09.03.1937
Neðri deild: 17. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (1253)
Minning Hálfdanar Guðjónssonar
forseti (JörB):
Áður en tekið verður til fundarstarfa, vil ég nokkrum orðum minnast nýlátins merkismanns, sem eitt sinn var þingmaður og átti þá sæti hér í neðri deild. Sá maður er Hálfdan Guðjónsson vígslubiskup, sem andaðist í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki síðastl. sunnudag, 7. þ. m., eftir uppskurð.
Hálfdan Guðjónsson fæddist í Flatey á Breiðafirði 23. maí 1863, var sonur síra Guðjóns Hálfdanarsonar, er þar var þá prestur, en síðast að Saurbæ í Eyjafirði, og konu hans Sigríðar Stefánsdóttur prests Stephensens. Hann útskrifaðist úr latínuskólanum í Reykjavík 1884 og úr prestaskólanum tveim árum síðar, 1886. Sama ár vígðist hann prestur að Goðdölum í Skagafirði og þjónaði því embætti til vorsins 1894. Þá tók hann við Breiðabólstaðarprestakalli í Vesturhópi, er hann hafði fengið veitingu fyrir árið áður, og sat þar í 20 ár, til vorsins 1914. Þá var honum veitt Reynistaðarklaustursprestakall í Skagafirði. Fluttist hann þá á Sauðárkrók og átti þar heima síðan. Honum var veitt lausn frá embætti á miðju ári 1934. Í Húnavatnsprófastsdæmi var hann prófastur 1907–1914 og í Skagafjarðarprófastsdæmi 1919–1934. Árið 1927 var hann kjörinn vígslubiskup í Hólastifti hinu forna og vígður biskupsvígslu á Hólum 1928. Það embætti hafði hann á hendi til dauðadags. Auk þess hlóðust á hann ýms trúnaðarstörf í héraðsþarfir og sveitar, svo sem hreppsnefndar-, sýslunefndar-. skólanefndar- og sáttanefndarstörf, eins og títt er um vel metna presta. Hann átti sæti á Alþingi á þingunum 1909 og 1911, var þá 1. þm. Húnvetninga.
Auk embættisstarfa og annara skyldustarfa hafði síra Hálfdan á hendi um alllangt skeið kennslu á vetrum. Bjó hann þá marga námsmenn undir nám í latínuskólanum og þótti einkar góður kennari. Ýmsir þessara námssveina hans gengu beint frá honum inn í 2. og 3. bekk skólans, og einn þeirra las hjá honum 4., 5. og 6. bekk.
Síra Hálfdan þótti hinn mesti ágætismaður, skapfastur og geðríkur, en stillti þó skap sitt vel, góður klerkur og virðulegur, hjálpsamur og hollráður og naut jafnan mikils trausts sóknarmanna sinna, héraðsbúa og stéttarbræðra.
Ég vil biðja háttv. deildarmenn að votta minningu þessa látna merkismanns virðingu sína með því að rísa úr sætum sínum.
[Allir þm. stóðu upp.]