20.04.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)
Þingrof
*Ólafur Thors:
Ég býst við því, að ég geti farið nærri um, hvað það er, sem hæstv. forsrh. ætlar að segja hér á eftir mér, þ. e. a. s., flytja boðskap um, að þing sé rofið. En vegna þeirra yfirlýsinga, sem fram hafa komið við umr. hér á Alþingi undanfarna daga hvað eftir annað, og með sérstakri hliðsjón af þeirri yfirlýsingu, sem hæstv. atvmrh. gaf síðastl. föstudag við útvarpsumr. um frv. til l. um ýmsar ráðstafanir til viðreisnar sjávarútveginum, og því svari, sem hæstv. forsrh. þá gaf, — en þá tilkynnti hæstv. atvmrh. hæstv. forsrh. það, að vegna þess, hvernig hv. Framsfl. tæki í þau málefni, sem hv. jafnaðarmenn höfðu borið hér fram viðvíkjandi viðreisn sjávarútvegsins, sem þeir kalla, þá teldi jafnaðarmannaflokkurinn grundvöllinn vera fallinn undan því samstarfi, sem verið hefði á milli flokkanna, og forsrh. fyrir sitt leyti sagði, að hann myndi ekki geta gengið inn á þær kröfur, sem hv. jafnaðarmannaflokkur gerði í sambandi við þessi mál, — þá vil ég nú spyrjast fyrir um það, þegar þingrofsboðskapur er í vændum, hvort nokkur breyt. hafi orðið á þessari afstöðu flokkanna, og ef ekki er þar breyt. á orðin, þá leyfi ég mér að bera fram þá fyrirspurn, hvort ríkisstj. njóti þá stuðnings meiri hl. Alþingis. Þessar tvær fyrirspurnir leyfi ég mér að bera fram f. h. Sjálfstfl., og leyfi mér að fara fram á, að hæstv. forsrh. og hæstv. atvmrh. svari þeim.