25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (1513)

28. mál, viðgerðir á skipum

*Ólafur Thors:

Hv. þm. Hafnf. byggði andmæli sín gegn minni ræðu á því, að það væri ósannað mál, að innlendi iðnaðurinn hefði aukið dýrtíðina í landinu, eða hvort ástæða væri til að ætla, að hann yrði dýrari en erlend framleiðsla, þar sem hún væri ódýrust. Þó að ég hafi ekki sjálfur reynslu um kaup á netum og línum, veit ég það þó frá útgerðarmönnum sunnan með sjó, að þær eru hér talsvert dýrari en þær eru ódýrastar annarsstaðar. Og ég hefi ekki ástæðu til að rengja þessa menn. — En hvort sem þetta er nú sannað eða ósannað mál, vil ég spyrja hv. þm., hvort honum þyki líklegra, að rétt sé, ef rökrétt hugsun fær að njóta sín hjá honum? Myndi honum þykja líkur til, að vara yrði ódýrar framleidd hér á landi en þar, sem framleiðsluskilyrði eru bezt, þegar þess er gætt, að við búum við óhæfilega dýrt lánsfé, en öll framleiðsla hér byggist yfirleitt á lánsfé, og þegar það er ennfremur athugað, að við verðum að notast við óæfða krafta og litla reynslu? Eru ekki líkur til, að við verðum að sætta okkur við, að slík framleiðsla verði hjá okkur dýrari en hjá þeim þjóðum, sem njóta beztra skilyrða?

Auk þeirra vara, sem ég hefi áður nefnt, hefi ég heyrt, að t. d. sé íslenzkt smjörlíki allmiklu dýrara en það, sem ódýrast er erlendis.

Hv. þm. beindi til mín og okkar sjálfstæðismanna áminningum út af vantrú okkar á innlendum iðnaði. Innan Sjálfstfl. er það eðlilega misjafnt, hverjar vonir menn gera sér um möguleikana fyrir íslenzkum iðnaði, og mun svo vera í öllum flokkum. Meðan reynsla er ekki komin á um svo fjölþætt mál, er eðlilegt, að skoðanir séu misjafnar, þar sem menn hugsa sjálfstætt. Það er vitanlega varasamt að vantreysta sér mjög, en hitt er engu síður varhugavert, að treysta sér um of. Ég álít fyrir mitt leyti og án þess, að ég sé þar að mæla fyrir munn Sjálfstfl., því að innan hans er trú manna á innlendum iðnaði misjöfn, að varasamt sé að stíga of ört skrefin í þessum efnum. Er ég hræddur um, að það geti orðið til þess, að ýmsir verði fyrir vonbrigðum. Vil ég benda mönnum á, að það orkar mjög tvímælis um ýmsan iðnað, hvort hann getur borið sig hér, þegar verzlun er aftur orðin frjáls. Ég álít það ekki stefnu framtíðarinnar, að Íslendingar fari að brjóta kol norður á Tjörnesi, í stað þess að kaupa þau þar, sem þau fást ódýrust. Ég álít það ekki stefnu framtíðarinnar, að Spánverjar komi hingað til að veiða fisk, í stað þess að kaupa hann af okkur. Ég held, að Íslendingar eigi einmitt að stunda fiskveiðarnar sjálfir, og það alveg jafnt, þótt innilokunar- og haftapostulinn, hæstv. fjmrh., gangi hér um d. hlæjandi. Hin stefnan, stefna hæstv. fjmrh., er stefna fortíðar og dauða og er nú að drepa niður íslenzkan sjávarútveg. Ég álít, að það sé vont og skaðlegt, að íslenzkur iðnaður mæti vantrausti, og jafnskaðlegt, að hann mæti oftrausti, en ég tel eðlilegast, að hann mæti skilningi, og ég vil geta sýnt honum þann skilning. Það kann að orka tvímælis, að ég sjái rétt í þessu máli, en það vil ég, að menn skilji, að ég el ekki í brjósti neinn kala til innlends iðnaðar né vil vitandi vits sýna honum nokkurt óverðskuldað vantraust.