20.03.1937
Neðri deild: 23. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í C-deild Alþingistíðinda. (1351)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

forseti (JörB):

Það hafa borizt óskir af hálfu Alþfl. um að viðhafa útvarpsumræður á mánudag um frv. til l. um skiptameðferð á búi hlutafélagsins Kveldúlfs í Reykjavík, en þar sem tilmælin um útvarpsumræður hafa ekki komið fram fyrr en það seint, að ekki hefir verið hægt að leita samþykkis hinna þingflokkanna nógu snemma, þá geri ég ekki ráð fyrir, að hægt verði að hafa þessar útvarpsumræður fyrr en á þriðjudaginn, en samt sem áður vil ég ekki fullyrða neitt um þetta.