19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (1408)
82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs
Forseti (JörB):
Út af ummælum hæstv. atvmrh., sem þótti ég sýna furðu mikla þolinmæði, að líða þessar umr., vil ég geta þess, að ég ætla hv. þm. að kunna siðareglur, svo að ekki þurfi sífellt að vera að grípa fram í fyrir þeim. En ef hæstv. ráðh. hefir fundizt ég gera upp á milli hv. þm., þá vil ég eindregið mótmæla þeirri ásökun.