07.04.1937
Neðri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (1132)
61. mál, endurbyggingar á sveitabýlum
*Jón Sigurðsson:
Ég þarf aðeins fáu að bæta við það, sem hér hefir verið sagt. Í fyrsta lagi undrar mig, að nú fyrst skuli vera komið fram með þá uppástungu, að byggingar- og landnámssjóður taki lán til starfsemi sinnar. Heimild til þess hefir verið í l. frá því 1928. Þegar sjóðurinn tók 600 þús. kr. lánið, var það álitin svo þung byrði, að forráðamenn hans sáu sér ekki fært að ganga lengra. En ef þetta er rangt, hví hefir þá ekki hv. þm. Mýr. lagt til á undanförnum árum, að þessi leið yrði farin?
Í öðru lagi undrar mig, að hv. þm. skuli leggjast svo mjög á móti því, að sjóðnum sé aflað tekna með útgáfu vaxtabréfa, er hafi þau réttindi að vera skattfrjáls, því að ég hefi fyrir satt, að hann hafi sjálfur, ásamt meðstarfsmönnum sínum úr stj. sjóðsins, sótt það fast að fá þessi réttindi fyrir sjóðinn, en að það hafi strandað á andstöðu hæstv. fjmrh. Þó að svona hafi nú farið, fannst okkur rétt að bera þetta undir atkv. þingsins, og vænti ég stuðnings hv. þm. Mýr. í málinu, fyrst hann taldi þetta gerlegt áður.