20.04.1937
Neðri deild: 44. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í C-deild Alþingistíðinda. (1420)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

*Héðinn Valdimarsson:

Það er einkennilegt fyrir málstað Sjálfstæðisfl. í þessu máli, að hann skuli láta mann eins og hv. þm. G.-K., sem er svo mikið riðinn við þetta mál fjárhagslega, og með þeim ráðstöfunum, sem hann hefir gert, vera aðalræðumann í þessu máli, og þó er það sannað, að þær ræður, sem hv. þm. flytur við umr. um málið, koma hvergi nærri málinu sjálfu, heldur eru ræður hans hin svívirðilegasta árás, sem heyrzt hefir á Alþ, í garð þeirra manna, sem hér eiga sæti á Alþ., án þess að nokkuð slíkt hafi komið í hans garð. Þetta er innræti hv. þm. G.-K. Það er vegna þess, að glerhús þessa hv. þm. er brotið, að hann kastar grjóti og sorpi í allar áttir.

Það, sem þessi hv. þm. sagði um afskipti mín í fiskimálan. af fisksölu nú í ræðu sinni, eru vísvitandi ósannindi. (Forseti hringir). Það eru vísvitandi ósannindi frá upphafi til enda, sem er sannað og sannanlegt með vitnisburði allra fiskimálanefndarmanna, enda getur hv. þm. ekki mótmælt einu einasta orði, sem af fiskimálan. er sagt um þetta. En hann endurtekur lygina samt sem áður. Hann gerir hið sama og nazistar í Þýzkalandi gera; ef þeir halda, að þeir með því móti geti komið sínum málum betur áfram, þá endurtaka þeir lygina í þeirri von, að þeir geti talið fólkinu trú um það að lokum, sem þeir ljúga að því. — Það stendur ekki steinn yfir steini í því, sem hv. þm. G.-K. hefir sagt um þetta mál. En þessi hv. þm. hefir af hatri og heimsku reynt að klína óhróðri á hv. þm. Ísaf., óhróðri, sem hann þykist finna í sambandi við annað mál, en kemur þessu máli, sem hér er til umr., ekkert við. Og þetta gerir hann til þess að leiða athygli manna í burt frá Kveldúlfi og því stóra hneyksli í sambandi við það mál, sem hann er að verja hér og Sjálfstfl. hefir gerzt meðsekur um, og hann hefir fengið Framsfl. til að hjálpa sér til að halda hlífiskildi yfir. Mun ég svo ekki fara frekar út í þessar sakir hér að sinni. Það mun gefast tækifæri og nógur tími til að ræða þetta síðar á öðrum vettvangi.

Hæstv. fjmrh. sagði, að það væri svo fjarri, að Framsfl. eða hann hefði skorið hv. þm. G.-K. niður úr hengingaról skuldanna; þvert á móti skildist mér, að hann hefði, að hans eigin áliti, reyrt enn fastar að. En það er ekki gengið að ½ milljóninni, sem Thorsbræður skulda Kveldúlfi. Það er ekki einu sinni búið að setja ákvæði um, að þeir borgi Kveldúlfi það, sem þeir skulda honum. Og svo er verið að tala um, að hv. þm. G.-K, standi í ábyrgð fyrir skuldum Kveldúlfs. Það er ekki verið að tala um að innheimta neina milljón ekki ¼ milljón handa Kveldúlfi. Nei, það á að halda þessu ástandi við og láta það ganga svona, — hver veit hvað lengi? Svo lengi sem Jóni Árnasyni og öðrum í bankaráði lízt að gera Kveldúlf ekki gjaldþrota, þó að bankarnir tapi á honum ár frá ári? Það á ekki aðeins að bæta við rekstrarlán til þessa óreiðufyrirtækis og 150 þús. kr. láni til byggingar síldarverksmiðju, heldur sennilega 450 þús. kr. til þessarar verksmiðjubyggingar, svo að ég veit ekki, hver hefir hjálpað Kveldúlfi betur úr sínum vandræðum en einmitt hæstv. fjmrh.

Viðvíkjandi trausti á hæstv. fjmrh., þá er honum ákaflega vel kunnugt um það, að hann nýtur af hálfu Alþfl. hvorki trausts í þessu máli né öðrum málum, sem hæstv. atvmrh. hefir getið um í yfirlýsingu sinni fyrir hönd Alþfl. Hæstv. fjmrh. nýtur einskis trausts í þessum málum af hálfu Alþfl., og þess vegna verða samvinnuslit á milli stjórnarflokkanna.