18.02.1937
Efri deild: 4. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í C-deild Alþingistíðinda. (1467)
15. mál, sauðfjárveiki
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Frv. það, sem hér liggur fyrir, er samhljóða bráðabirgðalögum þeim, er ég taldi nauðsynlegt að gefa út til að gera ráðstafanir til að hindra útbreiðslu fjárpestar þeirrar, er nú geisar um stór svæði landsins. Ég geri þó ekki ráð fyrir því, að frv. verði samþ. eins og það liggur hér fyrir, enda ekki þörf á því, því að nú getur þingið ákveðið um greiðslur úr ríkissjóði vegna ýmissa ráðstafana til hindrunar veikinni, þótt ekki væri það gert í bráðabirgðalögunum. Ég mun ekki tala almennt um málið við þessa umr., en óska þess, að því verði að henni lokinni vísað til landbn. Ég vil þó geta þess, að ef til vill hefði verið eðlilegra, að málið hefði verið borið fram í Nd., því að þar á sæti sá maður, hv. 2. þm. N.-M., sem einkum hefir haft ráðstafanir til hindrunar útbreiðslu veikinnar með höndum, en að sjálfsögðu er hann fús til að starfa í sambandi við landbn. þessarar hv. deildar og leggja öll gögn sín fyrir hana.