30.03.1937
Neðri deild: 27. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (1392)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Hér eru tveir hv. þm., sem báðir eru hluthafar í Kveldúlfi, og þó að þeir eigi í rauninni ekkert í félaginu, þá eru þeir þó framkvæmdarstjórar þess, svo að ég tel, að þetta mál skipti þá svo miklu bæði fjárhagslega og á annan hátt, að þeir eigi ekki að greiða atkv. um það samkv. þingsköpum.