10.04.1937
Neðri deild: 35. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (1248)

Afgreiðsla þingmála

*Gísli Guðmundsson:

Ég vil bara vonast eftir því, að allshn. reyni að afgr. þessi mál, og sérstaklega ýta á eftir landlækni með sína umsögn, enda er svo langt síðan það kom fram, að það væri full ástæða til, að nál. væri um það komið.