20.04.1937
Neðri deild: 44. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (1418)
82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs
*Jóhann Jósefsson:
Ég vildi gera örfáar aths. við þann kafla í ræðu hv. þm. Ísaf., er snerti síldarsölu í Póllandi, sem við höfum komið nálægt báðir saman.
Hv. þm. Ísaf. sagði í sambandi við sölumann matjessíldarframleiðenda, sem var árið 1934 Fritz Kjartansson, að við hefðum komizt að því, þegar við árið 1935 vorum á ferð í Danzig og Gdynia, að þessi sölumaður, sem fékk sölulaun hjá matjessíldarútflytjendum, hefði fengið fé líka hjá félaginu Pol-Ísland, og að hann hefði gefið okkur þær skýringar á því, sem við hefðum getað sætt okkur við. Ennfremur sagði þessi hv. þm., að við hefðum verið sammála um að fela þessum sama manni frekari sölu fyrir síldarútvegsnefnd. Það er rétt, að við hv. þm. Ísaf. og ég, vorum saman árið 1935 í þessum erindum í Danzig og Gdynia, og líka er það rétt, að viðkomandi maður, sem hann nefndi, kom þar líka, þó ekki að minni tilhlutun. Ennfremur er það rétt, að mér var sýnt það af stjórnendum félagsins Pól-Ísland, sem sátu í Gdynia, að viðkomandi sölumaður hefði fengið nokkra tugi þúsunda í pólskri mynt greidda hjá þessu félagi. Kom mér þetta undarlega fyrir sjónir og sagði ég hr. Finni Jónssyni frá þessu, næst þegar við hittumst á eftir, sem var víst samdægurs. Nokkru síðar barzt okkur báðum bréf frá viðkomandi manni, sem líka var staddur þarna á staðnum, þar sem hann leitaðist við að gefa skýringar á því, hvernig á þessu stæði. En það, sem hv. þm. Ísaf. sagði um það, að við hefðum sætt okkur við þessar skýringar, þá er það ekki rétt, hvað mig áhrærir. Ég vildi ekki heldur fela honum frekari störf í þágu síldarútflytjenda. Ég vil taka það fram, að þó að ég væri með hv. þm. Ísaf. í Þýzkalandi við að semja um síldarsölu, taldi ég hann aðalsölumann, þar sem hann var formaður síldarútvegsnefndar. En til þess að taka af öll tvímæli um það, að ég hafi gengið inn á, að skýringar Fritz Kjartanssonar hafi verið viðunandi eða að ég samþ. að fela honum frekari sölu, vil ég segja það, að ég tilkynnti hr. Finni Jónssyni það bréflega, áður en við skildum, að ég, að fengnum upplýsingum, vildi ekki taka þátt í því að fela þessum manni nein störf fyrir síldarútflytjendur hér heima.
Skal ég svo ekki orðlengja um þetta meira. En ég vildi ekki láta það standa ómótmælt í Alþ., að ég hefði skrifað undir þetta allt saman eða verið því samþykkur. Hefi ég sagt í sem fæstum orðum afstöðu mína til þessa máls, en gæti vitanlega sagt miklu greinilegar frá þessu öllu. En þar sem tíminn er takmarkaður, og þar sem ég álít, að aðrir hlutir í þessu sambandi skipti ekki máli við þetta tækifæri heldur en það, sem ég hefi tekið fram, þá læt ég við þetta sitja.