25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í C-deild Alþingistíðinda. (1518)

29. mál, talstöðvar í skipum

*Jóhann Jósefsson:

Það er víst óhætt að segja, að eitt að þeim beztu öryggistækjum, sem skip hafa, séu loftskeytatækin og taltækin. Vitaskuld verður það bezt til öryggis, að útbúnaður bátanna sé sem öruggastur, þótt lengi megi benda á, að þetta og þetta sé gott til frekara öryggis. En hitt er áreiðanlegt, að það út af fyrir sig, að geta látið til sín heyra, hefir oft komið að gagni og hefir mikla þýðingu.

Það hefir verið upplýst í þeim ræðum, sem fluttar hafa verið bæði af hv. flm. og hæstv. ráðh., að það er kominn sá útbúnaður, sem frv. fer fram á, í miklu meira en helminginn af þeim skipum, sem hér koma til greina. Þessi útbúnaður er þegar kominn í 108 skip, og fyrir liggja pantanir hjá landssímastjóra, eftir því sem mér er skýrt frá, á 50 til 60 tækjum. Þegar þær pantanir eru afgr., þarf ekki að skylda þá, sem þessi tæki fá, með lögum, því að þeir hafa þá gert sínar ráðstafanir, áður en frv. kom til greina. Þegar það er afgr., er hægt að gera ráð fyrir, að 150 skip af 250 væru búin að fá tæki. Það væru því eftir 100 skip, sem þessi lög ættu að ná til.

Nú er þess að geta, hvað er mikið létt undir með mönnum að fá taltæki samkvæmt þessari lagaskyldu. Ég skal sýna fram á, að það er ekki mikið létt undir eftir þessu frv. Landssíminn leigir bátunum tækin sjálf. Landssími Íslands byrjaði á því fyrir 3 árum síðan, sem mjög er virðingarvert, að smíða hentug tæki í íslenzka fiskibáta, sem nota mætti til þess að tala við land og milli báta. Þeir, sem landssímanum stjórna, veittu því athygli, að í stórum skipum, sem hingað koma, var slíkur útbúnaður ekki mjög dýr. Þess vegna lét landssímastjóri gera tilraun með að smíða tæki með hæfilegu verði og stærð í íslenzka fiskibáta. Í þrjú ár hefir þessu verið svo vel tekið af íslenzkum bátaeigendum og fiskimönnum, að nú eru tæki komin í 108 skip, og þar að auki yfir 50 í pöntun. Það er því augljóst, að það er engin tregða hjá bátaeigendum og sjómönnum að sinna þessu máli. Eg get bætt því við, að það er sennilega komið miklu lengra hér á landi að svona litlir bátar hafi taltæki, heldur en hjá nágrannaþjóðum okkar, eftir þeim fregnum, sem ég hefi bæði frá Færeyjum og Noregi.

Í grg. fyrir þessu frv. er sagt frá því m. a., að nokkuð treglega gangi að fá taltæki leigð hjá landssímanum, og það hefði tafið fyrir, að menn fengju tæki eins og þeir vildu. Ég geri ráð fyrir, að hér sé skýrt dálítið skakkt frá að því leyti, að ekki er sagt, vegna hvers landssíminn afgreiðir ekki tækin eins ört og beðið er um. Ég tel mig hafa eins mikla reynslu og hv. flm. í þessu máli, því að ég hefi verið milligöngumaður við útvegun á nokkuð mörgum tækjum, en ég býst við, að hann hafi ekki haft mörg til meðferðar. Ég get borið landssímanum það, að hann hefir ekki tekið treglega í þetta mál, heldur þvert á móti. Bæði ég og aðrir, sem ég hefi vitað að hafa pantað tæki, hafa mætt hinni mestu lipurð. Hitt er annað mál, að landssímanum hefir gengið erfiðlega að fá útlent efni, því að vitaskuld eru þessi tæki sett saman úr útlendu efni, en þeir erfiðleikar hafa ekki stafað af neinni tregðu af hálfu gjaldeyris- og innflutningsnefndar, heldur af þeim eðlilegu hömlum, sem á innflutningi er, og svo af gjaldeyrisskorti í landinu. Það liggja t. d. nú sem stendur tvær sendingar á afgreiðslu skipanna, sem bankarnir hafa ekki getað lánað gjaldeyri til að borga. Þetta eru sendingar til landssímans, sem í eru stykki til að búa til úr tæki. Það kemur sér bagalega, að bankarnir skuli ekki geta lánað gjaldeyri til þess að leysa inn þessar sendingar. En það er engin tregða í þessu máli af hálfu landssímans. Það þykir mér skylt að leiðrétta, vegna þess að ég hefi verið talsvert við þessi mál riðinn, að því er snertir Vestmannaeyjabáta.

Hv. flm. skýrði frá því, að Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja hefði samþ. á aðalfundi sínum að styðja þetta mál. Þetta er rétt, en hv. flm. sagði þar ekki nema hálfan sannleikann. Honum er sýnilega meira í mun, ég vil segja að grípa á lofti þessa hugmynd og koma henni á þingskjöl heldur en að athuga, hvað virkilega lá fyrir í málinu, eins og ég nú hefi upplýst um afskipti landssímans af málinu. Það liggur því þannig fyrir, að því er snertir Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja, að í Vestmannaeyjum eru komin taltæki í 11 báta, og eru það aðallega bátarnir, sem fara á síldveiðar. Svo var málið rætt í stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja, og framkvæmdarstjóri þess fór á fund Bátaábyrgðarfélagsins að mínu undirlagi og annara í stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja. Fékk hann þar samþ. till. þess efnis, að Bátaábyrgðarfélagið skyldi styðja 20 báta til þess að fá sér tæki, með því að lána þeim 400 kr. upp í stofnkostnað, og ennfremur með því að greiða vátryggingu þá, sem landssíminn heimtar af þessum tækjum. Og það var ekki einasta, að Björgunarfélag Vestmannaeyja stæði að þessu, heldur líka félagið Eykyndill. Hv. flm. þessa frv. hefir hvergi nærri þessu máli komið, heldur grípur hann á lofti það, sem gerðist á fundi Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja, og vill gera þetta að lagaskyldu. Okkur var ljóst, og er ljóst, að það er ekki þægilegt að koma þessu öllu í kring á einu ári, bæði vegna þess, að landssíminn getur ekki af teknískum ástæðum, og heldur ekki af gjaldeyrisástæðum, uppfyllt allar pantanir í einu. Mér skildist líka á hæstv. ráðh., að hann byggist við, að frv. þyrfti athugunar við í þessu efni, og að ekki mundi hægt að koma öllu í kring í einu. Það, sem fyrir mér og stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja vakti, var, að af fjárhagslegum ástæðum þyrfti að gera ráðstafanir til þess að gera mönnum kleift að eignast þessi tæki, og það var þess vegna, að Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja gerði þessa samþ.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, leggur þá skyldu á herðar hverjum báteiganda, sem á bát eða skip, sem er yfir 15 smálestir að stærð, að hafa svona tæki í því, jafnvel þótt báturinn fari alls ekki á sjó, eftir því sem mér skilst á orðalagi frv. Með þessu frv. er engin tilraun gerð til þess að létta af mönnum þeim kostnaði, sem af þessu leiðir, nema 30 kr. gjaldinu til útvarpsins, og er það þó ekki nema fjöður á fati af þeim útgjöldum, sem þessi taltæki hafa í för með sér. Samkv. því, sem hv. flm. sagði, þá er kostnaðurinn við niðursetningu taltækja í bát frá 400 til 600 kr., og árlegur kostnaður eitthvað svipaður. Mér þykir þetta nokkuð losaralega frá skýrt. Eftir hans áliti, leikur kostnaðurinn við uppsetning tækjanna í hvern bát á 800–1200 kr. Það, sem ég hefi komizt næst í þessu efni, er, að rafvirki sá, sem löggiltur er í Vestmannaeyjum, hefir gefið þær upplýsingar, að stofnkostnaður að viðbættu því gjaldi, sem greiða verður árlega — en það er 120 kr. — myndi verða um 900 kr. á bát. Og hér í Reykjavík hefi ég staðreynt að þetta er rétt, á því, sem ég hefi orðið að borga fyrir uppsetningu á þessu. Ég veit, að sá kostnaður einsamall er um 200 kr., en þar við bætist móttökutæki. En taltæki og móttökutæki er sitt hvað. Taltæki eru það, sem landssíminn leggur til og tekur 120 kr. í leigu fyrir. En báturinn verður að sjá sér fyrir móttökutæki og öðru því, sem talið er í uppsetningarkostnaði. Þessi taltæki eru venjuleg stofutæki, en þau eru bæði of fín og of dýr og ekki nærri nógu sterk, svo að árlegur viðhaldskostnaður á þeim er hjá mörgum bátum nokkuð mikill. Nú ætlar landssíminn að gera tilraun til þess að smíða tæki með hliðsjón af mótorbátum, því að það er sérstaklega erfitt fyrir mótorbáta að varðveita dýr og vönduð tæki, sem ætluð eru til þess að nota inni í húsum, en ekki úti á sjó. Verkfræðingur símans hefir sagt mér, að hann búist við, að þessi tæki, sem landssíminn ætlar að láta smíða, muni kosta 400 kr. Uppsetningarkostnaður er eftir mati hv. flm. frv. 400–600 kr., og telur hann þá að sjálfsögðu móttökutæki með. Ég hygg, að óhætt sé að segja, að hann sé 600 kr. Í Vestmannaeyjum er hann talinn af rafvirkjanum þar 700 kr. En þótt hann sé talinn 600 kr., þá er það mjög há upphæð.

Þá er leigan til landssímans, en frv. fjallar líka um hana. Það er gefið í skyn, að leigan eigi að verða lægri en hún er nú. Í frv. er sagt í 4. gr. á heldur slæmu máli, að leigan skuli ákveðin fyrir eitt ár í senn og miðað við, að landssíminn sleppi skuldlaus. Nú er þess að gæta, að þessi leiga, sem landssíminn tekur fyrir tækin, hefir verið prófuð. Fiskifélagið hefir sett nefnd til þess fyrir ári síðan, og hún komst að þeirri niðurstöðu, að leigan væri sanngjörn. Ég sé því ekki, að hægt sé að lofa mikilli niðurfærslu á þessari leigu, þó að þetta frv. verði samþ. Þá er líka upptalið allt, sem aflétt verður af mönnum samkv. frv.

Hv. flm. er að tala um í grg., að Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja hafi styrkt þetta, eins og ég hefi nú staðfest, að það ætlar að greiða iðgjaldið, en það stendur ekki í frv., að það eigi að verða lögskylda fyrir Vátryggingarfélag Vestmannaeyja eða önnur félög, heldur leggst það á eigendur bátanna samkv. frv. Ég álít, að það þurfi að taka til athugunar í n., að reyna að létta undir með stofnkostnaðinn, því að annars leggur frv. skyldu á herðar eigenda þessa 90–100 báta, sem hafa ekki enn fengið tæki, því það skyldar þá til að kaupa í bátana tæki, sem baka þeim á fyrsta ári a. m. k. 600 kr. í útgjöld, og þar að auki er leigan 120 kr. til landssímans og er töluvert þungur baggi. Frv. gerir ekki ráð fyrir nokkurri annari afléttingu en þessum 30 kr. til útvarpsins, en það leggur á þá skyldu, að ráðast í þennan kostnað.

Ég tók eftir því, að hv. flm. talaði um, að þetta mál færi til sjútn., sem er líka eðlilegt, og þykist ég vita, að sjútn. verði við tilmælum hæstv. ráðh. um að bera sig saman við landssímann um þetta efni. Og þá kemur vitanlega til greina í enn ríkari mæli þörfin á því, að bera sig saman við ríkisstj. um það, hvað hún vilji gera til þess að létta undir með stofnkostnaðinn, því að hann er aðalatriðið. Ef ekkert er létt undir með stofnkostnaðinn, þá er lítil hjálp í því að samþ. þetta frv., enda hlýtur hv. flm. að sjá það. En verði hinsvegar gerðar ýtarlegar ráðstafanir til þess að bátaeigendum verði ekki nema lítið íþyngt með gjöldum, þótt þeir fengju sér tækin, þá er sjálfsagt að skylda þá til þess að hafa þau. Annars er það sýnilegt af undirtektum þeim, sem þetta mál hefir fengið hjá bátaeigendum úti um land, að menn hafa haft alla viðleitni í frammi til þess að nota þá hjálp, sem landssíminn hefir boðið, til þess að koma þessum tækjum í bátana, því að þau eru komin í yfir 100 skip, og pantanir liggja fyrir á tækjum í um 50 af þeim 250 bátum, sem þarna koma til greina.