24.03.1937
Neðri deild: 26. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

16. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég er sammála um það, að fé þetta eigi að renna til aðstoðar vélbátaeigendum. En ég álít allt of mikinn kostnað því samfara, að láta stjórn skuldaskilasjóðs halda áfram að starfa eitt ár enn, og auk þess yrði slíkt til þess að vekja tálvonir hjá mörgum um aðstoð, sem ekki yrði hægt að veita. Ég vil því, að þessi starfsemi verði falin fiskveiðasjóði með þál. Get ég síðan borið mig saman við stjórn skuldaskilasjóðs.