25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (1506)

28. mál, viðgerðir á skipum

*Flm. (Páll Þorbjörnsson):

Ég get ekki gefið fullkomna skýrslu um atvinnuleysi í stétt þeirra manna í landinu, sem atvinnu hafa af viðgerðum skipa í landinu, en ég veit, að hv. þm. G.-K. er vel kunnugt um, að mikið hefir verið rætt og ritað um atvinnuleysi meðal járniðnaðarmanna, enda hefir það verið mikið, og líka hjá Hamri og Héðni, sem hafa orðið að segja fólki upp tímunum saman, vegna þess að verkefni hefir vantað. Hv. þm. G.-K. sagði, að ekki væri gert ráð fyrir öðrum undantekningum í frv. en þeirri, að lífsháski væri að sigla skipi til íslenzkrar hafnar. En í 5. gr. er gert ráð fyrir fleiri undantekningum. Þar er gert ráð fyrir því, að ef vafi leikur á því, að hægt sé að láta framkvæma viðgerð hér á landi, eða ef ágreiningur verður um verð, skuli skipseigandi eða vátryggjandi eigi skyldur til að láta fara fram viðgerð hér á landi nema eftir úrskurði gerðardóms. Ég hygg, að þessi gerðardómur sé svo samansettur eftir frv., að allir megi vel við una. Gerðardóminn eiga að skipa: einn fulltrúi skipseiganda, einn tilnefndur af vátryggjanda, Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík tilnefni einn og forstjórar skipasmiðjanna einn, en skipaskoðunarstjóri ríkisins skal vera sjálfkjörinn oddamaður. Veit ég, að hann muni verða talinn óhlutdrægur í þessum efnum. Mér heyrðist hv. þm. G.-K. gera ráð fyrir því, að hér væri eingöngu átt við fiskiskip. En hér er talað um íslenzk skip yfirleitt, enda hefir verið mikil óánægja með það, að viðgerðir og viðhald annara íslenzkra skipa, t. d. skipa Eimskipafélagsins, hefir farið fram erlendis. Að skipum þess hefir aldrei verið unnið handtak, þau hafa jafnvel ekki verið máluð hér.

Það er alls ekki tilætlun mín að íþyngja útveginum með þessu. Eins og ég sagði og sýndi fram á í fyrra á þingi, er það álit margra, að vafasamt sé, hvort viðgerðir, sem fara fram innanlands, þurfa að vera nokkru dýrari. Og þótt nokkur verðmunur kynni að verða, þá verði viðgerðirnar betur framkvæmdar hér en erlendis og meira að ósk eigendanna. Það hefir komið fyrir, að skip, sem hafa verið „klössuð“ erlendis, hafa orðið að leita viðgerðar, er þau komu í íslenzka höfn.

Ég er sammála hv. þm. G.-K. um það, að æskilegt er, að n. líti á málið frá báðum hliðum. Ég fyrir mitt leyti myndi ekki hafa á móti því, að um málið væri fjallað í tveim nefndum.