15.03.1937
Neðri deild: 19. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (150)
13. mál, Kreppulánasjóður
*Pétur Ottesen:
Mér skilst, að tilgangur þessa frv. sé sá, að framlengja þá starfsemi, sem kreppulánasjóður sveitar- og bæjarfélaga hafði með höndum á síðastl. ári, að greiða úr erfiðleikum bæjar- og sveitarfélaga, og samkv. brtt. hv. 6. landsk. skilst mér, að þessi starfsemi eigi bæði að ná til þeirra sveitarfélaga, sem sótt hafa um lán, en ekki fengið fullkomna afgreiðslu, og líka til sveitarfélaga, sem ekki hafa áður sótt um kreppulán. Er það ekki rétt? (JG: Jú, að því leyti sem féð hrekkur til). Ég vil geta þess, að þeir atburðir hafa nú gerzt í sumum sveitarfélögum, að þeir, sem þar búa, geta séð sig til neydda að sækja um lán nú, þó þeir hafi hlífzt við því í fyrra. Ég býst við því, að þetta væri næg ástæða til að veita sveitarfélögum möguleika til nýrra kreppulána, og brtt. hv. þm. Barð. og hv. l. landsk. finnst mér því mjög ómakleg. Ég tel meira að segja fulla ástæðu, einmitt vegna þeirra atburða, er ég minntist á, að taka til rækilegrar íhugunar, hvort ekki væri ástæða til að auka það fjármagn, sem kreppulánasjóður hefir yfir að ráða.