24.03.1937
Neðri deild: 26. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í C-deild Alþingistíðinda. (1371)
82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Með frv. því um skiptameðferð á búi h. f. Kveldúlfs, sem hér liggur fyrir til umr., er lagt til, að gengið verði inn á nýja, áður óþekkta braut í löggjafarstarfsemi. Samkvæmt því á Alþingi að gefa fulltrúum, sem það ákveður, hvernig skuli kosnir, vald til þess að dæma um, hvort ákveðið fyrirtæki eigi fyrir skuldum eða ekki, og ef fyrirtækið dæmist að eiga fyrir skuldum samkvæmt skyndimati ákveður Alþingi, að það skuli tafarlaust tekið til gjaldþrotaskipta.
Ég skal strax taka það fram, að Framsfl. álítur stórhættulegt fordæmi í því, að Alþingi taki sér vald til að dæma um verðmæti eigna einstakra manna og fyrirtækja, jafnvel þótt sérstökum aðiljum sé framselt valdið. Slíkt fordæmi gæti mjög auðveldlega, að Framsfl. áliti, opnað leið fyrir fleiri slíkum málum hér á Alþingi. Er óvandur eftirleikurinn í því efni. Íhaldið mundi t. d. ekki verða í vandræðum með að rökstyðja með slíku fordæmi ráðstafanir sínar til þess að koma á kné þeim fyrirtækjum, sem ekki fyndu náð fyrir þess augum, ef það kynni einhverntíma að komast í meirihlutaaðstöðu á Alþingi ásamt sínum fylgifiskum. Væri auðvelt að skipa hlutdræga menn til að rannsaka og framkvæma „skyndimat“ á fjárhag fyrirtækja, sem valdaflokkum eru þyrnir í augum, og leysa þau síðan upp með úrskurði þessara aðilja. Þá er einnig mjög vafasamt, að ákveða skilyrðislaust með lögum, að ákveðið fyrirtæki skuli tekið til skiptameðferðar, jafnvel þótt það teljist ekki eiga fyrir skuldum á einhverju tilteknu augnabliki, miðað við skyndisölu eigna. Það getur verið hagkvæmt fyrir lánardrottna að fresta uppgjöri um skeið, ef boðin eru sérstök kjör, og til þess eru mýmörg dæmi, að svo hefir verið gert. Ennfremur fæ ég ekki betur séð en að ákvæði þessa frv. séu miðuð við það, að lánsstofnanirnar geti ekki tekið til greina innskotsfé eða nein önnur verðmæti, sem lögð væru fram til fyrirtækisins, sem frv. fjallar um, heldur skuli það tekið til skiptauppgjörs, hvað sem öllu slíku líði.
Framsfl. lítur svo á, að skuldamáli Kveldúlfs beri fyrst og fremst að ráða til lykta í bönkunum, eins og öðrum slíkum málum. Framsfl. hefir þá skoðun, að það verði fyrst og fremst að skipa yfirstjórn bankanna svo hæfum mönnum, að þeir reynist á hverjum tíma færir um að leysa þau viðskiptalegu vandamál, sem að höndum ber, á heilbrigðum grundvelli. Ef forráðamenn bankanna hinsvegar tækju eða ætluðu að taka þær úrlausnir í málum, sem Alþingi og meiri hluti þjóðarinnar ekki gæti sætt sig við, þá yrði að gera ráðstafanir til þess að hafa áhrif á úrlausn málanna með nýju vali trúnaðarmanna Alþingis í bönkum, — trúnaðarmanna, sem trúandi væri til þess að ráða fram úr málunum eftir réttum, fjármálalegum rökum.
Eins og ég hefi nú lýst, er aðalatriði þessa frv., að Alþingi taki fram fyrir hendur bankanna í skuldamálum Kveldúlfs. Hafa menn gert sér ljósa þá ábyrgð, sem slíkri ráðstöfun fylgir? Hver ber ábyrgð á meðferð þrotabúsins undir þeim kringumstæðum? Ekki geta bankarnir gert það, þar sem þeir yrðu að hlíta fyrirsögn Alþingis um meðferð málsins. Ef frv. þetta yrði samþ., hvíldi ábyrgðin á framhaldsrekstri togaranna á Alþingi — á ríkinu. Í frv. er að vísu gert ráð fyrir því, að rekstrarlán til fyrirtækisins, á meðan á uppgjöri stæði, yrðu forgangskröfur — kæmu til greiðslu á undan kröfum núverandi lánardrottna, m. ö. o. að fyrirtækið yrði rekið á ábyrgð bankanna óákveðinn tíma. En geta menn yfirleitt gengið út frá því, að slíkt geti staðizt, þegar ákvörðunarrétturinn um það, hvort ganga skuli að fyrirtækinu eða ekki, er tekinn af bönkunum með lögum? Allt öðru máli væri að gegna, ef bankarnir gengju að, eins og venja er til. Sá aðili verður vitanlega að taka afleiðingunum, sem gerir ákvörðunina. Ef sú aðferð yrði notuð í skuldamálum Kveldúlfs, sem í frv. er ráðgerð, sé ég ekki annað en að ríkið — Alþingi — yrði að taka á sig ábyrgðina á meðferð og rekstri búsins.
Niðurstaðan af þessum aths. mínum við frv. það, sem hér liggur fyrir til umræðu, er sú, að Framsfl. er mótfallinn þessu frv. og mun ekki ljá því fylgi sitt. Fjármálabrögð Kveldúlfs verður að stöðva eftir bankaleiðum, eins og Framsfl. hefir lagt grundvöll að og bráðlega verður að vikið. Það mál verður að leysa þannig, að hvorstveggja sé gætt, hagsmuna bankanna, sem eru alþjóðareign, og þeirrar þjóðarnauðsynjar, sem á því er, að stöðva eyðslu og undandrátt Kveldúlfs á kostnað þjóðarinnar.
Ég verð að biðja hæstv. forseta að afsaka, þótt ég taki þessu næst þann kost nú við 1. umr. frv., að tala nokkuð almennt um það, sem í daglegu tali er kallað „Kveldúlfsmál“. Það verður ekki hjá því komizt, að gera því máli skil við meðferð þessa frv., er hér liggur fyrir til umr. Framsfl. hefir mjög eindregið gagnrýnt framkomu þeirra, sem standa að h. f. Kveldúlfi. Hefir hvað eftir annað verið sýnt fram á það í blöðum flokksins, að jafnhliða því, að skuldir hlóðust á fyrirtækið, hafa út úr því verið dregnar stóreignir á nafn Thors Jensens. Jafnframt hefir kostnaður við yfirstjórn félagsins verið úr hófi fram, skuldirnar hlaðizt upp og fyrirtækið eigi reynzt megnugt að standa í skilum við bankana. Ennfremur hefir fyrirtækið lánað eigendum sínum, sem eru Thorsbræður, stórfé til persónulegrar eyðslu og til að byggja fyrir dýr hús. Þetta fé hefir verið lánað út úr fyrirtækinu trygginga- og vaxtalaust. Einnig hefir sú stefna bankanna, að halda áfram að lána þessu fyrirtæki, án þess að ráðstafanir væru gerðar til þess að fyrirbyggja slíka meðferð félagsins á lánsfénu, verið gagnrýnd í blöðum Framsfl. Hefir þessari gagnrýni verið fylgt fast eftir, sérstaklega síðasta ár, og má segja, að hún hafi náð hámarki sínu með grein eftir formann flokksins, Jónas Jónsson, sem hann ritaði í flokksblöðin, er hann nefndi: „Hingað og ekki lengra“.
Þetta ástand varð ekki lengur þolað. Kveldúlfssukkið varð að stöðva, og bankarnir að knýja fram, að fyrirtækið gerði hreint fyrir sínum dyrum og sætti sömu meðferð og aðrir, er lán fá hjá bönkunum. Stjórnarflokkarnir hafa að vísu verið í minni hluta í bankaráði Landsbankans síðan árið 1934, að bændaflokksmennirnir, sem kosnir voru í bankanefndina með atkv. Framsfl., notuðu klækibrögð til þess að sölsa undir sig oddaatkvæðið í bankaráðinu. En jafnvel þótt svona stæði á, þá hefir Framsfl. verið ljós ábyrgð sín á úrslitum Kveldúlfsmálsins, þar sem flokkurinn er í stjórnaraðstöðu. Landsbankinn er þjóðbanki, og Alþingi hefir í raun og veru yfirstjórn hans í sínum höndum með milligöngu kjörinna fulltrúa. Fulltrúi Framsfl. í bankaráðinu og fulltrúi fjmrn. þar, form., sem skipaður er af mér, hafa líka haft opin augun fyrir þessu máli, og var það tekið til sérstakrar meðferðar í haust af bankaráðsformanninum, Jóni Árnasyni. Lýsti hann þá yfir því, að hann teldi ekki geta komið til mála að lána Kveldúlfi áfram, nema einhverjar stórfelldar ráðstafanir yrðu gerðar til bóta í viðskiptum félagsins, og studdist þessi skoðun formannsins við skýrslu um efnahag og rekstur fyrirtækisins, sem hann lagði fram í bankanum. Áður hafði Jón Árnason mjög oft vakið athygli á viðskiptum Kveldúlfs innan bankaráðsins og gert ítrekaðar tilraunir til þess að hafa heilbrigð áhrif á viðskipti bankans við þetta fyrirtæki, og síðast í ársbyrjun 1936 með því að koma fram þeirri samþykkt í bankaráði Landsbankans, að Kveldúlfi skyldi eigi lánað neitt nema til rekstrarins gegn veði í afla. Um svipað leyti og Jón Árnason gaf Landsbankanum sína skýrslu, ákvað fulltrúaráð Útvegsbankans að krefjast trygginga frá Kveldúlfi fyrir skuldum hans við bankann eða greiðslu skuldarinnar að öðrum kosti.
Ég hefi fylgzt með skuldamálum Kveldúlfs undanfarið. Ég hefi talið það skyldu mína, þar sem um jafnstórt mál var að ræða fyrir bankana, ekki sízt þjóðbankann. Það hefir legið fyrir, og verið kunnugt þeim, sem mest eiga hlut að máli, að ef skuldamál Kveldúlfs fengju ekki þá afgreiðslu í þjóðbankanum, sem ríkisstjórnin teldi hæfilega, þá myndi það af hennar hálfu ekki látið afskiptalaust.
Thorsbræður hafa alltaf tekið með mikilli frekju undir alla þá gagnrýni, sem haldið hefir verið uppi gegn Kveldúlfi í blöðum Framsfl. Hafa þeir haldið því fram, að ekkert væri athugavert við rekstur fyrirtækisins eða framkomu sína í viðskiptum við bankana og slegið því föstu, að þessi gagnrýni væri aðeins pólitísk ofsókn. En eftir að Thorsbræður fundu það, að nú átti að taka þetta mál föstum tökum innan bankanna, treystu þeir sér sýnilega ekki til þess að skella með öllu skolleyrunum við kröfum þeirra um að þeir stæðu í skilum. En löngu eftir að málið var komið á skrið innan lánsstofnanauna, var því haldið hiklaust fram af þeim bræðrum, að allt væri málið tilkomið vegna pólitískra ofsókna og að viðskipti þeirra við bankana væru ekkert athugaverð. Gengu þeir jafnvel svo langt að halda því fram, að Kveldúlfur ætti miklu meira en fyrir skuldum, og Morgunblaðið taldi hann bezt stæða fyrirtækið í landinu! Jafnvel löngu eftir að málið hafði verið tekið fyrir á hreinum bankagrundvelli, gekk formaður „Sjálfstæðisflokksins“, Ólafur Thors, svo langt að halda um málið æsingafund innan flokks síns, þar sem hann skoraði á „Sjálfstæðisflokkinn“ að nota flokksaðstöðu sína og vald til þess að veita „viðnám“ gegn réttmætum kröfum bankanna á hendur félaginu.
Svo kom þó, að Thorsbræður treystust ekki til að sitja auðum höndum. Þóttust þeir þá ætla að gera bönkunum tilboð til úrlausnar í málinu, tilboðið, sem nú er þegar orðið frægt að endemum um land allt. Þeir þóttust ætla að leysa vanskilamál Kveldúlfs h. f. með því að selja Landsbankanum jarðeignir Thors Jensens í Mosfellssveit með áhöldum og áhöfn fyrir 2 millj. og 50 þús. kr. Kveldúlfur átti að fá þessar eignir frá Thor Jensen fyrir áhvílandi skuldir, kr. 350 þús., og allar útistandandi skuldir Kveldúlfs, að nafnverði ca. kr. 900 þús., eða samtals fyrir ca. 1250 þús. kr. að nafnverði, en mismunurinn á kaupverði Kveldúlfs á jarðeignum og þeim 2 millj. kr., sem Landsbankinn átti að gefa fyrir eignirnar, eða ca. 800 þús. kr. átti að ganga til að lækka skuldir Kveldúlfs við bankann. Landsbankinn fékk 2 menn til þess að meta eignir þessar, þá Steingrím Steinþórsson, búnaðarmstj., og Pálma Einarsson, ráðun. Steingr. mat eignirnar á 948 þús., þó með þeim fyrirvara, að mjólkurverðið héldist óbreytt, en Pálmi Einarsson mat þær á rúmlega 1,7 millj. Samkvæmt þessu mati P. E. ætti ekki að vera örðugt að búa í Mosfellssveitinni — ekki eins örðugt og sumir flokksbræður P. E. vilja vera láta. Hver maður, sem nokkuð þekkir til, getur nú sagt sér það sjálfur, að mat Pálma Einarssonar nær engri átt, og að hitt mun sanni nær, að mat Steingríms búnaðarmálastjóra sé nálægt því rétta, og þýddi því þetta tilboð Thorsbræðra til Landsbankans sama sem rúml. einnar millj. kr. eftirgjöf á skuldum Kveldúlfs h. f.
Þetta var tilboðið, sem Thorsbræður vildu fá „Sjálfstfl.“ til að fylgja eftir, en veita viðnám gegn öllum öðrum kröfum bankanna, þar sem allar aths. um vanskil og óhæfilega fármeðferð þeirra bræðra væru af pólitískum toga spunnar. Sýnir þetta mætavel, hverskonar aðferðir yrðu viðhafðar til þess að gefa Kveldúlfi eftir skuldirnar, ef „Sjálfstæðisfl.“ mætti ráða undir handleiðslu Kveldúlfsmanna. Enda þarf ekki að leita raka í þetta fræga tilboð til þess að sannfærast um, hvað „Sjálfstæðisflokkurinn“ vildi gera í Kveldúlfsmálinu. Það þarf ekki annað en að kynna sér frv. til laga um skuldaskil útgerðarmanna, sem „Sjálfstæðisflokkurinn“ bar fram hér á Alþingi á sínum tíma, þar sem gert er ráð fyrir, að stórútgerðinni yrðu gefnar eftir skuldir í stórum stíl, og þá vitanlega Kveldúlfi ekki síður en öðrum. Það liggur því alveg ljóst fyrir, að ef „Sjálfstæðisflokkurinn“ hefði meirihlutaaðstöðu á Alþingi, og það þótt einhver hluti hans kynni að kalla sig „Bændaflokk“!, myndi sú aðstaða verða miskunnarlaust notuð til þess að gefa Kveldúlfi eftir stórfé af skuldum sínum á kostnað almennings, annaðhvort beinlínis eða óbeinlínis, með því að láta þjóðbankann kaupa eignir Thorsbræðra langt yfir sannvirði, eins og tilboðið um jarðakaupin hefir gefið vísbendingu um. „Sjálfstæðisflokkinn“ hefði áreiðanlega ekki klígjað við slíkri eftirgjöf til Kveldúlfs, á sama tíma og fjölskyldan, sem að honum stendur, hefði setið með stóreignir skuldalausar, sem dregnar hafa verið út úr fyrirtækinu áður en versna tók í ári. Því dæmalausa tilboði Kveldúlfsmanna, sem lýst hefir verið hér að framan, var auðvitað gersamlega hafnað, þótt hinsvegar enginn efist um, hvað orðið hefði, ef flokkur Ólafs Thors hefði ráðið yfir bankamálunum.
Þegar hér var komið málinu, munu Thorsbræður hafa verið farnir að sjá, að fast myndi verða tekið á málunum og engin tylliboð tekin til greina. Fyrirtækið myndi verða gert upp, hvað sem öllum slíkum tylliboðum liði. Thorsbræður munu og hafa verið farnir að gera sér grein fyrir því, að þeir myndu ekki hljóta neina sérstaka samúð landsmanna, þótt þannig yrði á málunum tekið eftir málavöxtum, ekki sízt þar sem sannað var, að þeir höfðu dregið stórfé út úr fyrirtækinu til föður síns, meðan sæmilega gekk, en látið tapskuldirnar aftur safnast fyrir hjá bönkunum, þegar versna tók í ári. Framkomu þeirra bræðra mætti helzt líkja við síldarútgerðarmann, sem hefði gefið konu sinni eða föður allan gróða góðu áranna, jafnótt og hann féll til, en látið tapið síðan skella á lánardrottnunum. Slík aðferð er orðin of kunn og gagnrýnd til þess að hljóta samúð þjóðarinnar.
Eftir að málinu var þannig komið, gerðu Thorsbræður bönkunum annað tilboð. Bar það tilboð með sér, að þeim bræðrum var nú fullkunnugt, að ekki dygði annað en tjalda því, sem til væri, til þess að lagfæra fjárreiður fyrirtækisins og hag þess gagnvart lánsstofnunum, ef fyrirtækið ætti ekki að vera tekið til gjaldþrotaskipta þegar í stað. Þeir buðust því til að skila sem veðum til bankanna meginhlutanum af þeim eignum, sem dregnar höfðu verið út úr fyrirtækinu til Thors Jensens. Á móti þessu vildu þeir fá rekstrarlán og nokkurt stofnkostnaðarlán til síldarverksmiðju, er þeir hyggjast að reisa á Hjalteyri við Eyjafjörð, og höfðu þeir fengið leyfi til þeirrar byggingar hjá atvmrh., samkvæmt einróma meðmælum stjórnar síldarbræðslna ríkisins. Jafnframt vildu þeir fá lægri vexti af sínum eldri skuldum en áður höfðu verið reiknaðir.
Þetta tilboð var tekið til yfirvegunar af Landsbanka Íslands. Var mér um það vel kunnugt og fylgdist, fyrir milligöngu bankaráðsformannsins, með öllum gangi málsins. Eftir að þetta tilboð hafði verið nákvæmlega athugað, setti Landsbankinn Kveldúlfi h. f. úrslitakosti um viðskipti við bankann, og voru þeir í aðalatriðunum þessir:
a) Kveldúlfur h. f. skyldi veðsetja allar eigur sínar, fastar og lausar, fyrir skuldum sínum við bankana.
b) Thorsbræður og aðrir skuldunautar Kveldúlfs skyldu veðsetja fyrirtækinu eða bönkunum eignir sínar til tryggingar skuldum sínum við félagið.
c) Thor Jensen skyldi veðsetja bönkunum til tryggingar greiðslu á skuldum Kveldúlfs h. f. eftirtaldar eignir, sem munu vera allar fasteignir Thors Jensens og meginhluti lausafjár hans:
1) Allar jarðeignir Thors Jensens í Mosfellssveit með húsum, áhöldum og áhöfn.
2) Allar jarðeignir hans á Snæfellsnesi, Melshús á Seltjarnarnesi, lóðir í Reykjavík og Hafnarfirði, Haffjarðará með 4 húsum og íbúðarhús með lóð við Fríkirkjuveg 11 í Reykjavík.
Á þessum eignum mega þó hvíla á undan veði bankanna 350 þús. kr.
d) Að tveir sérstakir trúnaðarmenn frá Landsbanka Íslands hafi eftirlit með rekstri félagsins og hafi frjálsan aðgang að bókum þess og skjölum.
e) Að dregið verði úr öllum rekstrarkostnaði fyrirtækisins svo sem unnt er, m. a. með því, að framkvæmdastjórum sé fækkað í tvo.
f) Að engar fasteignir eða skip megi selja né kaupa nema með samþykki bankanna. Gegn þessum skilyrðum myndi Landsbankinn veita félaginu rekstrarlán á þessu ári, eftir því sem hann teldi hæfilegt, gegn veði í framleiðsluvörum, og ennfremur lána 100–150 þús. kr. til greiðslu á vinnulaunum vegna byggingar síldarbræðsluverksmiðju á Hjalteyri, og sé lánið tryggt með 2. veðrétti. Félaginu heimilast að veðsetja Hjalteyrina með bræðsluverksmiðjunni með 1. veðrétti fyrir allt að £ 40.000–0–0–láni, sem félagið hefir tekið erlendis til að reisa verksmiðjuna, og veðsetja hana með 3. veðrétti til Willam Deacon's Bank, London, fyrir gömlum skuldum, að fjárhæð ca. 460.000 kr., enda fái bankinn þá ekki önnur veð fyrir þeirri skuld til viðbótar veði því, sem hann hefir haft í togaranum Agli Skallagrímssyni, síðan það skip var keypt.
Þetta voru þeir kostir sem bankaráð Landsbanka Íslands ákvað að setja Kveldúlfi h. f. fyrir því, að áframhaldandi viðskipti við bankann gætu átt sér stað um eitt ár, ella lá ekki annað fyrir en að taka fyrirtækið þegar til gjaldþrotaskipta. Útvegsbankinn hefir einnig fyrir sitt leyti fallizt á þessa lausn.
Ég hefi minnzt á það hér að framan, að ríkisstjórnin hafði ótvírætt látið það í veðri vaka, að hún teldi sér ekki óviðkomandi, hvernig skuldamál Kveldúlfs h/f yrðu leyst, og ennfremur, að ég hafi fylgzt með skuldamálum þessum í bönkunum undanfarið. Þegar uppkastið lá fyrir að þeim úrslitakostum, sem ég nú hefi lýst, bar mér að taka ákvörðun um það, hvort ég vildi una við þessa lausn málsins eða neyta valds míns til þess að skjóta málinu til landsbankanefndarinnar, ef vera kynni, að hún liti öðrum augum á þetta en bankaráð Landsbankans, eða gera aðrar ráðstafanir til þess að hindra þessa lausn málsins. Eftir að hafa athugað þetta mál gaumgæfilega og borið mig saman við þingflokk framsóknarmanna og miðstjórn flokksins, ákvað ég að gera ekki tilraun til þess að hefta framgang málsins á þessum grundvelli og taka þar með á mig meðábyrgð á því, að þessi leið var valin í málinu. Mun ég nú færa nokkur rök fyrir því, að mér sýndist alveg einsætt að taka þann kost, er ég valdi.
Aðalatriðin í úrslitakostum bankans til Kveldúlfs h. f. eru hin nýju veð, sem sett skulu fyrir eldri skuldunum. Um það verður ekki deilt, eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið frá bönkunum og öllum, sem vel þekkja til, að þær eignir, sem þarna eru lagðar fram til veðsetningar fyrir skuldum Kveldúlfs h. f. væri ekki hægt að taka upp í skuldir Kveldúlfs, þótt hann yrði gerður upp nú þegar. Aðalatriði þessa máls er því það, að þarna er lagt fram nýtt verðmæti til tryggingar hinum eldri skuldum félagsins. Auðvitað má nokkuð um það deila, hvers virði þessar eignir eru, sem lagðar eru fram til veðsetningar, en um það verður aldrei deilt, að á íslenzkan mælikvarða er þar um stórfé að ræða, og skal ég nú gera örstutta grein fyrir mati á þessum eignum:
Allar eignir Thors Jensens í Mosfellssveit með húsum, áhöfn og áhöldum, samkvæmt
mati Steingríms Steinþórssonar........................ 948000,00
Jarðeignir á Snæfellsnesi, samkv.
fasteignamati..................................................... 291000,00
Lóðir í Reykjavík og Hafnarfirði, ásamt bletti á Seltjarnarnesi, samkvæmt
fasteignamati..................................................... 55900,00
Haffjarðará með húsum, að áliti kunnugra
manna ca. ......................................................... 150000,00
Húseignin og lóðin nr. 11 við Fríkirkjuveg í Reykjavík, samkv.
fasteignamati..................................................... 149000,00
Alls eignir 1377000,00
Þar frá dragast áhvílandi skuldir....................... 350000,00
Yrði þá verðmæti eignanna samkv.
þessu til veðs..................................................... 1027000,00
Nú mætti segja, að verðmæti Korpúlfsstaða og annara jarðeigna í Mosfellssveit myndi lækka, ef mjólkurverð lækkaði frá því sem nú er, en á móti kemur það, að fasteignirnar í Reykjavík og Hafnarfirði munu vera meira virði en talið er hér. En hvað sem um þetta er rætt fram og aftur, verður það aldrei fjærri einni miljón króna að verðmæti, að frádregnum skuldum Thors Jensens, sem boðið er fram til veðsetningar af eignum, sem áður hafa verið út úr Kveldúlfi dregnar, en ekki næst til, þótt gengið sé að Kveldúlfi nú þegar, þar sem þær voru dregnar út úr fyrirtækinu á þeim tíma, sem ekki var um deilt, að Kveldúlfur átti fyrir skuldum.
Þá er að gera sér ljóst, hverju bankarnir hætta aftur á móti við framhald rekstrarins um eitt ár, en það er skilyrðið fyrir að ná þessum veðum.
Lánið til síldarbræðslu á Hjalteyri getur ekki talizt verulegt áhættulán, þar sem fyrir því er 2. veðréttur í bræðslunni sjálfri og Hjalteyrareigninni, og þar sem síldarbræðslustöðvar eru nú taldar einna arðvænlegust fyrirtæki hér á landi. Aðaláhættan fyrir bankana, sem ber að meta á móti veðunum, eru því rekstrarlánin til fyrirtækisins. Þá verður að aðgæta í þessu sambandi, hvort miklu meiri hætta sé á, að veita slík rekstrarlán til Kveldúlfs h. f. en að lána til annara, sem kynnu að hafa eignir Kveldúlfs í rekstri, því að vitanlega myndu bankarnir alls ekki komast hjá því að lána fé til starfrækslu eignanna, hver sem væri eigandi þeirra. Þetta getur verið deiluatriði, en því verður naumast haldið fram, að þessi mismunur geti orðið nema lítið brot af verðmæti nýju veðanna, þar sem meðal annars á að setja fullkomið eftirlit með öllum rekstri félagsins, framkvæmt af sérstökum trúnaðarmönnum, og bankinn skammtar þar að auki rekstrarféð og tekur veð í öllum afurðum.
Frá mínu sjónarmiði er nokkurnveginn sama, hvernig menn velta þessu dæmi fyrir sér. Útkoman verður á þann eina veg, að þessir úrslitakostir til félagsins verða miklum mun hagstæðari fyrir bankana heldur en það úrræði, sem sumir innan Alþfl. hafa viljað hallast að og gert er ráð fyrir í frv. því, sem fyrir liggur: Að fyrirtækið yrði gert upp nú þegar, án þess að skeyta nokkuð um þau verðmæti, sem bönkunum standa til boða. Mér er líka kunnugt um það, að meðal bankamanna, af hvaða flokki sem þeir eru, og að formanni Alþfl., sem er bankastjóri Útvegsbankans, ekki undanskildum, er enginn ágreiningur um það, að þessir kostir séu miklum mun hagkvæmari fyrir þá en uppgjör fyrirtækisins nú þegar.
Það var um tvennt að velja í þessu máli fyrir mig og Framsfl. Annarsvegar að taka afstöðu með úrslitakostum bankanna til Kveldúlfs, hinsvegar að neyða bankana með þingvaldi til þess að gera Kveldúlf upp þegar í stað, enda þótt auðsætt væri, að slíkt væri fjárhagslegt tjón fyrir bankana eins og málavextir voru. Ég var ekki í neinum vafa um, hvorn kostinn átti að taka. Ég sé ekki rökin fyrir því, að neyða bankana til að slá hendi á móti þeirri milljóninni, sem Kveldúlfsfjölskyldan hefir nú verið knúin til að skila aftur til tryggingar skuldum Kveldúlfs, neyða þá til þess að hafna eignum, sem Thorsbræður hafa réttilega verið gagnrýndir fyrir að draga út úr fyrirtækinu. Ég sé ekki rökin fyrir því, að gefa fjölskyldunni þessar eignir á kostnað lánsstofnananna, aðeins til þess að ryðja Kveldúlfi úr vegi á þessum vetri. Ég get ekki annað séð en ég hefði brugðizt þeirri skyldu minni, að gæta hags alþjóðarstofnunar í þessu máli, ef ég hefði lagt mig fram til þess að koma í veg fyrir þá lausn málsins, sem orðin er, og tekið ábyrgð á því, að Kveldúlfsmönnum væri gefin 1 millj. á kostnað þjóðarinnar. Framsfl. hefir með framkomu sinni í þessu máli þvingað Kveldúlf til að skila aftur þessum eignum og gert það mögulegt, að hann yrði settur undir öruggt eftirlit, og það mun ekki standa á flokknum að gera sitt til, að það eftirlit verði öruggt og heiðarlega framkvæmt.
Með vinnu sinni í þessu máli hefir Framsfl. byrjað á því starfi í bankamálum þjóðarinnar, sem honum var falið af nýafstöðnu flokksþingi. Því starfi mun haldið áfram og gagngerð endurskoðun framkvæmd. En þegar á þessu Alþingi mun flokkurinn beita sér fyrir lagabreytingum til þess að gera eftirgjafir skulda torveldari en nú og skapa samræmi innan yfirstjórnar þjóðbankans — á milli landsbankanefndar og bankaráðs.
Framsfl. er vanur að bera ábyrgð á lausn mála. Hann hikar ekki við að taka í hverju máli þá afstöðu, sem virðist réttust. Hann hefir enga löngun til að skjóta sér undan þeirri ábyrgð, sem á herðar hans er lögð með stjórnaraðstöðu og milliflokksafstöðu á Alþingi. Framsfl. hikar því ekki við að leggja afstöðu sína í þessu máli sem öðrum undir dóm þjóðarinnar, ef til þess kynni að koma. Hann mun aldrei vegna ótta við skilningsleysi kjósenda sinna eða vantausts á þroska þeirra kasta frá sér ábyrgð á stórmálum og reyna að koma henni yfir á aðra, til þess síðar í skjóli ábyrgðarleysis síns að gera sig góðan, eins og Alþfl. ætlar að gera í þessu máli. Af langri reynslu Framsfl. í ábyrgðarmikilli aðstöðu, er honum það ljóst, að enginn flokkur getur til lengdar verið fullábyrgur stjórnarflokkur og tekið þátt í stjórnarstörfum, nema sá, sem til fulls treystir kjósendunum að meta eftir rökum og þeirra vegna þorir að gera rétt.
Það linnir ekki árásunum á Framsfl. frá Alþfl. vegna afstöðu hans í þessu máli. Í blaði flokksins ægir saman ósannindum og aðdróttunum í garð okkar framsóknarmanna um fjárglæfra, byggðum á þessum ósannindum. Framsfl. tekur þessum árásum samstarfsflokksins með ró. Það hefir fyrr komið fyrir, að Framsfl. hefir heyrt óp andstæðinganna, bæði frá hægri og vinstri. En það hefir aldrei brugðizt, að kjósendurnir hafa haft vilja og getu til þess að meta málstað Framsfl. eftir málavöxtum, en ekki eftir gífuryrðum andstæðinganna, frá hvorri hliðinni, sem köllin hafa komið.