16.02.1937
Sameinað þing: 2. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (14)
Kosning fastanefnda
*Hannes Jónsson:
Hv. þm. S.-Þ. hefir víst ekki tekið vel eftir því, sem ég sagði, ef hann hefir skilið mig svo, að ég ætlaðist til, að Bændafl. fengi tvo fulltrúa í utanríkismálanefnd. Ég tók það fram, að ég ætlaðist til, að Bændafl. fengi einn fulltrúa, og utanflokksþingmaðurinn yrði annar, og þannig yrði fjölgað um tvo menn í nefndinni.