20.04.1937
Neðri deild: 44. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í C-deild Alþingistíðinda. (1427)
82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs
*Finnur Jónsson:
Ég vil taka það fram, að það voru ekki eingöngu alþýðuflokksmenn í bæjarstjórn Ísafjarðar, sem greiddu atkv. með, að erfðafestulandið á Ísafirði yrði tekið af hv. 6. þm. Reykv., heldur var það gert með shlj. atkv., af því að hann hafði ekki uppfyllt samninginn, og því var landið fallið undir bæinn. En þegar bæjarfógeti sá, sem þá var þar, flutti frá Ísafirði, urðu þar líka útibússtjóraskipti, og útibússtjórinn gerði ýmsar undarlegar fjármálaráðstafanir, og þar á meðal tók hann óunnið land af Sigurði Kristjánssyni sem veð fyrir 17 þús. kr. skuld. Þetta hefir hann viðurkennt, að hafi gerzt, að sumu leyti alveg eins og ég hefi skýrt frá, en að sumu leyti lítið eitt öðru vísi en ég hafði heyrt, þó að litlu muni.
Viðvíkjandi þessum manni frá Ísafirði vil ég taka það fram, að hann fór í Kveldúlf og talaði við Hilmar Thors og var sendur af honum til Sigurðar Kristjánssonar. Ég hirði ekki að rekja það nánar, en ég segi þessa sögu til þess að sýna, hvernig er farið að nota Kveldúlfsvaldið hér á landi.
Hv. þm. segir, að ég geti ekki nefnt einn einasta mann, sem hafi unnið í Kveldúlfi og ekki fengið þar sín laun greidd, en það er þá bara af því, að fyrirtækið hefir ekki verið gert upp. En hvað yrðu þeir margir, sem tapa, þegar fyrirtækið verður gert upp, og það er engu síður tap, ef það lendir á allri þjóðinni en fáeinum einstaklingum. Ég hygg, að þegar Kveldúlfur verður gerður upp, þá lendi það á allri þjóðinni, og það verði sú stærsta skuldasúpa, sem sézt hefir síðan land byggðist.