18.03.1937
Neðri deild: 21. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í C-deild Alþingistíðinda. (1303)
43. mál, opinber ákærandi
*Flm. (Gunnar Thoroddsen):
Það er nú orðið alllangt síðan þetta mál var til umr. og ýmislegt komið fram, sem þörf er á að svara. — Það er raunar óþarfi að svara þeim aðalröksemdum, sem hv. 1. landsk. og hv. þm. Barð. hafa borið fram fyrir frestun þessa máls, vegna þess að ég hefi bæði í grg. frv. og í minni fyrri ræðu hrakið þær algerlega. Þær tvær ástæður, sem þeir færðu fram, voru í fyrsta lagi, að ekki mætti draga út úr heildarendurskoðun réttarfarslöggjafarinnar þetta eina atriði. Þetta er afsannað m. a. með því, að sjálfir þessir menn hafa tekið einstök atriði út úr heildarlöggjöfinni og borið þau fram á þingi, og þau jafnvel verið lögleidd, eins og breyt. á hæstarétti og breyt. á meðferð einkamála. Í þessu sambandi — að ekki megi taka einstök atriði út úr heildarlöggjöf — nægir að nefna það til andsvara, að í blaði hæstv. forsrh. í dag, Nýja dagblaðinu, er skýrt frá því, að fyrir hans tilstilli muni verða bornar fram næstu daga einstakar breyt. á hegningarlögunum, en þau hafa verið til heildarendurskoðunar, að ég held í 7 ár. Þessar röksemdir hv. þm. eru algerlega á sandi byggðar, enda hafa þeir sjálfir afsannað þær, og er þess vegna ekki þörf á að ræða þær frekar. — Hin ástæðan fyrir frestun þessa máls var sú, að þessi heildarendurskoðun réttarfarslöggjafarinnar tæki svo skamman tíma. Ég segi í grg. þessa frv., að það hafi verið gefið fyrirheit um, að heildarendurskoðun á réttarfarslöggjöfinni skuli vera lokið fyrir 1935. Hv. þm. Barð. vildi mótmæla því, að nokkurt fyrirheit hefði verið gefið í þessa átt. En ég vil máli mínu til stuðnings lesa upp hina rökstuddu dagskrá, sem samþ. var á Alþ. 1934 út af þessu máli. Hún hljóðar svo:
„Með því að meiri hl. alþm. hefir í opinberum málefnasamningi ákveðið, að gagngerð endurskoðun skuli fara fram á núverandi réttarfarslöggjöf, þar á meðal að sjálfsögðu 5 fyrirmælunum um meðferð opinberra mála, og kemur þá einnig til álita lögskipun opinbers ákæranda, og í trausti þess, að ríkisstj. leggi fyrir Alþ. 1935 frv. til nýrrar réttarfarslöggjafar, er nái til meðferðar opinberra mála, tekur d. fyrir næsta mál á dagskrá.“
Í þessari dagskrá er gert ráð fyrir því, að frv. um meðferð opinberra mála yrði lagt fyrir Alþ. 1935, og í málefnasamningi stjórnarflokkanna var gefið fyrirheit um, að þessi mál yrðu afgr. að fullu fyrir að ég ætla 1936. — Þegar maður lítur á þetta fyrirheit í dagskránni, sem þessir 2 hv. þm., þm. Barð. og 1. landsk., hafa m. a. borið fram, þá er það dálítið einkennilegt, að þegar komið er fram á þing 1937, skuli ekki vera farið að bóla á einum staf í þessa átt. Ég bendi á þetta til þess að sýna fram á, að þessi ástæða, sem fram er færð, sem sé að heildarendurskoðunin taki skamman tíma, er ekkert nema fals og fláræði, eingöngu framborin til að skjóta þessu máli á frest. Um þetta atriði þarf ég svo ekki að fara fleiri orðum.
Þegar þetta mál var til umr. um daginn, létu bæði hæstv. dómsmrh. og hv. 1. landsk. þau orð falla, að það væru órökstudd ummæli í grg. frv., að ákæruvaldinu hefði verið misbeitt. Ég vil því verða við tilmælum þeirra og sýna fram á, að ákæruvaldinu hefir verið misbeitt og það herfilega. Tilefni þessa frv. er auðvitað það, sem öllum þm. og almenningi er ljóst, að það er hinn mesti háski, að jafnviðkvæmt vald og ákæruvaldið skuli haft í höndum pólitísks ráðh., sérstaklega hér í okkar landi, þar sem hin pólitíska barátta er jafnhörð og perónuleg og raun er á. Um þetta atriði skal ég ekki fara mörgum orðum, því að það er búið að ræða það mikið. En ég hygg, að engum manni geti blandazt hugur um, að ákæruvaldinu hefir verið misbeitt. Það má nefna dæmi jafnvel frá fjarlægum tímum um það, að ákæruvaldinu hefir verið misbeitt af pólitískum ástæðum. Nægir þar að nefna hið svokallaða „Skúlamál“. En þó að bæði fyrir og eftir aldamót hafi komið fram ásakanir um misbeitingu ákæruvaldsins, þá er þó víst, að aldrei hafa komið eins ákveðnar raddir í þá átt eins og einmitt nú eftir stjórnarskiptin 1927. Þá keyrði svo um þverbak, að mikill hluti landsmanna þóttist sannfærður um og geta rökstutt það, að ákæruvaldinu væri svo herfilega misbeitt í pólitískum tilgangi, að nauðsynlega þyrfti að grípa í taumana. Ég skal ekki fara langt út í að nefna einstök dæmi, því að þau eru almenningi svo kunn, en flest eru þau úr valdaferli fyrrv. dómsmrh., núv. hv. þm. S.-Þ. Má þar t. d. nefna hið fræga Tervanimál, þegar tveir togarar, annar ísl., en hinn erlendur, voru kærðir fyrir landhelgisbrot. Ef annar togarinn var öðrum sekari, þá var það sá útlendi, því að það var auðveldara að fá sannanir á hendur honum. Það var svo höfðað mál gegn hinum íslenzka togara og hann dæmdur, en dómsmrh. lætur sakamálshöfðun gegn hinum erlenda togara niður falla, þó að öllum væri augljóst, að ef um sök var að ræða, þá var hann sekari. Ég skal svo ekki fara nánar út í valdaferil þessa ráðh., en þó aðeins nefna hina síðustu daga hans sem ráðh. Nokkrum dögum áður en hann fór frá völdum í maí 1932, fyrirskipaði hann málshöfðun á hendur að ég ætla 7 mönnum, sem allir voru pólitískir andstæðingar hans og flestir hátt settir í andstöðuflokki stj. Þetta mál gekk svo í gegnum dómstólana, bæði undirrétt og hæstarétt, og lauk svo, að engir þessara manna voru dæmdir. En þó að ég hafi nefnt þessi dæmi hér um misbeitingu ákæruvaldsins í stjórnartíð þessa ráðh., þá má þó ekki skilja orð mín svo, að þetta heyri eingöngu fortíðinni til. Misbeiting ákæruvaldsins í pólitískum tilgangi heyrir líka nútíðinni til, ekki sízt hinum síðustu 2 árum, sem núverandi stjórnarflokkar hafa farið með völd. Hæstv. dómsmrh. og hv. 1. landsk. hafa báðir óskað eftir sönnunum í þessu máli, og mun ég því nefna nokkur dæmi. — Í haust birtist grein í blaði þjóðernissinna, þar sem tekin voru upp ýms atriði úr vasabók hæstv. fjmrh. En þó að þessi atriði væru meira og minna ómerkileg, þá var þó ekki þar fyrir að synja, að í þessari vasabók kæmu fram ýmsar upplýsingar, sem voru óþægilegar fyrir þennan ráðh., m. a. það, þegar hann skýrir enskum fjármálamönnum frá því, að hann sjái aðeins 2 leiðir út úr fjármálaöngþveitinu. Önnur sé lántaka, en hin ívilnanir. En út af þessu er svo höfðuð sakamálsrannsókn á hendur þeim mönnum, sem að birtingunni stóðu, og þeir kærðir fyrir landráð samkv. 81. gr. hegningarlaganna. Nú er það öllum augljóst, sem á þessa hegningargrein líta, að ekki gat komið til mála, að birting þessara glefsna úr vasabók fjmrh. gæti fallið undir hana, því að þar er talað um mál, sem heill eða réttindi ríkisins gagnvart öðrum ríkjum sé undir komin. Nú fyrir nokkrum dögum er fallinn dómur í málinu og hinir ákærðu allir sýknaðir af kæru réttvísinnar. Og það vill svo einkennilega til, að jafnvel blöð stj. viðurkenna, að dómurinn sé alveg réttur og í samræmi við gildandi l. og skoðanir réttarfræðinga í þessu efni. Það er því nokkuð augljóst, þegar svo er komið, að felldur er sýknudómur í málinu og blöð stj.flokkanna viðurkenna að dómurinn sé réttur, að þessi ákæra dómsmrh. hafi verið á sandi byggð í upphafi. Og það er ekki hægt að segja annað en að þessi ákæra sé frekleg misbeiting ákæruvaldsins í pólitískum tilgangi einum saman.
En í sambandi við þetta, að það hafi verið birt leyndarskjöl, sem „heill eða réttindi ríkisins gagnvart öðrum ríkjum væri undir komin“, þá er rétt að nefna til samanburðar nokkur önnur dæmi. – Fyrir nokkrum árum kom það fyrir, um það bil sem norsku samningarnir voru gerðir, að hv. 2. þm. Reykv., sem í utanríkismn. hafði verið trúað fyrir þessum samningi og var bundinn þagnarheiti, rauf þetta heit sitt og lét blað sitt birta þennan samning til árásar á vissa menn í andstöðuflokki sínum. Þarna var tvímælalaust um samning að ræða, sem átti að fara leynt og snerti heill ríkisins. En ég veit ekki til, að ríkisstj. hafi hreyft legg né lið til þess að lögsækja þennan mann fyrir landráð, þó að hann birti samning, sem leynt átti að fara. — Fyrir 2 árum kom það fyrir, að hv. þm. S.-Þ. skýrði, að vísu með nokkuð loðnum orðum, en þó svo, að allir skildu, frá ýmsum efnisatriðum í samningi þeim, er Íslendingar gerðu við Spán. Hann hafði ekki aðeins fengið vitneskju um þetta mál í utanríkismn. og þar með verið bundinn sama þagnarheiti og hv. 2. þm. Reykv., heldur og sem þm. á lokuðum fundi í Sþ. Þetta tvöfalda þagnarheit sitt brýtur hann með því að skýra frá þessum samningi og notar atriði úr honum til árásar á pólitíska andstæðinga. Það er ekki vitanlegt, að ríkisstj. hafi hreyft legg né lið til þess að ná sér niðri á þessum þm., þótt hann þar með hefði birt leyndarskjöl, sem vörðuðu réttindi ríkisins gagnvart öðrum ríkjum. — Þá skal ég nefna þriðja dæmið. Fyrir 2 árum var gerður verzlunarsamningur við Þýzkaland. Hann átti að fara leynt, og þau fáu afrit, sem til voru af samningnum, voru í vörzlu stjórnarráðsins. Var það skýrt tekið fram, að þetta væri trúnaðarmál og ekki til opinberrar birtingar. Nú vill svo til, að í blaði kommúnista hér í bænum er samningur þessi birtur, að nokkru leyti orðréttur, og notaður til árása á pólitíska andstæðinga. Það er ekki vitanlegt, að ríkisstj. hafi höfðað mál út af þessu, og virðist þó, að ef ástæða hefði verið til að höfða mál út af vasabókarslitrum hæstv. fjmrh., hefði verið ennþá meiri ástæða til að höfða mál út af birtingu þessa samnings við erlenda þjóð.
Ég hefi nefnt þessi 3 dæmi til samanburðar til að sýna það og sanna, að ríkisstj. hefir ekki verið óhlutdræg í meðferð ákæruvaldsins hin síðustu ár. Þeir, sem birtu nokkur atriði úr hinni ómerkilegu vasabók fjmrh., eru ákærðir fyrir landráð, en þeir menn, sem hafa rofið sitt trúnaðar- og þagnarheit og birt samninga við erlend ríki, sem leynt áttu að fara, eru ekki lögsóttir af ríkisstj.
Til þess að nefna nokkur dæmi enn til sönnunar því, að ákæruvaldinu hafi verið misbeitt, skal ég nefna mál þess manns, sem nú er forstjóri sundhallarinnar hér í Reykjavík. Um málshöfðun og rannsókn á hendur honum skal ég ekkert segja, en nýlega hefir verið felldur dómur í máli hans, þar sem hann er sýknaður af öllum ákærum fyrir fjársvik, en dæmdur fyrir óreglu í bókhaldi. Mér dettur ekki í hug að áfellast ákæruvaldið fyrir að höfða mál út af þessu, en hitt verður að teljast stórvítavert, að á meðan þetta mál er í rannsókn, heldur eitt blað hér í bænum uppi harðvítugum árásum á þennan mann og ásakar hann fyrir fjárdrátt og allskonar fjársvik í sambandi við þetta gjaldþrot. Og það mun vera upplýst mál, að þetta blað hafi, á meðan rannsókn stóð yfir í málinu, fengið öll skjöl málsins að láni úr dómsmrn. sjálfu, til þess að birta það, sem þessum manni mátti til lasts segja og snúa út úr og leggja til verri vegar. Ég verð að telja þetta, ef rétt er, sem ég tel nokkurnveginn víst, hina freklegustu misbeiting ákæruvaldsins í pólitískum tilgangi.
Þá skal ég enn nefna eitt dæmi máli mínu til frekari stuðnings. Á fundi, sem haldinn var 9. nóv. 1935, að tilstilli flokks þjóðernissinna, varð uppþot, sem stafaði af því, að andstæðingar fundarboðenda, sósíalistar og kommúnistar, kröfðust þess að fá að taka til máls, en vegna þess að því var neitað, þar eð ræðumenn höfðu verið fyrirfram ákveðnir, urðu úr þessu handalögmál og ryskingar, og þeir, sem kröfðust að taka til máls, réðust upp á ræðupallinn. Af þessu uppþoti hlutu margir meiðsli, og að því mér hefir verið tjáð, fór fram lögreglurannsókn út af þessu. Það kom fram kæra frá fundarboðendum á hendur uppþotsmönnum, en það brá svo við, að dómsmrn. mun ekki hafa séð ástæðu til að höfða mál út af þeim meiðslum, sem þarna voru framin; af hvaða ástæðu það var, skal ég láta ósagt, en ég vona, að hæstv. dómsmrh. upplýsi það í sinni næstu ræðu; en það urðu nokkrar eftirhreytur þessa máls. Á einn af þeim mönnum, sem þarna voru og hafði krafizt þess að fá orðið, en ekki fengið, Guðjón Baldvinsson, var ráðizt á götu nokkru síðar og hann meiddur. Út af þessu var höfðað mál, eins og réttmætt var, og þeir saksóttir og dæmdir til refsingar, sem á hann réðust. En til samanburðar þessu má geta þess, að tveir piltar, sem telja sig til flokks kommúnista, réðust á mann úr Sjálfstæðisflokknum, kennara einn héðan úr bænum. Síðan þetta gerðist, 22. júlí 1936, skilst mér, að ekki hafi verið gert hið minnsta til þess að höfða mál. Þessi maður hefir þó hvað eftir annað reynt að reka á eftir þessu máli. — Hvernig stendur á því, að þegar götuárás er gerð á tvo menn, þá eru aðrir árásarmennirnir saksóttir með hinum mesta flýti, en hinir látnir ganga lausir hálft árið, án þess að ákæruvaldið hreyfi hönd eða fót til þess að höfða mál? Ég býst við, að það séu einhver pólitísk tillit, sem þarna ráði. — Ég vil loks nefna eitt dæmi enn til þess að sanna það, að ákæruvaldinu hafi verið misbeitt, því að það er hægt að misbeita því á tvo vegu, annaðhvort með því að höfða mál, þegar engin ástæða er til, og það hefir oft verið gert, þegar pólitískir andstæðingar hafa átt í hlut, hin aðferðin er sú að láta saksókn gegn mönnum niður falla. Ég hygg að dæmi sé til þess, að saksókn gegn pólitískum samherjum hafi verið látin niður falla, þó að full ástæða hafi verið til málshöfðunar. — Ég vil að lokum nefna það dæmi, að þegar bílstjóraverkfallið stóð yfir í árslok 1935, mun áfengisverzluninni hafa verið lokað um nokkurt skeið. Sá orðrómur kom upp, að þá væri samt sem áður selt áfengi í áfengisverzluninni að tilhlutun eða a. m. k. með samþykki áfengisverzlunarforstjórans. Þetta komst svo langt, að áfengisvarnarnefndin hér í Reykjavík sendi kæru í málinu, en það er ekki vitað, að ákæruvaldið hafi gert neitt í þessu máli. Hvers vegna? Ég vil láta hæstv. dómsmrh. svara því, hvers vegna þetta mál var ekki látið ganga fram.
Ég hefi nú nefnt nokkur dæmi, bæði frá fortíðinni og síðustu árum, um það, að ákæruvaldinu hafi verið misbeitt. Ég þykist hafa sýnt fram á, að hæstv. núverandi dómsmrh. þurfi ekki að draga neinn helgihjúp yfir sig, því þó að hann ekki fyllilega feti í fótspor fyrirrennara síns, þá hefir hann vissulega í ýmsum tilfellum misbeitt ákæruvaldinu í pólitískum tilgangi.
Ég skal svo að lokum nefna það dæmi, sem minnzt er á í grg. þessa frv. og einkum kom við kaun hæstv. ráðh., því að bæði hæstv. dómsmrh. og hæstv. atvmrh. þurftu að standa upp til þess að gera sínar aths. út af því, en það er kæran á hendur bæjarstjórnunum á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Að því er þetta síðara mál snertir sagði hæstv. dómsmrh., að kæran hefði ekki komizt til hans, hann hefði enga rannsókn fyrirskipað í þessu tilfelli; það væri hæstv. atvmrh., sem bæri fulla ábyrgð á þessu, hann hefði með þessi mál að gera. — Þetta er að nokkru leyti rétt, en ekki nema hálfur sannleikur. Ég virði hæstv. dómsmrh. það til vorkunnar, þó að hann vilji hlaupast á bak við lagsmann sinn, hæstv. atvmrh., því að það er mannlegt, en ekki hermannlegt, en ég verð að segja það, að hæstv. atvmrh. virðist hafa æðinóg á sinni könnu, þó að ekki bætist það við, að hæstv. dómsmrh. fari að vísa á hann.
Að því er snertir kæruna á hendur bæjarstjórninni á Ísafirði, þá er það rétt, að kæran frá bæjarstjóra Ísafjarðarkaupstaðar, hv. þm. N.-Ísf., var stíluð til atvmrn., en áður en lengra er haldið, vil ég sérstaklega út af ummælum hæstv. atvmrh., skýra frá þeim helztu kæruatriðum, sem þar komu fram. Meiri hluti bæjarstjórnar Ísafjarðar, sem var skipaður af sósíalistum, og bæjarstjórinn, Ingólfur Jónsson, voru kærðir fyrir aðallega fjórar sakir, og ég skal lesa upp þessi fjögur kæruatriði:
„1) Forseti bæjarstjórnar, Finnur Jónsson, ásamt fleirum bæjarfulltrúum meiri hlutans greiða hvað eftir annað atkvæði um mál og ráða úrslitum mála í hafnarnefnd og bæjarstjórn í málum, sem snerta eigin hagsmuni þeirra, gegn hagsmunamálum bæjarsjóðs. ...
2) Knýja með eigin atkvæðum fram lánveitingu, skuldafresti og vaxtaeftirgjafir til félags, sem þeir ásamt fleirum bera persónulega ábyrgð á.
3) Taka í algerðu heimildarleysi meiri veðrétt sjálfum sér til handa en þeir með eigin atkvæðum í bæjarstjórn höfðu knúið fram og brjóta þar með samþykki bæjarstjórnar til eigin hagsmuna.
4) Gera ráðstafanir til þess að draga út innborgað fé í félagi, sem bæjarsjóður stendur í mjög stórri ábyrgð fyrir, og taka veðrétt til tryggingar þeirri greiðslu í eignum félagsins, en fá með eigin atkvæðum lán hjá hafnarsjóði á sama tíma, en gefa hafnarsjóði veð fyrir því láni á eftir veði til sjálfra þeirra. Þegar þetta er framkvæmt er mönnum vitanlegt, að félagið á ekki fyrir skuldum.“
Mér finnst þessi kæruatriði það alvarleg, að fullkomin ástaða hafi verið fyrir stjórnarráðið að taka þetta mál til gaumgæfilegrar athugunar. Út af því, sem hæstv. dómsmrh. sagði, að hann hafi ekkert haft með þetta mál að gera, þá vil ég segja, að það á auðvitað að vera skylda ákæruvaldsins, að sinna ekki aðeins þeim bréflegu kærum, sem til dómsmrn. koma, heldur á það einnig í hvert skipti að hefjast handa og fyrirskipa rannsókn, ef það verður áskynja um það, að afbrot hafi verið framið. Þarna lá fyrir skrifleg kæra, svo að það er ekki vafi á því, að hæstv. dómsmrh. og hæstv. atvmrh. hafa rætt þessi kæruatriði í sameiningu, og hæstv. dómsmrh. hlýtur að hafa verið kunnugt um, að þessi kæra kom fram, vegna þess að þetta kom líka fram í opinberum blöðum. Það er því rangt hjá hæstv. dómsmrh. að koma sér hjá ábyrgðinni á því, að þetta mál hafi verið þaggað niður, af því að kæran hafi verið stíluð til atvmrh. — Að þessu athuguðu vil ég mótmæla þeim ummælum, sem komið hafa fram hjá ýmsum ræðumönnum, að skotið hafi verið yfir mark með því að nefna þetta Ísafjarðarmál í grg. frv., því að þótt kæran hafi verið stíluð til atvmrh., þá leyfi ég mér að benda á það, að refsivöndur ákæruvaldsins hefir verið látinn hvíla, af því að pólitískir samherjar áttu í hlut.
Vestmannaeyjamálið mun ég ekki fara út í, það munu aðrir verða til þess, en í grg. frv. tók ég þetta dæmi af Ísafjarðarmálinu til þess að sýna, að þarna hefir tveimur aðiljum á hlutaðeigandi stöðum verið mismunað af hendi stj.
Ég mun ekki hafa þessi orð mikið fleiri að sinni. Ég hefi sýnt fram á það í upphafi ræðu minnar og oft áður, að það er ástæðulaust að fresta þessu máli. Sá dráttur, sem þegar er orðinn á því, verður ekki réttlættur með neinu öðru af hendi stjórnarflokkanna en því, að þessir flokkar, sem fyrir kosningar þóttust telja sig fylgjandi skipun opinbers ákæranda, séu nú orðnir daufir og áhugalausir fyrir þessu máli, vegna þess að þeir hafi sjálfir ákæruvaldið í sínum höndum. Ég hefi ennfremur sýnt fram á með glöggum dæmum, að ákæruvaldinu hafi verið misbeitt af pólitískum ástæðum bæði fyrr og í stjórnartíð núverandi stj. Ef að vanda lætur, býst ég við, að þessum ásökunum verði svarað á þá leið, að hæstv. dómsmrh. og fylgismenn hans reyni að benda á dæmi, þar sem samherjar okkar sjálfstæðismanna hafi misbeitt ákæruvaldinu, og það er atriði, sem má athuga, þegar það kemur fram, en ef þessir menn álíta, að þetta sé rétt, þá er það ekki til að afsanna minn málstað, heldur sýnir, að það er nauðsynlegt, að taka ákæruvaldið úr höndum pólitísks ráðh. Allir pólitískir flokkar virðast vera sammála um það, að ákæruvaldinu hafi verið misbeitt í pólitískum tilgangi, en eru ósammála um það, í hvaða tilfellum það hafi verið gert. Hvers vegna á ekki að fela þetta vald óháðum manni, sem standi utan við stjórnmálabaráttuna?