24.03.1937
Neðri deild: 26. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (110)

16. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

*Pétur Ottesen:

Ég hefi áður minnzt á það undir umr. um þetta mál, að þörf væri á að setja slík ákvæði sem þessi inn í frv. Það er vitanlegt, að svo er komið hag ýmissa bátaútvegsmanna, sem ekki gátu fengið leiðrétting á sínum hag við þau skuldaskil, sem lokið var nú fyrir síðustu áramót, að það er fyllsta ástæða til þess að þessar ráðstafanir verði gerðar og að framlengt sé starf skuldaskilasjóðs.

Hæstv. atvmrh. sagði, að sjóðurinn réði ekki yfir meira fé til ráðstöfunar eftir till. sjútvn. í brtt. á þskj. 134 en um 200000 kr. En auk þessara 200000 kr. veit ég ekki betur en að sjóðurinn eigi heimild til að taka 200000 kr. að láni í sambandi við þær ráðstafanir, sem gerðar voru út af þeim þrengingum, sem menn komust í hér við Faxaflóa vegna síðustu vertíðar, og voru þessar ráðstafanir gerðar til þess að hjálpa mönnum til að greiða þær tryggingar, sem hásetar áttu kröfu á, sem voru ráðnir upp á hlut. Þessi heimild hefir ekki verið notuð. En ef hún hefði verið notuð, þá hefði sjóðurinn haft yfir að ráða nú um 400000 kr. starfsfé, sem væri mjög mikil hjálp fyrir bátaútvegsmenn að fá að láni til þess nokkuð að bæta úr sínum mjög svo erfiðu ástæðum.

Ég vil því mæla sem bezt með því, að brtt. hv. sjútvn. verði samþ.