14.04.1937
Efri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (1340)
51. mál, skemmtanaskattur
*Jón Baldvinsson:
Fyrst farið er að hrófla við 1. um skemmtanaskatt og undanþiggja frekar en gert er í l. frá 1918 og 1922, þá finnst mér, að fleira geti komið til greina en þessi eina undanþága með héraðsmót ungmennasambandanna. Mér finnst þau ekki eiga að vera neitt rétthærri en ýms annar félagsskapur, sem líkt stendur á fyrir, og hefir mér dottið í hug að bera fram brtt. við þetta frv. og gera samkomur verkalýðsfélaganna jafnréttháar. Það er kunnugt, að þau halda einstöku sinnum skemmtanir fyrir meðlimi sína, og þær verða vitanlega að vera ódýrar, því menn hafa ekki ráð á að borga háan inngangseyri.
Mér finnst, að ef á að fara að ívilna sumum félögum frekar en gert er í l. frá 1922 þá eigi verkalýðsfélögin einnig að koma þar til greina. Ég vil því leyfa mér að leggja fram skrifl. brtt. í þessa átt, þannig, að aftan við 1. gr. bætist: „eða samkomur verklýðsfélaga“.
Ég vil svo leyfa mér að leggja þessa brtt. fyrir hæstv. forseta, en hún er svo einföld, að ekki þarf um hana langa umr.