08.04.1937
Neðri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í B-deild Alþingistíðinda. (1098)

130. mál, friðun hreindýra

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Eins og segir í grg. fyrir þessu frv., féllu lögin um friðun hreindýra úr gildi 1. jan. 1935, og hafa hreindýr ekki verið friðuð frá þeim tíma. Ég veit, að samkomulag er um það, að mikil nauðsyn sé á að friða hreindýr áfram. Það væri mjög leiðinlegt og skaðlegt, ef hreindýrastofninn liði undir lok.

Það veit enginn um nákvæma tölu hreindýra hér á landi, en stofninn er lítill, svo að fullkomin ástæða er til að ætla, að honum verði eytt með öllu, ef hann nýtur ekki friðunar.

Ég vil svo vænta þess, að hv. þm. veiti þessu máli öll þau afbrigði, sem það kann að þurfa til þess að meðferð þess geti orðið lokið á þessu þingi. Ég legg til, að málinu verði vísað til landbn. að lokinni þessari umr., og vil því beina til þeirrar n. að skila sem fyrst áliti um það.