19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í C-deild Alþingistíðinda. (1398)
82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs
*Frsm. minni hl. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég get tekið undir orð hv. 2. þm. Skagf., að þetta mál var svo rækilega rætt við 1. umr., að það væri að bera í bakkafullan lækinn að bæta við miklum umr. nú við 2. umr., ekki sízt þar sem þingsköp mæla svo fyrir, að við 2. umr. skuli einstakar greinar frv. ræddar, en frv. rætt almennt við 1. og 3. umr. En ég vil aðeins minnast nokkrum orðum á hina rökstuddu dagskrá, sem meiri hl. fjhn. flytur.
Eins og segir í nál. mínu hafa einstök atriði frv. ekki verið rædd í n., og ég er mótfallinn hinni rökstuddu dagskrá, en meðmæltur því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, enda var ég einn af flm. þessa frv. hér í d. Þar sem n. ræddi ekki einstök atriði frv., komu ekki fram till. til neinna breytinga á frv. sjálfu, en þótt Alþfl. vilji aðeins leysa málið á þeim grundvelli, sem frv. leggur til, hefðum við flm. getað tekið til athugunar breytingar á frv. sjálfu. Um einstakar gr. frv. skal ég ekki tala nú, en sný mér aðallega að hinni rökstuddu dagskrá, sem meiri hl. n. flytur. Sést á afstöðu meiri hl. n., að örlög þessa máls munu vera fyrir löngu ákveðin af meiri hl. á Alþ., sem sé framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum, og ræður það úrslitum þessa máls, að þeir ganga sameiginlega að því, eins og sýnt mun verða.
Höfuðröksemdirnar fyrir rökstuddu dagskránni eru tvær:
1. Að frv. sé óréttlátt vegna þess, að þar sé Alþ. að grípa fram fyrir hendurnar á bönkunum, en þeir séu nú búnir að semja við Kveldúlf um skuldaviðskipti hans. Við 1. umr. skýrðum við alþýðuflokksmenn frá því, að sýnilegt væri, að meiri hl. stjórnar aðalbanka landsins væri að gera samninga um eftirgjöf við þetta fyrirtæki, og þá væri sjálfsagt, að Alþ. tæki fram fyrir hendur bankans, af því að það áliti, að hann væri að fara inn á óheppilega braut. Það er engin fjarstæða og á engan hátt óréttlátt, að löggjafarvaldið grípi í vissum tilfellum fram fyrir hendurnar á stjórn bankanna, ef löggjafarvaldinu virðist stjórn þessara fyrirtækja ekki beita valdi sínu réttilega og á eðlilegan hátt, því að eins og ég gat um við 1. umr., þá eru bankarnir ekki annað en eitt af mörgum tækjum þjóðfélagsins til að styðja rekstur þjóðarbúskaparins, og yfir þeim stendur, sem öðrum, löggjafarvaldið. Það er fjarri lagi almennt tekið, að það sé ólögmætt, að löggjafarvaldið grípi fram fyrir hendurnar á fyrirtækjum eins og bönkunum, ef meiri hl. alþm. er þeirrar skoðunar, að bankarnir hafi ekki gert rétt. Það er ekki hægt með fullum rökum að draga í efa það almenna álit, að Alþ. eigi ekki nokkru sinni að grípa fram fyrir hendurnar á stofnunum eins og bönkunum, hvernig sem þær fara með sín mál. Slíkt væri alger fávizka og valdaafsal löggjafarvaldsins til fyrirtækja innan þjóðfélagsins. Fyrirtæki eins og bankarnir eiga að vísu að vera sjálfstæð, en ekki meira en svo, að þeir taki ekki ákvarðanir sem þessa, án þess að meiri hl. Alþ. sé sammála bönkunum um afgreiðslu málsins. En allar líkur benda raunar til þess nú, að Sjálfstfl. og Framsfl. séu bönkunum sammála um afgreiðslu þessa máls. Þeir ættu því ekki að rökstyðja ályktun sína með því, að óeðlilegt sé að grípa fram fyrir hendurnar á bönkunum, heldur með því, að bankarnir hafi hegðað sér réttilega, og því ástæðulaust fyrir löggjafann að gera annað en að staðfesta og láta í ljós ánægju sína með stjórn bankans í afgreiðslu þessa máls, og rökstudda dagskráin yrði þá á þá leið, að þessir tveir flokkar lýstu ánægju sinni yfir gerðum bankanna í þessu máli. Alþfl. er sömu skoðunar og áður, að það hafi verið óviturlegt að ganga að slíkum samningum og heldur sér fast við meginatriði þess frv., sem hann hefir flutt.
2. Önnur röksemd hinnar rökstuddu dagskrár er sú, að hlutafélagið Kveldúlfur sé búinn að fá lán erlendis til að reisa síldarbræðslustöð á Hjalteyri, og þeir, sem standa að dagskránni, virðast telja það æskilegt og eðlilegt, að Kveldúlfur reisi þessa bræðslustöð. Það er atriði út af fyrir sig, sem athuga þarf rækilega, hvort eðlilegt er að reisa stóra síldarverksmiðju á Hjalteyri. En þegar það er í orði, að ríkið reisi e. t. v. síldarverksmiðju við Eyjafjörð, álítum við að fyrirtæki, sem við teljum, að vegna síns fjármálaástands eigi engan tilverurétt, eigi ekki að reisa verksmiðju þar og halda þannig áfram að starfa með sparifé landsmanna, sem bankarnir geyma.
Í því sambandi vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. fjmrh., hvort með þessari rökst. dagskrá, sem hér liggur fyrir, það væri látið á vald ríkisstj., hversu stór þessi verksmiðja ætti að vera, þegar hún yrði reist. Og manni liggur nærri að skilja svo niðurlag hinnar rökst. dagskrártill., að það sé gert ráð fyrir, að stærð þessarar síldarverksmiðju verði svo mikil sem fjármagn hins útlenda láns hrekkur til að kaupa fyrir vélar og annað efni, sem kaupa þarf til verksmiðjunnar frá útlöndum. Það hefir heyrzt, að það hafi verið skilyrði fyrir láninu af hálfu breska lánveitandans, að það fé, sem hann lánaði hlutafélaginu Kveldúlfi í þessu skyni, því yrði öllu varið til innkaupa á þeim vörum, sem þyrfti að kaupa erlendis til verksmiðjunnar. Ef svo er, þá skilst mér, að það komi í ljós, að einhverjir aðrir lánardrottnar verði að lána verulegar upphæðir aðrar en gert hefir verið ráð fyrir sem lánum til Kveldúlfs, til þess að h/f Kveldúlfur geti reist þessa verksmiðju.
Það mun vera svo að segja á almannavitund, að í samningum þeim, sem gerðir hafa verið milli Landsbankans og h/f Kveldúlfs, þar hafi verið gert ráð fyrir, að Landsbankinn lánaði félaginu 150 þús. kr. til þess að reisa þessa síldarbræðsluverksmiðju á Hjalteyri. Ef nú fengið væri erlendis lán að upphæð 40 þús. sterlingspund og því ætti öllu að verja til innkaupa á vélum og byggingarefni, en aðrir lánardrottnar, og þá fyrst og fremst Landsbankinn sem höfuðlánveitandi til þessa fyrirtækis, ættu að lána félaginu það, sem á skorti, til þess að hægt væri að koma upp þessari verksmiðju, þá skilst mér, að lán Landsbankans til Kveldúlfs yrði að vera langtum hærra en 150 þús. kr. Ég kann ekki full skil á því, hversu mikill hluti af kostnaðinum við að koma upp slíkri verksmiðju sem þessari eru vinnulaun innlendra manna og innlent byggingarefni, og hve mikill hluti erlent byggingarefni. En ég ætla þó, að innlend vinna og byggingarefni sé æði miklu meiri hundraðshluti af byggingarkostnaði verksmiðjunnar en gert er ráð fyrir með því, að hafa þetta lán bundið við 150 þús. kr. En ef það kæmi í ljós, að h/f Kveldúlfur þyrfti að fá, við skyldum segja 250 þús. til 400 þús. kr. að láni hjá Landsbankanum eða innlendum lánardrottni, sem gert er ráð fyrir, að verði helzt Landsbankinn, þá fer enn berlegar að koma í ljós en við héldum fram í fyrstu, alþýðuflokksmenn, að þessi skuldaskil til Kveldúlfs eru ekki ýkja glæsileg. Ég vil sem sagt, að hæstv. fjmrh. upplýsi um þetta ef honum er unnt. Það er þörf á því, því að þetta mál er svo stórt, að allir landsmenn þurfa að vita, hvernig þetta er fyrirhugað fyrir framtíðina. Ef Landsbankinn á nú að lána h/f Kveldúlfi nokkuð mörg hundruð þús. kr. til byggingar á þessari verksmiðju á eftir erlendum lánum, m. ö. o. taka á sínar herðar ótryggasta hlutann af lánunum til verksmiðjunnar, þá virðist mér þetta fara nú að verða sæmilega lítið glæsilegt, svo að talað sé varfærnislega um fjármálaspekulation þessara manna, sem virðast ráða úrslitum í þessu máli. En það kann að vera, að menn hafi ekki komið auga á þetta enn. En ég bið hv. þm. að vera þess minnuga, sem ég hefi nú sagt, og athuga svo eftir eitt ár eða svo, hvernig sakir standa í þessum málum hjá lánsstofnunum á Íslandi og h/f Kveldúlfi, og athuga þá einnig, hvort það hafi verið nokkurt þjóðráð, sem hnigið var að á vetrarþinginu 1937, að sporna við því, að h/f Kveldúlfur yrði gerður upp.