frsm. heldur því fram, að þetta ójafnaðarákvæði muni stuðla til þess, að stofnuð muni verða stór refabú og fengnir til þeirra erlendir kunnáttumenn í þessari grein. En ég hygg, að í þeim héruðum, þar sem þessi starfsemi kemst nokkuð á fót, muni þetta verða á annan veg, nfl. þann, að einstaklingar muni á sinn kostnað og í félagsskap ráða til sín mann með sérþekkingu í þessari grein, sem ferðaðist á milli búanna til þess að kenna mönnum alla hirðingu og meðferð dýranna. Þetta fyrirkomulag er eðlilegra og æskilegra, þegar þess er gætt, að loðdýraræktin á að vera einn þáttur í búskap hvers einasta bónda, sem gengur inn á þá braut að stunda loðdýrarækt. Með þessari grein búskapar síns skapast bóndanum möguleiki til þess að fá borgaðan vinnukraft. Og nú er víða svo ástatt, þar sem sauðfjárpestin hefir gengið, að bændur eru í vandræðum með að fá starfsefni fyrir vinnuorku sína.

Það getur náttúrlega verið rétt leið í þeim héruðum, þar sem lítið eða ekkert er byrjað á þessari atvinnugrein, að hafa þar félagsskap um loðdýraræktina til að byrja með. Í Noregi var að vísu byrjað með félagsskap í þessari grein, en sá félagsskapur hefir smátt og smátt leystst upp, þannig að einstaklingar hafa tekið þetta til sín og rekið þessa ræktun á eigin spýtur. Við eigum að læra af reynslu Norðmanna í þessum efnum og reyna að sneiða framhjá þeim skerjum, sem þeir hafa rekizt á í þessu efni. Ég er sannfærður um, að þessi atvinnugrein getur komið að fullu liði sem einn þáttur í búskap hvers einasta bónda, sem hana stundar.

Það, sem ég vil benda hv. n. sérstaklega á, sem fær þetta mál til meðferðar, er í fyrsta lagi, hvort hún vill frekar styðja einstaklingsrekstur á þessu sviði eða stuðla til þess, að loðdýraræktin verði nokkurskonar spekulation. Í öðru lagi vildi ég eindregið mælast til þess, að hv. n. athugaði, hvort ekki væri hægt að finna leið til þess að auka það starfsfé, sem þessari atvinnugrein er ætlað að geta fengið að láni. Og í þriðja lagi vildi ég, að hv. n. athugaði gaumgæfilega, hvort ekki væri rétt að efla meira en gert er ráð fyrir í frv. þann félagsskap, sem risið hefir hér upp um þetta mál, Loðdýraræktarfélag Íslands. Í þeim félagsskap eru menn, sem hafa sýnt það, að þeim er óhætt að fela ýmsar þær framkvæmdir, sem um ræðir í frv. Væri sízt ástæða til að launa þeim með því að sneiða framhjá þeim í þessu máli.