16.03.1937
Sameinað þing: 7. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

Sætaskipun í sameinuðu þingi

forseti (JBald):

Út af máli, sem haft var um í upphafi fundarins, viðvíkjandi hlutun sæta í þingsölum og sætaskipun fyrir Ed.-þm. í Sþ., vil ég að svo komnu máli bera fram þau tilmæli til hv. þm. úr Nd., að þeir, er þeir taka sér sæti á fundum í Sþ., sitji þar, sem þeir hafa hlotið sæti í Nd. við úthlutun eða verzlun með sæti, til þess að það geti haldizt, að Ed.-þm. fái þau sæti, sem þá eru afgangs, þegar búið er að hluta um sæti í Nd. (og verzla með þau).