24.02.1937
Neðri deild: 8. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (1485)
25. mál, alþýðutryggingar
*Flm. (Gísli Sveinsson):
Herra forseti! Eins og grg. frv. ber með sér, þá teljum við flm. þess, að nú þegar á fyrsta ári alþýðutryggingarlaganna sé það fullkomlega komið í ljós, að almenningur sé óánægður með þau. Það út af fyrir sig mun engum koma á óvart, þar sem lögunum var hraðað svo mjög í gegnum þingið í fyrra, eins og menn muna. Þessi mikli lagabálkur var lagður fyrir þingið 1935, og eins og menn muna, ekki fyrr en komið var langt fram á þingið, sem ekki var háð fyrr en seint á árinu. Þm. gafst því ekki kostur á að athuga málið sem skyldi, hvað þá að hægt væri að leita álits almennings um það. Einn flokkur þingsins, jafnaðarmannaflokkurinn, hafði leitað álits verkalýðsfélaga úti um land um málið, en sá galli var á, að lagabálkurinn sjálfur var aldrei sendur, heldur voru félögin aðeins spurð um álit þeirra á málinu yfirleitt. Svör þeirra munu hafa verið á ýmsan hátt, en þó munu þau yfirleitt hafa talið málið nauðsynjamál og tjáð sig stefnunni fylgjandi. En að sjálfsögðu gátu þau ekki áttað sig á, hvernig lögin myndu verka fyrir almenning, þegar þau fengu ekki að sjá sjálfan lagabálkinn. Þessari sömu aðferð hefir Alþfl. beitt með annað mál, sem síðar á eftir að koma honum í koll.
Þegar svo mál þetta kom til meðferðar í þinginu, var ekki við það komandi, að spyrja mætti fólkið í landinu um málið. Þannig var felld hér í d. rökstudd dagskrá um að vísa því til kjósenda til frekari athugunar. Var þó á það bent í rökstuðningi fyrir dagskrártill., að málið hefði komið frá mþn. svo seint á þinginu, að þm. hefðu ekki einu sinni haft tíma eða tækifæri til þess að athuga þennan stóra og margþætta lagabálk, hvað þá heldur fólk úti á landi. Virtist þetta ekki ósanngjörn krafa, þar sem hér var um mál að ræða, sem ekki aðeins snerti hvert heimili á landinu, heldur og hvert mannsbarn í landinu. Að óreyndu hefði maður haldið, að þeir flokkar, sem telja sig lýðræðisflokka, hefðu viljað gefa almenningi — þeim almenningi, sem íþyngja átti — tækifæri til þess að athuga, hvað hér væri á ferðinni. Nei, engu slíku var sinnt. Þvert á móti var málið knúð áfram með hinni mestu hörku, — þeirri sömu hörku, sem oft er beitt hér af núv. stjórnarflokkum, þegar þeir eru að knýja fram vafasöm mál. Sumir kaflar þessa mikla lagabálks voru jafnvel knúðir fram með sérstökum þrælatökum, og á ég þar við kaflann um atvinnuleysistryggingar, sem annar stjórnarflokkurinn var í raun og veru búinn að lýsa sig á móti, og enda þótt hann yrði að greiða atkv. með honum, þá dugði það jafnvel ekki. Til þess að koma honum í gegn, voru því ýms brögð viðhöfð.
Eins og ég tók fram í upphafi máls míns, þá hefir óánægjan gegn lögum þessum stöðugt magnazt, og það jafnt meðal manna úr öllum flokkum. Menn hafa komizt að raun um, að mikið af því, sem lögunum var talið til gildis, var blekking ein. Það er ekki hægt að rísa undir þeim byrðum, sem á almenning eru lagðar. Að heimta breyt. á þessum lögum er því eitt af því, sem samþ. hefir verið á nær hverjum einasta þingmálafundi, alveg án pólitískrar flokkaskiptingar.
Þó að frv. það, sem hér er til umræðu, um breyting á alþýðutryggingarlögunum, sé borið fram af stjórnarandstæðingum, er langt frá, að það geti talizt flokksmál. Og hvað mig snertir, þá flyt ég það fyrir hönd héraðs míns, sem krefst þess mjög ákveðið, að fá breyt. á þessum margumræddu tryggingarlögum.
Eins og sjá má af grg., þá höfum við sleppt hér að sinni að gera breytingar á III. kafla laganna, sjúkratryggingunum. Kemur það til af því, að við, sem erum úr héruðum utan kaupstaðanna, teljum, að till. til breytingar á honum eigi að koma frá fulltrúum kaupstaðanna, þar sem kaflinn snertir nær eingöngu kaupstaðina. Eins og sjá má á frv., þá teljum við flm. þess ekki ástæðu til að hafa í l. þann kafla alþýðutryggingarl., sem ég taldi, að þvingað hefði verið í gegnum þingið með þrælatökum, kaflann um atvinnuleysistryggingar, því að það hljóta allir að vera á einu máli um það, að þau lagaákvæði, sem þar standa, séu ekki til bóta eins og þau eru a. m. k. Enda hefir það sýnt sig, að þeir, sem þvinguðu kafla þennan inn í lögin, hafa ekki treyst sér til að láta ákvæði hans koma til framkvæmda. Hvað snertir okkur stjórnarandstæðinga, þá teljum við ekki tímabært að leiða í lög slík ákvæði sem þar eru. Mótmæli þau, sem við bárum fram gegn þessu á síðasta þingi, voru ekki hrakin þá, og skal ég því ekki fara að endurtaka þau hér nú. Annars þykist ég vita, að stj. hefði reynt að framkvæma þennan kafla l., eins og annað, ef hún hefði treyst sér.
Mig rekur minni til þess, að undir umr. um þetta í fyrra léti hæstv. atvmrh. orð falla um það, að ákvæði þessa kafla væru ekki eins góð og hann og Alþfl. hefði óskað. Þetta þýðir ekkert annað en það, en að þau séu þó ekki eins fáránleg eins og vænta hefði mátt úr þeim herbúðum. En frv. leggur til, að V. kafla sé algerlega sleppt úr löggjöfinni. Það efni, sem sá kafli fjallar um, var með öllu óundirbúið til þess, að hægt væri að setja um það löggjöf, enda hefir stj., sem þó hefir sjálf knúið fram þessa löggjöf, ekki séð sér fært að framkvæma ákvæði þessa kafla.
Án þess ég ætli mér að fara að skýra einstök atriði frv., því um þau vísa ég til grg., þá vil ég geta þess um þær endurbætur, sem frv. felur í sér og bornar eru fram eftir óskum almennings, jafnt úr öllum flokkum, að tilgangur þeirra er, að létta þær þungu byrðar, sem lögin leggja á allan almenning í landinu, og í annan stað, að gera aðgengilegri hlunnindi þau, sem lögin eiga að veita fyrir þá, sem þeirra eiga að njóta. — Hvað snertir bráðabirgðaákvæði VI. kafla er einnig með till. frv. leitazt við að bæta hlut gamalmenna frá 60 til 67 ára og jafnframt að leiðrétta það ranglæti, sem bæjar- og sveitarfélögunum er gert með l., þar sem þau eru beinlínis rænd vöxtunum af sínum ellistyrktarsjóðum, sem enginn efar þó, að séu þeirra óskoruð eign. Frv. lætur haldast það form l., að sjóðir þessir séu reikningsfærðir og geymdir hjá lífeyrissjóði Íslands, þ. e. a. s. höfuðstóll þeirra, en það má ekki minna vera en að bæjar- og sveitarfélögin fái að njóta þessara sjóða sinna sem eignar óáreitt, þar sem líka vextir sjóðanna eiga eingöngu að ganga til lífeyrissjóðs eftir sem áður, en einungis sem tillag frá sveitarsjóðunum, eins og vera ber. Annars eru lögin eins og þau nú eru dálítið tvístíg. Á 82. gr. er helzt að skilja, að vextirnir eigi að koma upp í tillög hreppanna, því að þar er sagt, að sveitarstjórnir eigi að gefa skýrslur um, hve mikill hluti vextirnir séu af tillögum hreppanna, en á 79. gr. má aftur á móti skilja, að vextir ellistyktarsjóðanna eigi að reiknast með í tillagi lífeyrissjóðs Íslands. Eftir þessum ákvæðum 79. gr. hefir tryggingarstjóri úrskurðað, að vextirnir eigi að teljast með í tillagi lífeyrissjóðs. Það er þó ekki svo að skilja, að ellistyrktarsjóðirnir séu sama og sveitarsjóðir. Þessum sjóðum hefir verið haldið algerlega aðskildum frá fjárhag sveitarfélaganna og eingöngu notaðir í sínum ákveðna tilgangi, enda er það almennt álit um allt land, hvað sem reikningshaldi þessara sjóða líður, hvort það er hjá lífeyrissjóði eða ekki, því að það skiptir ekki miklu máli, að þessi vaxtataka lífeyrissjóðs sé beinlínis rán frá hreppunum. Þær breyt., sem frv. fer fram á í þessu efni, eru því krafa alþjóðar. Á því þingi, sem lögin voru samþ., lofaði hæstv. atvmrh. við umr. í hv. Ed. að taka til athugunar, hvort ekki fengist samkomulag um að breyta þessum ákvæðum, en þrátt fyrir þessi ummæli hæstv. ráðh. var það látið niður falla að breyta þeim, og síðan lögin voru samþ., hefir liðið eitt þing án þess þessu væri kippt í lag. En betra er seint en aldrei, og væri vel, ef nú fengist samkomulag um að endurbæta l. Að öðru leyti gengur frv. út á það, að létta á gjöldum almennings til lífeyrissjóðs. Um það fjallar 5. gr. frv., en þessi gjöld hafa orðið almenningi hinn mesti ásteytingarsteinn og ánauð, sem hann hefir kraumað undir. Menn sjá ekki fram á, að l. veiti þeim það í aðra hönd, sem réttlæti þessar þungu álögur og þeim hefir verið lofað. Fólkinu í verkalýðsfélögunum gengur illa að átta sig á því, að tilgangurinn sé sá, að rýja það inn að skyrtunni, og að ekkert sé látið í móti koma í fyrirsjáanlegri framtíð. Þessi gjöld eru svo há á öllum almenningi í landinu, að önnur opinber gjöld, sem innheimt eru samtímis, hverfa svo að segja í mörgum tilfellum samanborið við þessi. Er því ekki nema eðlilegt, að menn spyrji, hvað og hvers vegna.
Þá er einnig í frv. lagt til, að ýmsum ákvæðum l. sé breytt og þau gerð auðveldari í framkvæmd og réttlátari, eins og t. d. aldurstakmark gamalmenna, sem styrks eiga að njóta, en verða nokkuð hart úti gagnvart l. eins og þau eru.
Að lokum vil ég geta þess, að frv. gerir ráð fyrir nokkrum lagfæringum á slysatryggingarkaflanum, sem eru nauðsynlegar og réttlátar, um dánarbætur eftirlifandi ekkils eða ekkju, sem misst hefir maka sinn af slysum, og eins um bætur til eftirlifandi foreldra eða foreldris fyrir barn sitt á sama hátt, ef þau eða það hefir framfært barnið og systkyni þess í ómegð. Eins og lögin eru úr garði gerð, gera þau ekki ráð fyrir slíkum sárabótum, þótt foreldrar missi stuðning við fráfall barns á þennan hátt, og þótt vitað sé, að barnið hafi haldið uppi heimili foreldra sinna og yngri systkyna, þrátt fyrir það þótt heimilið væri rekið á nafni foreldranna. Þessi ákvæði frv. eiga að leiðrétta það hróplega ranglæti, sem l. hafa hér gert á eldra og betra fyrirkomulagi, með því að ræna það þeim rétti, er það áður hafði. Vænti ég, að samkomulag geti um þetta orðið hér á hv. Alþingi. og eins um það, að lagfært verði á einhvern hátt það, sem miður hefir farið í þessum efnum á því eina ári, sem lögin hafa gilt.
Það er vitað mál, að menn úr öllum flokkum eru sammála um, að breyta þurfi l. þessum, og vænti ég því, að takast megi að fá samkomulag um frv. þetta. Óska ég svo, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. allshn.