25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í C-deild Alþingistíðinda. (1509)

28. mál, viðgerðir á skipum

*Garðar Þorsteinsson:

Mér heyrðist hv. flm. segja, að ef ekki fengist samkomulag um verð á viðgerð, ætti það mál að fara í gerðardóm. En þetta er nokkuð óljóst, því að í 5. gr. stendur:

„Nú vill eigandi skips, umboðsmaður eða vátryggjandi láta fara fram viðgerð á skipi, en ekki nest samkomulag um verð á viðgerðinni eða hann dregur í efa, að fullnægjandi viðgerð fáist hér á landi, og neitar af þeim sökum að gera samning um viðgerðina við hérlenda skipasmiðju, og er honum þá eigi að síður óheimilt að senda skipið til annars lands til viðgerðar, nema því aðeins, að hann hafi áður fengið álit sitt staðfest með úrskurði gerðardóms.“

Hvaða álit er það? Að ekki fáist samkomulag um verð á viðgerðinni, eða um það, að ekki fáist gert við skipin á viðunandi hátt hér á landi? Auðvitað er átt við hið síðara. Ég vil benda hv. flm. á það, ef meiningin er, eins og hann virðist gefa í skyn, að náist ekki samkomulag, þá skuli vátryggjandi leggja málið í gerðardóm, að það vantar þá ákvæði í frv. um það, hvernig þá skuli með fara, — hvort gerðardómurinn skuli ákveða verðið og vátryggjandi svo vera skyldur að hlíta því. Því að það er tvennt ólíkt, að aðrir menn eru látnir segja til um það, hvort hægt sé að fá viðgerð á skipunum, og hitt, að þeim sé veitt vald til að slá því föstu, hve mikið greiða skuli fyrir viðgerðina. Og auk þess yrði það spursmál, hvort verkstæðið væri skylt til að hlíta þeim úrskurði.