23.02.1937
Sameinað þing: 3. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í C-deild Alþingistíðinda. (1476)
1. mál, fjárlög 1938
*Ásgeir Ásgeirsson:
Ég ætla að segja hér nokkur orð í tilefni af þeim samanburði, sem nú hefir verið gerður á síðasta ári og árinu 1934 og að nokkru leyti árinu 1932. Ég skal játa það, að á árunum 1932–1934 var rekstrarhalli hjá ríkissjóði. Sá rekstrarhalli nam að meðaltali þessi 3 ár 1¾ millj. kr. á ári. En 2 síðustu árin, 1935–1936, mun aftur hafa orðið rekstrarafgangur hjá ríkissjóði, sem þó ekki mun hafa numið meira að meðaltali heldur en 300 þús. kr. á ári. Meðaltalsmunurinn á þessum 2 síðustu árum og 3 árunum þar áður er þess vegna um 1½ millj. kr. En þessi munur er minni heldur en sá munur, sem var á áfengistekjunum á árunum 1934 og 1935, því að sá munur mun hafa verið á þessum 2 árum um 1 millj. og 700 þús. kr. Nú var þessi ráðstöfun, afnám bannsins, að vissu leyti ópólitísk ráðstöfun, sem af tilviljun var gerð á árinu 1935 á fyrsta ári núverandi stj. Ef þessi breyting, afnám bannsins, hefði verið gerð á árinu 1932, þá er útlit fyrir, að þetta hefði allt verið jafnt, og ef þessi breyting væri ekki um garð gengin enn þann dag í dag, þá er útlit fyrir, að allt hefði líka verið jafnt á þessum 6 árum. — Auk þessa þá er sannarlega ástæða til að geta þess, að hin fyrstu ár, sem ég var fjmrh., fengust engir viðbótartollar né viðbótarskattar. Stjórnmálin í landinu voru komin í það öngþveiti, að stöðvunarvald Ed. gat hindrað alla nýja skatta og tolla, hversu nauðsynlegir sem þeir þó voru í byrjun kreppunnar. Ég hygg, að Ísland sé eina ríkið í álfunni, sem ekki hefir hækkað sína skatta og tolla á fyrstu árum kreppunnar. Frá þessu stafar vitanlega, að útkoman var 1931–1934 ekki betri heldur en þetta, sem ég hefi nú sagt. Síðasta stj. áorkaði meðal annars því að leysa íslenzku þjóðina úr þessu öngþveiti. Sú stj. leysti kjördæmamálið á þann hátt, að það opnuðust aftur möguleikar til að leggja á nýja skatta og tolla miðað við þarfir ríkissjóðs. Þessa starfs okkar nýtur nú núverandi stj. Það, sem við gerðum í þessu efni, kom ekki okkur til stuðnings, heldur þeirri stj., sem nú situr. Og hvað viðvíkur hinum nýju tollum og sköttum, þá hefi ég fyrir mitt leyti jafnan fylgt núverandi stj. til að koma þeim á. Ég hygg því, að þegar litið er til allra orsaka, þá sé munurinn á þessum árum, 1932–1934, og svo hinum 2 árunum, 1935–1936, ekki svo mikill. Það sama kemur fram, þegar litið er á verzlunarjöfnuðinn. Framsfl. hefir nú haft fjmrh. frá 1928 til þessa dags. Á árunum 1928–'31 er meðaltalsafgangur á verzlunarjöfnuðinum rúmlega 100 þús. kr. Á árunum 1932–'34, sem ég ber ábyrgð á, er meðaltalsafgangur á verzlunarjöfnuðinum 3 millj. og 200 þús., og á þessum 2 síðustu árum mun hann vera eitthvað tæpar 4 millj. kr. Á þessu meðaltali, 3200 þús. kr. og 3900 þús. kr., munar ekki miklu, a. m. k. ekki meira en því, sem maður getur búizt við af breyttri löggjöf um innflutning til landsins. Og ef ég á nú að standa fyrir utan þennan hóp, og aðeins má reikna með öðrum framsóknarfjmrh. á árunum 1928–'36, þá er meðaltalsafgangurinn á verzlunarjöfnuðinum á árunum 1928–'32 og 1935–'36 1600 þús. kr., sem er 2 millj. kr. lægri meðaltalsjöfnuður heldur en á þeim árum, sem menn vilja, og það ekki að ástæðulausu, láta mig bera ábyrgð á. Ég held þess vegna, að mínir gömlu og góðu flokksmenn græði heldur á því að telja mig með í hópnum í þessu sambandi, og að það sé ekki einasta vafasamt, heldur algerlega rangt, að ég einn beri ábyrgðina á árinu 1934. Það vill oft verða svo, að ár, sem bæði eru kosningaár og um leið stjórnarskiptaár, verða heldur dýrari ríkissjóði, heldur en önnur ár, og ég veit, að núverandi hæstv. ráðh. firtast ekki af því, þó að ég segi, að þeir hafi verið ógætnari á síðari hluta ársins 1934, þegar þeir störfuðu, eftir því sem þeir sjálfir segja, upp á mína ábyrgð, heldur en 2 síðari árin. A. m. k. kemur þetta bert fram á verzlunarjöfnuðinum, því að hann var í ágúst, þegar við létum af völdum, mjög áþekkur því, sem hann var í ágúst 1935, þegar núverandi stj. var búin að sitja í eitt ár. Ef verzlunarjöfnuðurinn 1934 hefir verið verri en 1935, þá er það því síðari hluta ársins 1934 að kenna. Stj. hefir því annað hvort ekki strax byrjað að beita því valdi, sem hún fékk í ágúst 1934, eða þá að hún hefir ekki ráðið við innflutninginn frekar heldur en við hefðum gert, ef við hefðum haldið áfram út það ár. Ég hygg því, að það sé nokkuð bert, að um þetta ár eigi að vera bræðrabylta, og að við komumst ekki lengra í réttlátri skiptingu á útkomu þess árs, að því er snertir verzlunarjöfnuðinn. Ég vil auk þess geta þess, að þetta ár, 1934, var í upphafi heldur sæmilegt, og oft er það svo, að útkoman verður lakari á þeim árum, sem byrja sæmilega og enda illa, heldur en á þeim árum, sem eins og 1936 byrja illa, en enda vel. Þetta gerir oft þann mun, sem stj. er vorkunn, að þær sjá ekki fyrir.