25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (1511)

28. mál, viðgerðir á skipum

*Flm. (Páll Þorbjörnsson):

Hv. 8. landsk. vakti eftirtekt á 5. gr. frv. Það er vitanlega erfitt fyrir mig og mína líka að deila við hann um lagaskýringar. Það brennur líka oft við, að lögfræðingarnir, sem hafa það að atvinnuvegi að fjalla um l., eftir að þau hafa verið samþ., eru ekki alltaf sammála um, hvern skilning beri að leggja í hverja lagagr., og í sjálfu sér liggur þeirra atvinna e. t. v. mest í því, að vera ósammála um þetta. En af því að hér er mikið um lögfræðinga í d., vænti ég, að frv. fái hér nauðsynlegar skýringar, svo að það verði ekki síðar ásteytingarsteinn. Vona ég jafnframt, að brtt. þær, sem koma kunna frá þeim, verði frekar miðaðar við það, að bæta frv. en hitt.

En út af því, sem fór á milli þeirra hv. þm. Hafnf. og hv. þm. G.-K., vildi ég segja nokkur orð. Hv. þm. G.-K. sagði, að verðhækkun skapaðist innanlands við það, að við hættum að kaupa útgerðarvörur erlendis, og að línur og net, framleidd á Íslandi, væri dýrari en útlend. Ennfremur, að hér væri orðið ógerningur að fá þessar vörur frá útlöndum. Við þessu verður að segja, að það hlýtur að vera krafa, að eitthvað sé gert til að fyrirbyggja, að okrað sé á þessari innlendu framleiðslu. Mér er kunnugt um, að þorskalínur eru nú dýrari en áður var, og dýrari en hægt er að fá þær frá Noregi. En ástæðan fyrir þessu er sú, að einungis er hægt að snúa sér til eins aðilja um slík kaup. Ég get í þessu sambandi vakið athygli á því, að útvegsbændur í Vestmannaeyjum hafa komið sér upp netagerð, og hefi ég fyrir mér orð kunnugra um það, að þeir geti selt þorskanet sambærilegu verði við það, sem greiða verður fyrir net frá Noregi. Vörur þær, sem áður voru fluttar inn frá útlöndum, eru nú oft framleiddar hér af einum aðilja einungis, og dýrleikinn er ekki fyrst og fremst að kenna hinni innlendu framleiðslu, heldur hinu, að þessir einstöku aðiljar hafa tök á að okra á framleiðslunni.