20.04.1937
Efri deild: 50. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (1201)

159. mál, borgfirzka sauðfjárveikin

*Pétur Magnússon:

Hæstv. ráðh. var að tala um það, að hann myndi setja reglugerð um bann gegn útflutningi á sýktu kjöti, ef samþykki þingflokkanna næðist til að leggja mætti þann skilning í lögin. Mér finnst, að ekki þurfi að leita samþykkis þingflokkanna um skilning eða skýringar á ákvæðum laganna. Svo framarlega sem kjöt er flutt út til þessara tveggja landa, þá er ráðh. heimilt að setja reglugerð í því efni. Það er auðsjáanlega í samræmi við tilgang laganna, bæði þessara laga og kjötlaganna. Ég verð að segja, að ég var ekki fullkomlega ánægður með þetta svar hæstv. ráðh. Hann gaf það í skyn, að hann myndi setja reglugerðina, en þó dró hann það við sig. En ég treysti því, að það sé ekki af því, að hann leggi ekki þann skilning í lögin, að honum sé það ekki heimilt, og einnig treysti ég því, að hann geri allar þær ráðstafanir, sem gera þarf, og sætti ég mig við þetta svar hans.