20.02.1937
Neðri deild: 6. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (1480)

22. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Ólafur Thors:

Þetta frv. er samhljóða frv., sem hv. 6. þm. Reykv. og ég fluttum á síðasta Alþingi. Þá horfði, a. m. k. um skeið, þannig fyrir málinu, að allar líkur virtust benda til þess, að það mundi ná fram að ganga. Að endingu varð það þó svo, að málið kom hingað til Nd. aftur frá Ed. með þeim annmörkum, að við flm. töldum ekki hag að lögfesta það eins og það þá lá fyrir, en hinsvegar ekki aðstaða til þess þá í þinglokin að fá því breytt í viðunandi horf. Frv. er nú flutt að nýju, í trausti þess, að hv. þm. geti fallizt á, að það, sem fram á er farið með ákvæðum frv., sé í fyrsta lagi sanngirnis- og réttlætiskrafa útveginum til handa og í öðru lagi ekki háð neinum þeim annmörkum, sem út af fyrir sig geri nauðsynlega andstöðu gegn málinu.

Höfuðefni frv. er það, að útgerðarmönnum skuli vera heimilt að ráðstafa þeim erlenda gjaldeyri, sem fæst fyrir útflutningsvörur þeirra, sem þeir þurfa til greiðslu á þeim vörum, sem þeir sjálfir nota til sinnar útgerðar. Og ætlazt er til, að ráðh. setji nánari fyrirmæli um gjaldeyrisverzlunina og að í þeirri reglugerð geti þá verið þau ákvæði, sem þurfa þykir til þess að fyrirbyggja, að nokkur misnotkun geti átt sér stað í þessu efni.

Ég get að öðru leyti vísað til þeirra umr., sem á síðasta þingi fóru fram um þetta mál. Málið var þá allýtarlega rætt frá ýmsum sjónarmiðum. Sé ég því ekki, á þessu stigi málsins, ástæðu til þess að láta því fylgja lengri grg., en mælist til, að því verði, að umr. lokinni. vísað til 2. umr. og fjhn.