17.04.1937
Efri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)

61. mál, endurbyggingar á sveitabýlum

*Páll Hermannsson:

Ég get getið þess um þetta frv., að þótt landbn. hafi ekki skilað nál. um það, hafa samt tveir af nm. sérstaklega rætt þetta frv., og má segja, að það hafi komið til orða á milli allra nm., þó að það hafi ekki verið á formlegum fundi.

Ég get sagt það fyrir mig, að ég er því meðmæltur, að þetta frv. nái fram að ganga. Hinsvegar leikur mér grunur á því, að hv. 2. þm. Rang. muni ekki vera þessu frv. neitt sérstaklega meðmæltur, ekki af því, að hann beri á móti þeirri þörf, sem er á því að gera fátækum mönnum kleift að halda við lífvænlegum híbýlum á jörðum sínum. Ég hygg, að hann sjái þá þörf, en hann telur þetta frv. ná of skammt og það bæti ekki úr þeirri fjárþröng, sem er fyrir hendi, þegar byggja á í sveitum. Það er með þetta frv., að það gerir ráð fyrir því, að tekinn sé ákveðinn hluti af fé byggingar- og landnámssjóðs og varið að vísu til bygginga, en eftir öðrum reglum heldur en byggingar- og landnámssjóður fer eftir. Ég ætla, að hv. 2. þm. Rang. setji þetta aðallega út á frv., en ekki það, að honum þyki ekki þörf aðgerða í þessa átt.

Um þriðja nm. get ég sagt það, að ég færði þetta mál einu sinni í tal við hann, en veit þó ekki, hvort hann er því meðmæltur; geri ég þó ráð fyrir því. Ég óska ekki eftir, að það sé tekið út af dagskrá, heldur að það sé tekið til meðferðar.

Þó að þetta frv. gangi ekki langt, er það samt töluverð bót í bili, og hægt að bæta við, ef næsta þing sér sér fært að auka við þau fjárframlög, sem varið er til bygginga í sveitum. Ég legg þess vegna áherzlu á, að málið sé tekið fyrir og fái afgreiðslu á þessu þingi.