02.03.1937
Neðri deild: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (1263)

38. mál, útvarpsrekstur ríkisins

*Flm. (Thor Thors):

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta frv., því að aðalefni þess er hv. þm. kunnugt frá fyrri deilum um málið. Eins og grg. ber með sér, er gert ráð fyrir tvennum aðalbreytingum í frv., í fyrsta lagi að ákveða skýrar valdsvið útvarpsráðs, og í öðru lagi að breyta til um kosningu í útvarpsráðið. Nú er það svo, að 7 menn eru í ráðinu, 3 kosnir af sameinuðu þingi, 3 af útvarpsnotendum, en einn skipaður af kennslumálaráðh. Þetta frv. gerir ráð fyrir, að 4 séu kosnir af útvarpsnotendum, að þeir ráði þannig meiri hl. útvarpsráðs. Okkur finnst ekki óeðlilegt, að þeir, sem njóta útvarpsins og bera kostnaðinn af því, hafi þar mest ráð. Tekjur af útvarpsgjöldum eru nú 375 þús. kr., en rekstrarkostnaður er áætlaður 373 þús. kr. Útvarpsnotendum er því ætlað að bera allan kostnaðinn. Þess hefir mjög gætt, að útvarpsnotendur séu óánægðir með fréttaflutning og fréttastarfsemi útvarpsins. Er það illa farið, ef ekki er hægt að hafa frið um útvarpið. Við álítum, að með því að gefa útvarpsnotendum meirihlutavald, sé mikið hægt að draga úr öllum slíkum deilum. Það er óefað rétt, að notendur ráði hér mestu, en um það mætti aftur deila, hvort nógu langt er gengið í þessu frv. Þar sem hér er um ríkisfyrirtæki að ræða, álítum við því rétt að leggja til, að Alþingi kysi 3 af 7 mönnum.

Legg ég svo til, að frv. sé vísað til menntmn.