24.02.1937
Neðri deild: 8. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (1486)

25. mál, alþýðutryggingar

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég mun ekki svara ýtarlega þessari ræðu hv. flm., en vil aðeins geta þess, að ríkisstj. hefir lagt drög að því, að lagt verði fyrir þetta þing frv., til breytinga á tryggingarlöggjöfinni. Forstjóri tryggingarstofnunar ríkisins hefir unnið að því nú um skeið, að undirbúa og semja þetta frv., og er það væntanlegt eftir nokkra daga. Hefir verið beðið eftir endanlegum niðurstöðum af starfsemi tryggingarstofnunarinnar á liðnu ári, sem sjálfsagt þótti að byggja endurskoðun á.

Ég tók það fram á síðasta þingi, að mér væri þá þegar ljóst, að allmikilla breyt. væri þörf á þessari löggjöf, í fyrsta lagi af því, að hér væri um algert nýmæli að ræða hér á landi, og í öðru lagi af því, að ég taldi, að þessa tryggingarlöggjöf bæri frekast að skoða sem grundvallarlöggjöf undir annari löggjöf, er síðar þyrfti að koma, jafnóðum og reynslan segði til. Nú hefir verið lagt fram hér í hv. d. frv. til breyt. nokkurra á tryggingarlöggjöfinni, en ég vona, að það verði tekið aftur, er hitt kemur fram, eða einstök atriði úr þessu frv. kannske felld inn í hitt, ef ástæða þykir til. Ég vil því biðja þá n., sem væntanlega fær frv. til athugunar, að afgreiða ekki þetta frv., fyrr en hitt er komið fram, svo að athuga megi bæði frv. í sameiningu.

Annars gaf ræða hv. frsm. fullkomið tilefni til andsvara. Hann talaði mikið um almenna óánægju yfir því, að ekki skyldi vera samþ. till. þeirra Sjálfstæðismanna á þingi 1935, um að fresta framkvæmd l. Ég held, að hér sé gert meira úr en efni standa til. Enda þótt framkvæmd l. hefði verið frestað um eitt ár eftir þeirri till., þá hefði ekki hjá því farið, að ýmsir agnúar hefðu komið fram við reynsluna fyrst í stað.

Hvað viðvíkur hinni miklu óánægju, sem hv. þm. taldi vera í sínu kjördæmi yfir gjaldahækkun vegna tryggingarlaganna, þá hygg ég, að það hljóti einnig að vera nokkuð orðum aukið. Mér er ekki kunnugt um aðra hækkun á gjöldum í sveitum en lífeyrissjóðsgjaldið, sem vera mun 3 til 5 kr. á mann! Ég á því bágt með að trúa sögum hv. þm. um þá logandi óánægju, sem var á honum að skilja, að ríkti í hans kjördæmi.

Ég sé, að í frv. þessu er lagt til, að iðgjöld til lífeyrissjóðs verði lækkuð. Um þá till. er ekki nema gott að segja út af fyrir sig, ef bent væri á eitthvert betra ráð til tekjuöflunar fyrir lífeyrissjóð, en þar sem það er ekki gert, er öldungis víst, að lækkun iðgjaldanna hlyti að leiða til minnkandi hlunninda fyrir þá, sem tryggðir eru, en út í hin einstöku atriði frv. ætla ég ekki að fara að þessu sinni.

Ég get á það fallizt, að frv. þessu verði vísað til hv. allshn., en ég vil endurtaka þá ósk mína til n., að hún afgreiði ekki frv. fyrr en hún fær það frv. til meðferðar, sem ég hefi getið um.