20.04.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
Þingrof
*Ólafur Thors:
Ég vil út af þessari yfirlýsingu hæstv. forsrh. leiða athygli að því, að eftir henni virðist svo sem ríkisstj. sé ekki lengur studd af meiri hl. þingsins, og leyfi ég mér að láta í ljós þá skoðun, að ríkisstj., sem ekki nýtur stuðnings meiri hl. þingsins, eigi að segja af sér, þannig að venjuleg og þingræðisleg eftirgrennslan, hvort aðrir geti myndað meirihlutastjórn, megi fara fram.