19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í C-deild Alþingistíðinda. (1399)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

*Héðinn Valdimarsson:

Ein af helztu ástæðum Framsfl. og þess hæstv. ráðh., sem aðallega hefir talað fyrir hans hönd í þessu máli, fyrir því, að gengið hefir verið á móti frv. því, sem við alþýðuflokksmenn höfum lagt hér fram um gjaldþrotaskiptameðferð á h/f Kveldúlfi, var sú, að Alþ. ætti ekki að skipta sér af þessu máli, heldur væri það hlutverk bankanna. Nú er það einkennilegt við þetta, að lokahnúturinn á öllum þessum samningamálum er einmitt riðinn hér á hæstv. Alþ. af Framsfl. og Sjálfstfl. sameiginlega, með því að samþ. þessa rökst. dagskrá, sem hér liggur nú fyrir. Eftir því, sem skýrt hefir verið frá, hefir h/f Kveldúlfur sett það að skilyrði til þess að ganga að samningum við báða bankana, að hann fengi verksmiðjuleyfi. Og með því að veita þetta verksmiðjuleyfi, sem meiri hl. þingsins vill veita með sinni rökst. dagskrá, þá eru raunverulega samningarnir látnir ganga í gildi. Svo að það er einmitt Framsfl., sem gengur inn á að láta Alþ. gera úrskurðinn um þetta mál, og finnst mér satt að segja, að minna hefði átt að tala um, að Alþ. hefði engin afskipti af þessu máli.

Þá er annað atriði. Hæstv. fjmrh. talaði mikið um það við umr. um þetta mál, að með þessari lausn málsins fengist 1 milljón kr. upp í skuld h/f Kveldúlfs. Nú ætla ég ekki að fara að sýna fram á það, sem ég hefi áður sýnt fram á, að hér er ekki um neina 1 millj. að ræða, heldur í mesta lagi ¼ millj., sem fast upp í skuldir félagsins, en aftur á móti kemur mikil áhætta með auknum útlánum. Nú vil ég beina fyrirspurn til hæstv. fjmrh. í sambandi við þetta. Hann hefir sagt, að Alþfl. væri á móti því, að þessi 1 millj. kr. gengi til Kveldúlfs. Á hvern hátt álítur hann, að eigi að innheimta þessa milljón? Álítur hæstv. ráðh., að það eigi að ganga að veðinu, sem Thor Jensen hefir gefið, eða ekki? Og ef á að gera það, þá hvenær? Hvort á að gera það einhverntíma á næsta ári eða eftir næstu áramót? Ég get bæði spurt hæstv. ráðh. um þetta sem fjmrh. og alþm. og sem yfirmann bankanna. Í öðru lagi vil ég spyrja hann um, hvort það sé satt, sem haft hefir verið eftir honum og ýmsum framsóknarmönnum, að það vaki fyrir flokknum að gera upp h/f Kveldúlf eftir næstu áramót, og hvort það sé tilgangur þeirra framsóknarmanna að gera það, hvort sem félagið hefir grætt, staðið í stað eða tapað, eða hvort með þessum gerðum, sem umboðsmenn Framsfl. hafa gert í samráði við bankann, eigi að vera bundinn endahnútur á þetta mál, hvernig svo sem gengur með rekstur og afkomu h/f Kveldúlfs, þannig að ekki verði meiri afskipti af því máli höfð af Framsfl. hálfu.