07.04.1937
Neðri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (1130)

61. mál, endurbyggingar á sveitabýlum

*Frsm. minni hl. (Jón Pálmason):

Það var fátt í ræðu hv. síðasta ræðumanns, sem gefur mér tilefni til andsvara. Hann sagði í fyrsta lagi, að öll efnisákvæði frv. okkar fælust í frv. þeirra. Þetta er ekki rétt. Í frv. um byggingarsjóð sveitanna er gert ráð fyrir hálfu hærri styrk en í hinu, í öðru lagi eru farnar aðrar leiðir til að afla fjárins, og í þriðja lagi er það ekki þýðingarlaust, að tekið sé skipulega á málunum, eins og gert er með frv. okkar, og láta ekki allt lenda í tómum glundroða. Hv. þm. sagði, að ekki myndi vonlaust, að hægt væri að fá innanlands lán til þessarar starfsemi. En það má nú heita útilokað að fá lán út á fyrsta veðrétt í fasteignum, nema þá í veðdeild, víst með 20% afföllum.

Þá er annað atriði, sem hv. þm. gat um, á misskilningi byggt. Hann gerði ráð fyrir, að ef samþykkt yrði heimild til að selja skattfrjáls vaxtabréf, þá myndi féð verða rifið út úr bönkunum. En ég held, að þetta myndi aðeins verða til þess, að út yrði tekið fé, sem annars er látið liggja vaxtalaust af hræðslu við, að allt yrði tekið upp í skatta. Þetta fé viljum við einmitt fá í umferð.

Þá er það þýðingarmikla atriði, hvort hægt er að koma þessari starfsemi í gang á þessu ári, en á því er mesta þörf. Röksemdir meiri hl. n. fyrir því, að ekki sé hægt að koma frv. okkar í gegnum þingið, geta ekki byggzt á öðru en því, að það sé ætlun þessa meiri hl. að leggjast gegn málinu. Ef samkomulag næðist milli Framsfl. og Sjálfstfl. um að leysa málið á þessu þingi, þá hafa flokkarnir þetta í hendi sér.