23.02.1937
Sameinað þing: 3. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í C-deild Alþingistíðinda. (1477)
1. mál, fjárlög 1938
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég kemst nú ekki til á þessum stutta tíma að minnast á nema fátt eitt af því, sem ég vildi.
Hv. þm. V.-Ísf. ætla ég að segja það, að ég ætla ekki að fara út í neinn mannjöfnuð okkar í milli út af þeim niðurstöðum, sem fyrir liggja um árið 1934, en hitt vil ég þó segja honum, að ég get ekki fallizt á að skipta árinu bróðurlega á milli okkar. Til þess tel ég, að of miklu hafi verið ráðið um afkomu þess, þegar núv. stj. gat áhrif á það haft. — Hvað því viðvíkur, sem hv. þm. sagði, að afkoma ríkissjóðs á árunum 1932–'34 hafi verið svo slæm, af því að honum hafi verið neitað um tekjuöflun, þá er það alveg það sama og ég hefi alltaf haldið fram. Ég hefi aldrei beint ásökun minni til hans persónulega, heldur til Sjálfstfl., sem ekki vildi ganga inn á þá skyldu, sem honum bar, að afla ríkissjóði tekna. Þetta hefi ég talið höfuðástæðuna fyrir því, hvernig þessum málum var þá háttað.
Hvað því viðvíkur hjá hv. þm. V.-Ísf., að hin betri útkoma nú sé aðeins áfengisverzluninni að þakka, þá má það vel vera að tölur hv. þm. í þessu sambandi hafi verið réttar, en hitt er náttúrlega vitað fyrir því, að ef ekki hefði verið von á þessum auknu tekjum, þá hefði annaðhvort verið reynt að skera niður á fjárl. fyrir þessari upphæð eða reynt að afla annara tekna í staðinn.
Þá vil ég leyfa mér að leiðrétta það hjá hv. 10. landsk., að á landsreikningnum 1934 hafi verið óréttilega færð útgjöld til þess að gera útkomu þess árs hagstæðari. Ég skora á hann að gera frekari grein fyrir þessu síðar, en hann mun ekki geta fundið þessum orðum sínum stað frekar en svo oft áður.
Þá var þessi sami hv. þm. að tala um innflutning áfengis á síðastl. ári, en hefir honum aldrei dottið það í hug, að meðan hann var ráðh. 1932–'33 var flutt inn áfengi og tóbak fyrir svo að segja alveg sömu upphæð og síðastl. ár? Hefir hv. þm. aldrei dottið í hug, að hann þyrfti að gera grein fyrir þessu? Hann veit þó, að samkv. þeirri afgreiðslu, er áfengismálið fékk, er skylt að flytja inn áfengi, ef ekki á að brjóta gegn þjóðarviljanum. Hv. þm. segir, að hægt hefði verið að kaupa vörubirgðir og forðast verðhækkun, ef ekki hefði verið flutt inn áfengi, en hann hefir víst aldrei athugað það, að gjaldeyrir sá, sem farið hefir í áfengiskaup á síðastl. ári, er innan við 400 þús. kr. Heldur nú hv. þm., að hægt hefði verið að kaupa miklar vörubirgðir fyrir þann gjaldeyri?
Ég sagði í minni fyrri ræðu, að ýmislegt hefði verið reynt til þess að koma í veg fyrir, að menn viðurkenndu þann árangur, sem náðst hefir í viðskiptunum við útlönd, en nú hefir komið nýtt upp á teninginn. Nú þykjast hv. 10. landsk. og hv. þm. Vestm. ætla að sanna það, að innflutningshöftin hafi ekki verkað í þessa átt, af því að leyfi hafi verið gefin fyrir miklu hærri upphæð heldur en enn hefir verið flutt inn fyrir. Það vill nú svo vel til, að ég get afsannað þetta. Það er rétt, að innflutningsleyfi hafa verið gefin fyrir meira en inn hefir verið flutt, en við skulum nú athuga, hvaða innflutningsleyfi þetta eru. Það eru aðallega innflutningsleyfi fyrir útgerðarvörum og öðrum slíkum nauðsynjavörum. Og nú ætla þessir hv. þm. að halda því fram, að þessi leyfi hafi ekki verið notuð vegna gjaldeyrisskorts. En ég ætla, að allir viti, að gjaldeyririnn er alltaf látinn ganga til hinna brýnustu nauðsynja, enda hefir hér ekki verið neinn skortur á þessum vörum. Ég veit ekki, hvort þessir hv. þm. trúa þessu sjálfir, sem þeir eru að segja, en hitt er víst, að þeir, sem á þessar umr. hlýða, trúa þessu ekki, því að þeir vita, að innflutningsleyfi fyrir útgerðarvörum hafa ekki verið látin liggja vegna gjaldeyrisskorts, heldur vegna þess, að menn hafa beðið um ríflegri leyfi heldur en þeir þurftu að nota. Gjaldeyrisnefnd hefir jafnan fylgt þeirri reglu, að veita nægileg innflutningsleyfi fyrir útgerðarvörur, til þess að menn gætu ekki núið henni um nasir, að hún veitti ekki leyfi fyrir því, sem verður að teljast til hinna brýnustu nauðsynja.
Þá var hv. þm. að óskapast yfir því, að ekki hefði verið keypt nægilega mikið af vörum, áður en verðhækkunin skylli á. Það má vel vera, að það hefði verið betra ástand nú, ef við ættum meira af íslenzkum og útlendum vörubirgðum í landinu. Ég verð að segja, að ég tek það sem traustyfirlýsingu til mín, að þessir menn hafa orðið fyrir vonbrigðum í því, að á síðasta ári hefir ekki tekizt hvorttveggja, bæði að ná fullum greiðslujöfnuði og safna fyrir birgðum af innlendum framleiðsluvörum og erlendum nauðsynjavörum. Og þetta allt virðast þeir hafa búizt við, að við gætum gert á sama ári og Spánarmarkaðurinn lokaðist að fullu. Á þessu hlýtur þessi málflutningur þeirra að byggjast, ef þeir vilja ekki láta heimfæra hann undir blekkingar af lélegustu tegund. Hann hlýtur að byggjast á því, að þeir telja, að illa hafi verið staðið í ístaðinu, að þetta skuli ekki allt hafa tekizt, bæði að safna birgðum og ná greiðslujöfnuði. Og hver væri svo afleiðingin af þeirri gagnrýni, sem hv. þm. Vestm. kom með? Hún væri sú, að innflutningshöftunum hefði verið of lítið beitt. En nú höfum við orðið fyrir sérstökum ofsóknum og árásum fyrir það, að þeim hafi verið of mikið beitt.
Ég teldi gott, ef hv. þm. Vestm. og hv. 10. landsk. hefðu haft tíma á eftir, svo að hægt hefði verið að heyra, hvernig þeir vilja samrýma þessa gagnrýni og það, sem flokkar þeirra hafa sagt og talað um framkvæmd innflutningshaftanna daglega.
Hv. 10. landsk. talaði um það hér áðan, að 1933 hefðu skuldir bankanna lækkað út á við, og þakkaði hann samsteypustjórninni það, en síðara árið hefðu skuldirnar aukizt. Það er rétt, að síðara árið jukust skuldirnar út á við. En það var ekki fyrir það, að viðskiptahalli hefði orðið á árinu, heldur fyrir hitt, að á þessu ári voru greiddar ýmsar lausar vöruskuldir frá fyrra ári, og það íþyngdi gjaldeyrisverzluninni. En af hverju var þetta? Það var af því, að fyrra árið fór fram stór lántaka erlendis, og lánsféð var flutt inn til bankanna og þess vegna batnaði aðstaðan. En á síðara árinu var ekkert erlent lánsfé flutt til bankanna, svo að þeir urðu að láta sér nægja þann gjaldeyri, sem féll til fyrir útfluttar vörur.
Ég verð að segja, að ég get verið ánægður út af fyrir sig með þá gagnrýni, sem komið hefir fram frá hv. stjórnarandstæðingum á niðurstöðu viðskiptanna við útlönd, því að þar með hefir gefizt tækifæri til þess að gefa upplýsingar um mismuninn á leyfum og innflutningi og leiðrétta ranghermi, sem haldið, hefir verið uppi í blöðum andstæðinganna, án þess að tækifæri hafi gefizt til þess að leiðrétta það í útvarp.
Hv. þm. Vestm. talaði um útgjöld ríkissjóðs og tekjur hans, og talaði jafnframt um, að öll kurl kæmu ekki til grafar á landsreikningunum. Hv. 6. landsk, svaraði því, sem hann sagði um skattana og tollana, og líka því, sem hann sagði um launin, en því er ósvarað, sem hann sagði um útgjöld ríkissjóðs. Hann sagði, að þau kæmu ekki öll til greina á fjárlfrv., því að útgjöld síma og pósts væru ekki talin með ríkisútgjöldunum, heldur væri aðeins talinn hagnaðurinn af þessum stofnunum. Ég veit, að hv. þm. er það kunnugt, að í engu menningarríki þekkist það, að annað sé fært á heildarreikninginn en annaðhvort tekjur eða gjöld. En rétt til þess að sýna mönnum, hve mikil fjarstæða þetta er, þá þarf ekki annað en benda á, að ef fylgja ætti þessari reglu, þá ætti að gera reikninga bæjarsjóðs Rvíkur þannig úr garði, að ekki aðeins ætti að telja útgjöld bæjarsjóðs, heldur líka útgjöld hafnarinnar, rafmagnsveitunnar, vatnsveitunnar, hitaveitunnar, sundhallarinnar og annara opinberra fyrirtækja, sem bærinn rekur. Það sjá allir, að þetta er annaðhvort misskilningur eða sagt gegn betri vitund að það sé eðlileg reikningsfærsla, að hafa þetta þannig.
Ég er nú búinn með minn tíma. En það, sem mér finnst einkenna ræður andstæðinganna nú eins og áður, er, að þetta eru allt neikvæðar ræður. Það er ómögulegt að botna neitt í því, hvernig þessir menn ætla að skipa þessum málum, ef þeir hefðu vald til þess. Hv. þm. Vestm. talaði móti öllum sköttum og tollum. Ef eftir þessu væri farið og engin ný lög kæmu í staðinn, þá yrðu tekjur ríkissjóðs ekki yfir 12 millj. kr. Dettur nokkrum í hug, að þó að Sjálfstfl. færi með völd, að hann kæmist af með 12 millj. kr. ríkistekjur? Það dettur yfirleitt engum í hug, að hægt sé að skera niður 4 millj. kr. á fjárl., og hvað þá heldur, að hægt sé að gera það, án þess að skera niður fjárframlög til verklegra framkvæmda og tillög til atvinnuveganna, eins og hv. þm. Vestm. vildi halda fram.